Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


fimmtudagur, október 30, 2003


Guten Abend,Edda hér.
Var að koma úr 7 ára afmæli hjá frænda mínum. Það var fínt. Margir gestir. Mikið að sprengdum blöðrum og mikið af byssuskotum. En ég slapp ómeidd.
Annars er góð sjónvarpsdagskrá. Will og Grace, Bachelor, Sex and the city. Man ekki meira. Fylgist með.
Föstudagurinn á morgun verður vel þegin. Mig dauðþyrstir í helgi. En mig dauðþyrstir líka í ball. Mr-ball sérstaklega. Hefur einhver heyrt um mr-ball í nóvember? Eplaball Kvennó er eftir viku en mig langar miklu meira á mr-ball. Ég nenni ekki að bíða alveg þangað til að jólaballið er, sem er ekki fyrr en seint í desember. Þá verður maður kannski bara dáinn. Hver veit!


Edda eða Egill kl. 20:04 |

=================

miðvikudagur, október 29, 2003


Edda
Núna er þungu fargi af mér létt. Efnfræðiprófið er búið! Ekki það að það hafi gengið neitt súper-vel. Bara gott að vera búin með það! En í dag er ég búin að vera að læra undir íslensku próf sem er á morgun. Þarf að lesa einhverjar fimm sögur og á svo að skrifa tímaritgerð um bara eina þeirra. Eftir þetta skal ég lofa að hætta að tala um próf :S Þá er loksins þessari prófatörn lokið.

Ég vil benda ykkur á góða dagskrá á rúv í kvöld. Klukkan átta er ER. Eftir henni kemur AT-ið og svo á eftir því er That seventy show. Hvet ég alla til að fylgjast með þessu. Það gerist ekki betra á rúv.

En núna er kominn kvöldmatur, bless bless


Edda eða Egill kl. 17:58 |

=================

þriðjudagur, október 28, 2003


Var að setja inn fullt af linkum. Kominn með höfuðverk af því að endurskrifa nöfnin aftur og aftur, reka mig í vitlausa takka og ýta óvart á back. Þetta er orðið svoldið pínu rosalega mikið pirrandi svo ég ætla að hætta núna áður en tölvan lendir útí garði og reyni bara að klára þetta á morgun í staðinn. Þá verð ég líka vonandi búinn að redda mér róandi pillum svo þetta ætti að takast.

E G I L L


Edda eða Egill kl. 23:56 |

=================



Edda:
Góðan daginn. Var að koma úr skólanum. Við tekur ömurleg skíta efnafræði sem ég er að fara í próf úr á morgun :( Kann ekki baun í bala.

� gærkvöldi horfði ég á þátt á RúV um franskan anoraxíu- og búlimíu sjúkling. Þetta var ógeð. Hún var 1.70 á hæð og 33.8 kíló. Ullabjakk. Enda var hún ekki nema skinn og bein. Stundum fékk hún átköst og ældi svo öllu aftur. Og svo stundum borðaði hún ekkert í marga daga. Nema jú einu sinni fékk hún sér agúrku í kvöldmat. Ekki gott mál!

En ég vil óska Arngunni indælu til hamingju með það að vera búin að losna við teinana. Stór áfangi!Til hamingju.
Já og ég vil líka hrósa Agli fyrir skemmtilegt blogg ;)

sjáumst síðar ef ég dey ekki á meðan ég læri undir efnafræði.


