fimmtudagur, september 30, 2004
"What up, homes!"
Sem sagt, eins og allir vita er flippaður fimmtudagur í dag. Hann er samt ekki liðinn undir lok svo enn er nógur tími til að gera eitthvað kreisíógómegaflippað.
Ég ætla bara að láta fólk af því vita að ég er komin með enn eina myndasíðuna.
Picturetrail var eitthvað að stríða mér svo ég leitaði á önnur mið og útkoman er
þessi. Ég vona að þessi síða reynist mér betur og mér finnst líka svo helvíti sniðugt að á henni er kommentakerfi sem endilega má notast við villt og galið. Ekki má þó gleyma picturetrailinu því þar eru þær ófáar skemmtilegar myndirnar.
Anyways, ég ætlaði bara að tilkynna þessi umskipti.
Kúkum á kerfið.
Bless, Edda.
Edda eða Egill kl.
16:38 |
=================
laugardagur, september 25, 2004
Flippaður fimmtudagur nr. 5 og afmæli!
Þokkalega!
Síðustu tveir dagar hafa verið með eindæmum góðir. Það var náttúrulega flippaður fimmtudagur á fimmtudaginn og það er alltaf skemmtilegt. Ég gerðist alveg innilega flippuð eftir hádegi og fór í stærðfræðitíma hjá 6-Y, eðlisfræðideild II. Ég skrifaði niður reglu 2.1 og fékk heimadæmi og tegurreikningsdæmi. Þegar skólinn var búinn borðaði ég svo pasta með yfirstrikunarpenna.
Í gær átti ég svo afmæli og naut ég dagsins alveg þokkalega í botn. Það voru allir svo góðir við mig að ég bara átti ekki orð. Ég fékk fullt af nammi gefins og ótrúlega flott kort og sitthvað fleira. Eftir skóla tók ég Soffu, Laufeyju og Kára með mér heim og við átum köku og fleira óhollt. Restina af deginum var ég bara heima að slappa af með Kára og Fríðu og fleirum. Jáh, svo hringdi Egill í mig aðfaranótt 24. september og lét fullt af krökkum syngja afmælissönginn handa mér á dönsku. Það var alveg frábært. Um kvöldið kom Soffa til mín og svo komu Þóra bílstjóri og Laufey að sækja okkur og við krúsuðum áleiðis í party til Brynju. Það var ansi skemmtilegt og mér tókst að reifa tvisvar sinnum við númanúmanei! Svo hringdi Egill meira að segja aftur þegar ég var hjá Brynju og þá voru ennþá fleiri sem hann lét syngja fyrir mig á dönsku. Kári og krú komu að sækja mig og Soffu síðar um kvöldið og svo var bara farið heim að sofa. Alveg ótrúlega skemmtilegur dagur! Einhverjar myndir voru teknar í gær og ég set þær inn á við tækifæri.
Blessbless, Edda
Edda eða Egill kl.
16:11 |
=================
mánudagur, september 20, 2004
Kvedja fra Danmørku!!!
Allt skidegodt ad fretta.
EGILL
Edda eða Egill kl.
08:22 |
=================
sunnudagur, september 19, 2004
Nýtt
Ég er þokkalega ánægð með helgina sem er liðin undir lok. Hún var ansi skemmtileg. Á föstudaginn vorum við Egill ein heima og til okkar komu
Lilja,
Soffa, Thelma og
Kári. Við stelpurnar bökuðum smákökur og fórum hamförum í slúðrinu. Soffa og Thelma yfirgáfu okkur fyrir miðnætti og þá tók sko skemmtunin við því Egill dró upp Fjölmiðlafræðiverkefnið sitt sem hann þurfti að klára fyrir klukkan fimm um nóttina (því þá færi hann til Danmerkur) og við eyddum restinni af kvöldinu í það. Þegar líða tók á verkefnið var stemmningin algjörlega dauð og allir að farast úr leiðindum. Kóngur leiðindanna mun hafa verið ég og Kári fær prik fyrir hressleika. Egill og Lilja voru þarna einhvers staðar mitt á milli okkar.
Á laugardaginn gekk ég svo Leggjabrjót með skólanum. Það var ótrúlega skemmtilegt. Mjög vel heppnuð ferð og gaman að ganga úti í frjálsri náttúrunni með skemmtilegum krökkum. Eftir að hafa labbað 16,5 kílómetra tókum við rútu í bæinn og sáum við Kári okkur engan kost betri en að labba bara heim líka. Ég var svo aftur ein heima um kvöldið og við Kári pöntuðum okkur pizzu og seinna komu Soffa,
Svenni,
Hössi og
Jommi til okkar.
Góð helgi með góðum mönnum. Takk, bless, Edda.
