Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, október 29, 2004


Shiznit

Í dag var mér óskað gleðilegra jóla, af kókómjólkinni minni. Hún fræddi mig einnig um gömlu jólasveinana og taldi upp fullt af nöfnum sem notuð voru yfir þá. Ég segi nú bara "tími til kominn" að einhver fór að óska mér gleðilegra jóla.

Þetta hér er ógeð:

Kelað í sundlauginni

"Tálknfirsk pör og hjón ætla að koma saman í sundlaug staðarins í kvöld, hafa það kósí og kela jafnvel svolítið. Rómantísk tónlist verður í hátölurunum og kertaljós meðfram laugar- og pottabökkum til að magna áhrifin. "Við gerum þetta til að gleðja fólk og halda því betur saman," segir einhver skítablesi, sundlaugarvörður. "Allt svona skiptir máli í fámennu sveitarfélagi." Skítablesinn vonast til að geta boðið rómantískum sveitungum sínum upp á hvítvínstár í kvöld og að norðurljósin dansi á himninum."
-tekið úr Fréttablaðinu, föstudaginn 29. október 2004 (nöfnum hefur verið breytt).

Þetta er nú bara pent orðalag yfir allsherjar tálknfirska orgíu.

Takk og bless, Edda


Edda eða Egill kl. 16:38 |

=================

miðvikudagur, október 27, 2004


I love you like a fat kid love cake

Það væri hlægilegt ef...

Sei, sei, mér var bent á að þessi síða væri farin að vera of einhæf. Ekki satt! Það eru einungis tveir mánuðir í jólin góðu. Hey hó. Soffa og Arngunnur báðar nýbúnar að eiga afmæli. Þær eru heppnar. Og sætar. Ég og Soffa settum heimsmet í brauðáti kvenna í dag. Soffa vann mig samt því hún svindlaði. Mig sundlaði.

Bless. Óþarfi að nafngreina höfund þessarar færslu vegna fjölda ástæðna.



Edda eða Egill kl. 22:31 |

=================



Was ist los?


Edda eða Egill kl. 19:22 |

=================

föstudagur, október 22, 2004


Noj Noj Noj!
Bara mynd af mér í Vesturbæjarblaðinu!


Edda eða Egill kl. 15:24 |

=================



NÝTT Á NÁLINNI
Flippaður fimmtudagur #9

Fjúff, þá er kominn föstudagur sem þýðir jú víst að í gær var fimmtudagur; flippaður fimmtudagur. Já, hann var alveg ágætlega flippaður. Skóladagurinn gekk alveg þolanlega fyrir sig. Ekkert sérstaklega mikið um flipp þar. Eftir skóla fór ég hins vegar upp í tölvustofu með Kárafjára að vinna fuckingshittyverkefni. Ég hló og Kári kvartaði yfir svengd og þreytu svo við gátum eiginlega ekki komist mikið áleiðis. Fyrir daginn í dag átti ég svo að lesa danska kjörbók. Á miðvikudaginn var ég búin með 20 blaðsíður og þurfti því að stúta 160 blaðsíðum á þessum flippaða fimmtudegi. Það tókst! Ég var þó komin með verk í augun og orðið kalt á höndunum svo eftir 100 blaðsíður fór ég í sturtu og fékk mér Cocoa Puffs. Já, já, spennandi bók; Den forsvundne fuldmægtig.

