laugardagur, ágúst 28, 2004
meiri myndir
Ný og bætt myndasíða komin í gang. Látið mig vita hvort ykkur finnst Þægilegra.
Þetta eða
hitt.
Edda
Edda eða Egill kl.
20:04 |
=================
föstudagur, ágúst 27, 2004
Herraguð
Shit, hvað þetta er búinn að vera fleppaður fimmtudagur. Allt að verða vitlaust. Fyrsti dagurinn minn í 4-B. Hann var ansi skemmtilegur. Ég tók eftir Því að tímarnir eru svoleiðis miklu fljótari að líða heldur en í 3-G og 4-S. En fimmtudagsflippið hófst á leikfimi í morgun. Ég hljóp tjörnina með Arngunni og Ling og lét Ling hlaupa vitlausa leið því ég kunni ekki að segja "nei, Ling, kjánaprik, þetta er vitlaus leið" á kínversku. Flippið náði hámarki í hádegishléinu þegar Soffa keypti sér súkkulaðiköku. Þakið ætlaði að rifna af húsinu. Svo var reyndar ansi flippað þegar ég kynntist litlu, sætu busastelpunni í rauðu peysunni og komst að því að hún var með Swatch úrið sitt á hægri hendi en samt ekki örvhent. ALVEG EINS OG ÉG. Flepp eða hvað? Eftir skóla kláraði ég að læra allt fyrir morgundaginn á Ã�þöku ásamt Kára Sighvatss. og var það mesta flipp sögunnar. Mér finnst svo alveg of langt gengið á flippleika skólastjórnar að hafa tvo Stefána, tvo Hrólfa og tvo Dmitrya í sama bekk. Dmitry! Allt er nú til.
Jaaaá, ég sá Jónsa fræga hlaupandi á Laugaveginum. Kurrreiiisí. Og Lucas bara dauður.
Bless, takk fyrir góðan fleppfimmtudag. Edda.
Edda eða Egill kl.
05:29 |
=================
þriðjudagur, ágúst 24, 2004
myndir
Oh my god, klukkan er orðin tólf, blablablö. Svefngalsi. Ég tók nokkrar myndir á Menningarnótt. Ég ákvað að setja þær inn á netið en þetta er samt bara bráðabirgðasíða. Ég ætla að fá mér einhverja þægilegri í sniðum, þegar ég nenni. En þangað til fara mínar myndir
hingað. Farið bara í pictures og blabla. Menningarnóttin mín var alveg frábær. Ég skemmti mér ansi vel í góðra vina hópi. Svo var það skólasetning í dag. Magnaður hlutur sá.
Edda
Edda eða Egill kl.
01:04 |
=================
fimmtudagur, ágúst 19, 2004
Whatever Happened to Corey Haim?
Góðan og blessaðan daginn!
Mjög góður dagur í dag. Var kominn á fætur hálf 3. Þegar ég var að smyrja mér morgunmat kom svo Kári með nýja
Tipp-kick fótboltaspilið sitt sem hann vann í Fuji leiknum sem Edda skráði alla í á úlfarsfelli. Spilaði nokkra leiki við hann og Guðmund frænda sem leit í heimsókn. Held ég hafi barasta unnið allt. Svo skutluðum við Kári Guðmundi heim til ömmu og afa og skutumst inn og kláruðum súkkulaði kökuna hennar ömmu. Namminamm! Leituðum svo að Eddu í ökutíma á leiðinni til baka en án árangurs.
Svo kom kvöldmatur sem var mjög góður og síðan var sest fyrir framan sjónvarpið og horft á landsleikinn. Ég ákvað að fara ekki á leikinn sjálfan þar sem mér finnst betra að horfa á svona í nærmynd og geta séð endursýningar. Svo verður mér líka alltaf svo kalt af að standa svona í 90 mínútur á leikjum. Allavega, 2-0! Maður fékk bara gæsahúð þegar Eiður Smári og Gylfi skoruðu. Þá langaði mig reyndar svolítið að vera á vellinum.
Síðan glamraði ég aðeins á hljómborðið á meðan ég beið eftir mjög góðum One tree hill þætti.
Mér sýnist þetta ætla að verða þættirnir sem leysa O.C. af hjá mér þó þeir komi auðvitað ekkert à staðinn fyrir vini mína í Newport.
Eftir þáttinn leit Guðmundur aftur í heimsókn og við fórum og keyptum ís.
Mjög góður dagur!
Svo er innan við vika í að skólinn byrji! Ég hlakka bara alveg minna en ekki neitt til, kannski smá gaman af því þetta er vonandi síðasta árið og það verða fullt af böllum og svona í vetur. Annars ekki neitt.
EGILL
Edda eða Egill kl.