Edda eða Egill kl.
18:05 |
=================
föstudagur, september 17, 2004
Það er orðinn vikulegur viðburður hér á þessari bloggsíðu að segja frá flippuðum fimmtudegi. Fimmtudagurinn í gær var örugglega sá minnst flippaði af þeim öllum. Mér tókst þó að gera ýmislegt smávægilegt sem telst nógu flippað, svo sem:
- fékk mér súkkulaðikex í morgunmat
- skrópaði í dönsku
- keypti Nýtt líf
Eftir þetta kom eins konar lægð á flippið en um kvöldið tók það við að nýju. Ég fór til Kára eftir mat og gerðist svo flippuð að taka leigubíl heim. Ofan á það tók ég upp á því að setjast í framsætið í leigubílnum. Hversu flippað er það?
Herra guð, ég geng fram af sjálfri mér. Eeeen, ég var að bæta við myndum af menningarnótt á www.picturetrail.com/eddah.
Bless, Edda
Edda eða Egill kl.
14:30 |
=================
miðvikudagur, september 15, 2004
Ó, mig auma, hvað mér er kalt. Í gærkvöldi var ég raddlaus. Það var gaman, þangað til síminn hringdi. Í dag er ég í fínu lagi. Eftir skóla voru það bara útréttingar með mömmu og svo heim að læra læra læra. Í gærkvöldi fór ég í þriggja tíma ökuskóla 1 og svo aftur í kvöld. Það verður skemmtilegt, alveg eins og í gær. Áðan sá ég par í nákvæmlega eins rauðum úlpum og nákvæmlega eins brúnum buxum. Þau voru sæt. Ekki það að ég muni einhvern tíma kaupa mér eins föt og maki minn. Jú, það væri reyndar svolítið töff að kaupa sér bæði svona kamúflage úlpu. Skilyrði fyrir notkun þeirra yrði reyndar að vera flippaður fimmtudagur. Vei, á morgun!
Hvernig er annars þetta nýja útlit að leggjast í mannskapinn?
Edda
Edda eða Egill kl.
16:51 |
=================
fimmtudagur, september 09, 2004
Jámmsen, þá er enn einn flippaður fimmtudagurinn brátt á enda. Eða samt ekki fyrr en eftir busaballið sem ég mun halda á innan tíðar. Þessi fimmtudagur var með þeim flippaðri. Tolleringarnar settu að sjálfsögðu svip á flippið og þá helst að ég sjálf var tolleruð og var það alveg mögnuð skemmtun. Aftur. Svo rann ég líka á rassinn. Eftir busastandið löbbuðum við Kári Sighvatss. til fundar við Guðrúnu Sóleyju og á leiðinni þangað hófst flippið fyrir alvöru. Við voru að labba upp Suðurgötuna þar sem framkvæmdir standa yfir og á miðri götunni mætum við konu í göngutúr með i-podinn sinn. Þegar við löbbum framhjá konunni kemur það á daginn að þetta var engin önnur en Julia Stiles! Hún var ansi niðurlút en þetta bjargaði samt alveg deginum. Mig langar samt mest að vita hvað hún var að hlusta á. Ég heimsótti Röggu frænku seinnipartinn og fór þaðan til Kára (ekki Sighvatss.) og við bökuðum köku fyrir villta partýið hans. Eftir mikið flakk er ég nú loksins komin heim til mín en fer samt út úr húsi aftur svona nokkurn veginn núna.
Gangið hægt um gleðinnar dyr og flippið ærlega á þessum flippaða fimmtudegi, bara fyrir mig!
Edda
Edda eða Egill kl.
19:49 |
=================
laugardagur, september 04, 2004
Herbalife
Ommigod. Flippaði fimmtudagurinn í gær heppnaðist vel hjá okkur Arngunni en ég er ekki viss með fleiri. Stofnfélagi minn, Soffía Dóra, hefur ekki komið með neinar krassandi sögur.
Angi flippaði, það! Anyways, föstudagurinn sem er nú senn á enda var asskoti vel heppnaður föstudagur. Eftir skóla fórum við Soffía Dóra Jóhannsdóttir og Kári Sighvatssson í bæjarferð; keyptum afmælisgjöf, fengum okkur að borða, mátuðum skó og heimsóttum Thelmu Marínu í Illgresi. Kvöldið var svo tekið með trompi í afmæli hjá G-lo. Gufubað, Hanson, hlaupa í skarðið og fleira. Ég reyni að setja inn myndir þaðan við tækifæri, þegar tæknin er ekki eitthvað að stríða mér. Mér líst vel á að fara að sofa núna.
Myndir komnar.
Edda segir bless.
Edda eða Egill kl.
02:39 |
=================