En merkilegt. Fríða litla systir er fórnarlamb verkfallsins og eyðir því ágætlega miklum tíma fyrir framan sjónvarpið. Hún hefur líka tekið upp á því að horfa á gamlar spólur sem við eigum. Um daginn kom Fríða til mín og sagðist hafa verið að horfa á einhverja spólu og á henni var bara einn O.C. þáttur sem hún var ekki viss um hvort ég ætti eða ekki. Því er nefnilega svo farið að O.C. spólurnar mínar eru allar vel og greinilega merktar og ekki var þessi spóla ein af þeim. Anyways, ég leit að sjálfsögðu á þáttinn og þá var þetta enginn annar en Tijuana þátturinn sem ég á sko motherfucking ekki á annarri spólu! Þið getið ímyndað ykkur kæti mína þetta kvöldið.
Svo í gær var Fríða að horfa á gamlan Beverly Hills 90210 þátt sem hún einhvern veginn fann á einni af spólunum okkar. Dave og Donna voru á skemmtistaðnum hans Dave að hlusta á nýja hljómsveit. Mér fannst ég eitthvað kannast við lagið og söngvarann. Bað Fríðu að ýta á stop. Náði í Egil. Ýtti á play og grunur minn reyndist réttur. Kara's flowers!

Fyrrum Maroon 5.



Edda eða Egill kl. 07:35 |

=================

sunnudagur, október 17, 2004


Afmæli!

Yes, kids. Vetrarfrí; það er gott. Mér líður eins og það sé laugardagur í dag. Afmælið okkar Soffu var haldið í gær. Massagaman. Borðtennis, pílukast, fótboltaspil, dans og fleira. Myndir eru komnar og ég hvet alla til að kommenta, kommenta. Ég gisti hjá Soffu og í morgun tókum við til og fengum við okkur pressaðan appelsínusafa úr appelsínunni frá Fannari. Ég fór áðan út í æfingaakstur. Var svo þétt á því að taka af stað í brekku að pabbi hélt ég væri búin að skemma bílinn og hann angaði af lauklykt.
Vei, það er svo gaman að lifa.
Já, kíkið einnig á myndirnar hennar Guggu.


Edda eða Egill kl. 18:49 |

=================

laugardagur, október 16, 2004


Flippaður fimmtudagur #8

Árshátíðin búin og alveg snarflippaður fimmtudagur. Hann var magnaður. Ég var svo upptjúnuð að ég borðaði ekkert nema gulrætur allan daginn. Eftir skólann fór ég í klippingu og tók svo fimmuna heim og hitti engan annan en Egil Halldórsson þar. Ég tók svo til eins og vitleysingur þegar heim kom og hljóp svo til Soffu með fötin og allt ruslið fyrir kvöldið og gerði mig fína þar ásamt Sófíu og Eddu Mac. Það var alveg vesen heimsins að hanga þar með Soffu og svo bara annarri Eddu. Ég var alltaf að svara spurningum sem komu mér ekkert við og Soffa gat bara sagt "Edda, nennirðu að gera þetta" og hún fékk það sem hún vildi því önnur okkar hlaut að taka það til sín. Ég tók að mér að lakka á henni neglurnar, stinga sléttujárninu í samband, hlaupa niður og ná í tyggjó og sitthvað fleira. Veit samt ekki hvort hún bað mig fyrir því öllu. Jáhá, maturinn og partýið var stuð. Fyrir utan Ómar Ragnarsson sem vildi engan veginn hætta að syngja ómótstæðilega flippuðu lögin sín yfir matnum. Partýið var kúl. Ég og Arngunnur læstum okkur inni á klósetti og þurftum utanaðkomandi aðstoð við að komast út. Það endaði með því að hurðin var opnuð á ennið á mér. Sem betur fer eru engin sjáanleg merki þess.
Á leiðinni á ballið ákváðum við Arngunnur, Kári og Sigrún að labba yfir Melaskólavöllinn. Þar hittum við sko hressa verkfallsgaura úr 10. bekk sem voru í körfubolta. Við stóðumst ekki mátið og slógumst í leikinn. Það var ótrúlega skemmtilegt að spila körfubolta í háhæluðum skóm og fínum kjól. Takk, Alli og Ágúst og Gummi og allir hinir. Ballið var svo alveg merkilega skemmtilegt.

Rétt í þessu var ég svo að koma frá Soffu þar sem við stútuðum fjórum kók í gleri og létum öllum illum látum.
Bless, Edda.