Edda eða Egill kl. 14:18 |

=================

mánudagur, október 27, 2003


Ég held ég sé ótvíræður reddari dagsins, allavega kvöldsins.
Var að enda við að skrifa ritgerð um auglýsingar í fjölmiðlum. Við áttum að velja okkur efni fyrir 2 vikum og skila svo 4 blaðsíðna ritgerð á morgun, 28. okt.
En jæja, ég valdi mér efni í kringum 7 leytið í kvöld í bílnum á leiðinni á bókasafnið. Þar fann ég 2 bækur með aðstoð bókasafnsfræðingsins og neyddist í leiðinni til að endurnýja bókasafnsskírteinið mitt. Það kostaði mig heilar 1000 krónur!!! Sjitt hvað það er alltof dýrt!
Þegar heim var komið hófst ég handa við að skrifa. Ég var farinn að hugsa um hvert ég ætti að fara og fá mér eitthvað að borða klukkan 5 í nótt því ég bjóst við að vera í alla nótt að þessu. En viti menn, ég held ég hafi ekki verið nema svona 2 tíma að skrifa NÆSTUM 4 blaðsíður plús heimildaskrá. Blekið í prentaranum er að vísu búið en það reddast líka í fyrsta og síðasta lagi á morgun svo ritgerðin ætti að komast til skila á þá.
Annars voða lítið að frétta. Jú ég fékk svona mætingarviðvörun í síðustu viku. 81% er víst ekki gott. Það var fyrir fyrsta mánuðinn. Held ég hafi bætt mig síðan þá.
En nú ætla ég að skella mér í sturtu og raka mig ef ég nenni. Ef þið heyrið ekki í mér á morgun er það líklega af því að ég hef skorið á einhverja mikilvæga æð í hálsinum á mér við það þ.e. raksturinn ekki sturtuna. Þá væri fínt ef þið létuð einhvern vita svo það sé hægt að bjarga mér.
Svo kannski les ég smá í A Streetcar named Desire á eftir þó ég efist stórlega um það. � eiginlega að vera búinn með hana fyrir morgundaginn en það má bíða. Enda örugglega bara fyrir framan sjónvarpið eins og venjulega þangað til ég sofna alltof seint.
Af hverju er Dr. Phil svona oft síðastur á dagskránni? Það er alltaf öll dagskrá búin annars staðar þannig að hann er það eina í sjónvarpinu og af því ég kem mér ekki í rúmið strax enda ég alltaf á að glápa á hann. Mér finnst hann svona álíka skemmtilegur og stillimyndin á Omega en samt held ég að ég hafi varla misst af þætti. Því miður.

Bless og góða nótt
EGILL


Edda eða Egill kl. 23:30 |

=================

sunnudagur, október 26, 2003


Edda
� morgun vaknaði ég allt of seint með tilliti til þess að ég er að fara í stærðfræðipróf á morgun. Svaf til 12. Vaknaði reyndar klukkan 9 og var vakandi í svona hálftíma en svo bara sofnaði ég aftur.
Þegar ég vaknaði tók við stanslaus lærdómur bara alveg fram að kvöldmat. Hef ekkert farið út úr húsi í dag! Já, hljómar ekkert sérlega vel, ég veit.
En ég er að spá í að horfa á Practice núna eftir 20 mínútur svo ég er farin að láta einhvern hlíða mér yfir stærðfræði-reglur! Farvel


Edda eða Egill kl. 20:45 |

=================



EGILL: Já ótrúlegt en satt, ég var líka í gullbrúðkaupi hjá ömmu og afa. Fullt að gerast.
Amma ákvað, örugglega í fyrsta skiptið í þessi 50 ár að standa ekki í öllu eldhús-veseninu sjálf svo hún réð 2 kokka og eina þjónu(ef það er orð) til að sjá um það fyrir sig. Fengum lax í forrétt, hreindýr í aðalrétt og eitthvað gott í eftirrétt. Ég veit ekkert hvað það var. Edda fékk sér ekki hreindýr heldur kjúkling eins og litlu krakkarnir. Það var því miður ekki til drykkjarjógúrt fyrir hana. ;)
Spilaði líka lag ásamt Eddu sem ég samdi í tilefni afmælisins. Er víst komin á einhver hefð að ég semji lög fyrir helstu uppákomur innan fjölskyldunnar.
Ég lék líka undir þegar Fríða litla systir spilaði Love me Tender á klarinett. Það trúði því enginn að það væri líka frumsamið. :) Svo var sýnt slædsjó, hlegið að gömlum of stórum gleraugum og margt fleira.
Farinn að sofa. Bless.


Edda eða Egill kl. 00:57 |

=================



Núna rétt í þessu var ég að koma úr gullbrúðkaupsveislu hjá ömmu og afa. Gullbrúðkaup er 50 ár. Svolítið mikið! Veislan var mikið stuð. Margt um manninn. Þar var borðað og kjaftað og ákveðinn hópur gestanna sat spenntur yfir myndinni Crossroads inni í sjónvarpsherbergi. Gífurleg stemmning. En nú er ég orðin þreytt svo ég kveð að sinni. Adios, Edda


Edda eða Egill kl. 00:32 |

=================



Yes! Nöfnin komu bæði!


Edda eða Egill kl. 00:16 |

=================



.


Edda eða Egill kl. 00:15 |

=================



Jámm bara komin með blogg. Vitum reyndar ekki baun. En þetta blessast. Jámm Egill á þetta blogg líka! Ekki bara Edda. Bara smá prufa í gangi.


Edda eða Egill kl. 00:09 |

=================



Kveldid!


Edda eða Egill kl. 00:07 |

=================