01:20 |
=================
laugardagur, ágúst 14, 2004
Gaman saman
Hæ hó, klukkan sló. Það er kominn 14. ágúst. Ágætisdagur sá. Ég held ég hafi ekki verið heima hjá mér eina kvöldstund síðustu 9 daga eða álíka. Ég er búin að vera ansi aktív. Á þriðjudaginn labbaði ég með Thelmu Marínu niður í bæ. Við settumst á ömmukaffi og horfðum á mannlífið. Í öllum mannfjöldanum rak Thelma augun à kunnuglegan mann. Það var Ragnar Jón og hann kom til okkar með uppþvottalög og við fórum og keyptum ís.
Miðvikudagurinn var svo náttúrulega bara kurreisý. 50 cent. Við Soffa mættum á svæðið í eins fötum. Það var ekki skipulagt. Tónleikarnir voru svaðalegir. Stemmningin var í hámarki þegar P.i.m.p kom og tala nú ekki um þegar 50 sjálfur fór upp á bassaboxið á sviðinu og tók þar Many men í buxunum einum fata. Ég og Soffa ætluðum svo að snappa algjörlega þegar hann sagði eftir eitt lagið: "Yo, girl.
Fo real."
Eeen, fimmtudagurinn var æðislegur. Það lá ansi vel á mér og veðrið var svo gott. Ég fór í Seltjarnarneslaugina og fékk mér sundsprett. Þaðan línuskautaði ég til Sófu Dóru þar sem einhverjar stúlkur voru í heita pottinum. Svo var sest út í garðinn og borðaður ís og svo má ekki gleyma sex and the city.
Gærkvöldið var skrautlegt og tíðindaríkt. Kokteilpartei hjá Hildi Helgu. Fólk var hresst og fúlt til skiptis en ég náði að hlæja úr mér lungun tvisvar. Einu sinni þegar Sigga var að stríða Soffu og svo í bílnum á leiðinni heim. Ég náði varla andanum. Egill og Lilja sóttu sem sagt mig, Soffu og Laufeyju. Við fórum á AktuTaktu og keyptum okkur ís og keyrðum svo í Nauthólsvík þar sem átti að vera eitthvað party. Þar hittum við Gnúsa trymbil og rúntuðum með honum um bæinn.
Þessir síðustu dagar hafa verið alveg klassaskemmtilegir. Þökk, Edda.
Edda eða Egill kl.
13:02 |
=================
þriðjudagur, ágúst 10, 2004
Kusa
Jebbah, kók. Í gær kom ég heim úr sumarbústað. Þar var ég í algjöru chilli. Ég hef sjaldan gert svona lítið. Ég lá bara í sólbaði og fór í sund og svo tókst konunum á svæðinu að draga mig á handverksýningu á Hrafnagili. Það var massastuð. Fullt af ljótu dóti, málaðir steinar og prjónað rugl en samt kom ég heim með tvö pör af eyrnalokkum. Í gærkvöldi fóru ég, Soffa og Laufey niður í bæ og vorum viðstaddar kertafleytinguna á tjörninni. Það var ótrúlega fallegt. Fullt af fólki og fullt af kertum. Þegar búið var að setja kertin á flot settumst við á brúna og horfðum á ljósin. Það var æðislegt. Ég var með þrjú lítil sprittkerti í fórum mínum og við settum þau á flot við brúna. Það hafði enginn trú á því að sprittkertin myndu fljóta en þegar það tókst fór fólk að klappa fyrir okkur á brúnni. Við töltum síðan á Café Paris og sátum þar og kjöftuðum. Þetta var sumarkvöld eins og þau gerast best og svo var veðrið líka svo gott.
Í dag vann ég frá 9-18 og í hádeginu skellti ég mér í sund í þessu blíðskaparveðri, synti og sleikti sólina. Ekki má svo missa af síðasta þættinum af Joe Schmo í kvöld. Shit, það verður crazy.
Lifið heil, Edda.
Edda eða Egill kl.
16:45 |
=================
mánudagur, ágúst 02, 2004
Verslunarmannahelginni minni má lÃkja við um það bil allar aðrar helgar sumarsins nema ég er ein heima og ekki að vinna. Ég, Soffa og Laufey sameinuðumst à Ãbúðinni minni hér á föstudagskvöldið og elduðum tortilla og drukkum freyðivÃn og átum jarðarber. Laugardaginn fórum við stöllurnar lÃka á Laugarveginn, spókuðum okkur og fengum okkur barnakakó og Baby Ruth. Sunnudagurinn fór að mestu à svefn. Allavegana var legið à rúminu til svona hálfsex en þá rifum við Kári okkur fram úr og fórum à grillboð. Seinna um kvöldið hitti ég stelpurnar og eftir hangs hjá Siggu Gyðu fórum við heim til mÃn à nettflippdjók.
Sorgardagur sumarsins er svo genginn à garð. Þvà til virðingar legg ég til að fólk taki höndum saman og haldi um það bil fimmtÃu mÃnútna kyrrðarstund sem hefst á slaginu 20:00.
Edda
Edda eða Egill kl.
02:02 |
=================