Edda eða Egill kl. 01:21 |

=================

miðvikudagur, október 06, 2004


Vaaaá, þessi miðvikudagur er búinn að vera svo flippaður að ég er eiginlega farin að kvíða morgundeginum. Annaðhvort verður hann alveg brjálæðislegur og ég lifi hann ekki af eða þá hann verður bara ekkert flippaður. Mér finnst það seinna líklegra.
Allavegana, dagurinn byrjaði alveg ömurlega leiðinlega og hádegishléið var svo leiðinlegt að ég er ennþá að jafna mig. Eftir hádegishlé var ég í svo vondu skapi að ég gat ekki hugsað mér að fara í tíma svo ég fékk mér bara göngutúr um bæinn í staðinn. Ég gekk um á stuttermabolnum í frostinu því úlpan mín var inni í stofu og það endaði á því að ég var stoppuð af furðulegri konu sem ég átti við alveg einstaklega furðulegt samtal:
Konan: "Þú getur verið svona í dag en þú gast ekki verið svona í gær."
Edda: "Nei, ég veit."
Konan: "Þú ert mjög lekker."
Edda: "Já, takk."

Og svo skildu leiðir okkar.
Skóladagurinn kláraðist án neinna vandræða og eftir skólann henti ég dótinu mínu inn á Íþöku og beið eftir að Soffa og Laufey kláruðu skólann svo ég gæti sníkt af þeim pening. Ég hitti þær, kláraði tölvufræðiverkefni fyrir Soffíu en ekkert varð úr peningssníkinu. Ég endaði á því að fara með Kára í Hallann og fékk þar nammi í hendurnar. Það var ótrúlega gaman í Hallanum. Allir ótrúlega vinalegir og skemmtilegir þó afgreiðsludrengurinn hafi nú reyndar skammað mig fyrir að vera með læti. Eftir Hallaferðina skemmtilegu og miklar vangaveltur ákváðum við Soffía og Laufey svo að skella okkur á Búlluna; eins smekklega og það nú hljómar. Það var líka ótrúlega gaman. Við hlógum svo mikið og vorum svo skemmtilegar að Tommi sjálfur þakkaði okkur fyrir komuna og sagði að það hefði verið gaman að hafa okkur í heimsókn hjá sér.

Næst er komið að klúðri dagsins. Nenni ekki að segja frá því.

Jáhá, þá er sko komið að skemmtun dagsins, ef ekki skemmtun vikunnar. Held ég hafi ekki hlegið svona mikið lengi. Ég fór út í æfingaakstur í fyrsta sinn. Pabbi og Egill voru félagar mínir í þessari ferð. Við komum að rauðu ljósi hjá Melabúðinni. Biðum í smá stund. Grænt ljós birtist. Ég reyni að taka af stað; drep á bílnum. Ég reyni aftur að taka af stað; drep á bílnum. Ég reyni í þriðja sinn að taka af stað; drep á bílnum. Þegar þessum ósköpum er lokið reyni ég í fjórða sinn og viti menn, það heppnast. Það vill nú ekki betur til en svo að þá er komið rautt ljós á ný. Öllum innanborðsmönnum bílsins var alveg sama eftir þetta magnaða stress svo ég bara æði yfir á rauðu ljósi og skil langa röð af bílum eftir fyrir aftan mig. Seinna flautaði einn maður á okkur, skrúfaði niður rúðuna og sagði okkur að það yrði að passa að ég færi ekki yfir á rauðu ljósi; það væri stórhættulegt!


Eftir daginn er ég einnig einu skópari ríkari.
Takk, Edda.




Edda eða Egill kl. 19:17 |

=================

mánudagur, október 04, 2004


Ojæhó!
Magnaður One tree hill þáttur að baki. Ef fólk lagði vel við hlustir mátti meira að segja heyra lag með Phantom planet í bakgrunninum í einu atriðinu.

En jæja, annars er það helst að frétta að ég var í Danmörku um daginn. Fórum hópur úr Kvennó. Kom heim fyrir rúmlega viku.
Við flugum til Köben og vorum þar einn sólarhring. Röltum um Strikið og um kvöldið voru svo skemmtistaðir miðbæjarins kannaðir.
Daginn eftir var svo haldið til í tæplega 4 tíma lestarferð til Sönderborg. Þar hittum við Danina sem komu til okkar í vor.
Tilgangur ferðarinnar var einmitt að klára verkefnið sem við vorum að vinna með þeim í vor. Ég hef aldrei á allri minni skólagöngu unnið eins leiðinlegt verkefni. Þetta var samt alveg ágætt. Unnum verkefnið á morgnanna til hádegis fyrir utan dagana sem farið var í skoðunaferðir og svo var bara frítími.
Á kvöldin var svo undantekningarlaust farið niður í bæ. Og þá oftast á staðinn Maybe not Bob
sem var alveg afbragð. Drykkja 8 daga í röð er ekkert eins slæm og hún hljómar svo ég vitni nú í Lalla Johns (eða sjálfan mig). Maturinn sem við lifðum á var svo lítið annað en Kebab og fransk hotdog með fransk dressing í miklu mæli.

Vissuði að það er nánast ómögulegt fyrir Dani að bera fram LL sem er jú 2 öftustu stafirnir í nafninu mínu. Nokkrir voru alveg búnir að gefast upp og voru farnir að kalla mig "Svampen" en eins og allir vita dregur svampur í sig vökva. Þau virtust greinilega halda að ég gerði það líka.
Meira um ferðina getiði svo lesið einhversstaðar hér ef þið viljið. Ég nenni allavega ekki að hafa þetta lengra.

Nú er svo bara skólinn byrjaður aftur af krafti. 2 próf á morgun og ég varla byrjaður að læra. Skemmtileg nótt í vændum.

Bless í bili

EGILL




Edda eða Egill kl. 21:21 |

=================

laugardagur, október 02, 2004


Flippaður fimmtudagur #6

Vó, ég trúi því ekki, númer sex!

Gærdagurinn var alveg temmilega flippaður. Þeir hafa nú gerst flippaðri en þetta var samt ágætisdagur. Það fyrsta sem flokka má sem fimmtudagsflipp var örugglega þegar ég fór í dönskutíma og fékk lægstu einkunn sem ég hef á ævi minni fengið í dönsku. Ég hélt bara að draumum mínum um að setjast að í Danmörku eða gera eitthvað álíka viturlegt í framtíðinni væri lokið; svo mikið var sjokkið. Í kvöldmat fékk ég svo pylsu með SS-sinnepi, Dijon sinnepi og Salsa sósu. Það var ansi gott.
Flippið náði svo hámarki um kvöldið þegar haldið var á Poxkvöld Nördafélagsins. Mæting fór fram úr vonum allra og stemmningin alveg ógeðslega skemmtileg.
Ég ætla svo að fá að halda hér smá pistil um hana
Soffíu Dóru (hessi'addna dökkhærða), vinkonu mína góðu, en hún hvorki meira né minna en lenti í 5. sæti í þessari mjög svo glæsilegu poxkeppni. Eini maðurinn sem hún tapaði fyrir, þegar hún var þá búin að vinna sig svo eftirminnilega upp í
8-manna úrslit, var enginn annar en maðurinn sem lenti í öðru sæti. Það er ekki slæmt get ég sagt ykkur.
En í poxi er hún
Soffía ekki bara góð. Einu sinni ákváðum við ásamt fleira fólki að taka einn leik í Bocchia. Soffa rúllaði okkur öllum upp og það með stæl.

Takk fyrir mig og bless, Edda.



Edda eða Egill kl. 01:11 |

=================