mánudagur, nóvember 29, 2004
Gúgú!
Ég er kominn aftur. Afsakið hvað ég hef skrifað lítið. Ég get samt útskýrt það. Gleymdi alveg að minnast á það í síðustu færslu en þannig er mál með vexti að daginn eftir að ég skrifaði hana fór ég til Póllands í eina og hálfa viku með krökkunum sem eru með mér í eðlisfræði. Það var alveg frábær ferð og ég stefni á að fara þangað aftur í nánustu framtíð. Ég skal skrifa meira um hana þegar ég nenni og hef tíma.
Annars hefur voða lítið gerst síðan. Ég fór jú á
Beach Boys tónleikana. Þeir voru alveg magnaðir fannst mér enda ein af mínum uppáhaldsuppáhaldsuppáhaldshljómsveitum.
Síðan tókum ég og Gummi að okkur að ræsta í Kvennó í síðustu viku og þangað til upplestrarfríið byrjar á miðvikudaginn. Við erum með efri hæðina í Uppsölum, ganginn og Kvennaklósettið á hæðinni. Ekkert það skemmtilegasta sem ég geri en samt ekkert leiðinlegt. Bara að þurrka af töflunum og borðunum, tæma rusl, setja stóla upp á borð og sópa svo. Stólaparturinn er reyndar svolítið þreytandi til lengdar þar sem þetta eru í kringum 100 stólar samtals sem þarf að lyfta. Síðan ætla ég vinsamlegast að biðja þær Kvennaskólastúlkur sem lesa þetta að ganga snyrtilega um klósettið hliðina á U8 í vikunni. Ef svo óheppilega vill til að ykkur blæði óvart á setuna og niður á gólf þá væri ég afar þakklátur ef þið þrifuð það upp sjálfar. Það var hreint ekkert spes að gera það á föstudaginn.
Vona að þetta svali blogglestrarþorsta ykkar. Ég skal reyna að blogga aftur eftir mánuð.
EGILL
Edda eða Egill kl.
01:32 |
=================
föstudagur, nóvember 26, 2004
Fimmtudagur, eða hvað?
Og hann var meira að segja flippaður og meira að segja númer 14. Ég hef ákveðið að nefna þann dag "Dagur slugsans."Eftir hádegishlé tók ég mér smá göngufrí frá skólanum og fór í orkugöngu um bæinn. Hitti ég ekki hana
Lilju Hrönn og gengum við saman smáspotta. Keyptum okkur inneign og svoleiðis skemmtilegheit. Í síðasta tíma fór ég svo í flippaðasta líffræðipróf heimsins. Ég hló eins og vitleysingur, skrifaði "flippaður fimmtudagur" neðst á prófið og eitt svaranna var "Súsí." Eftir mikil herlegheit fór ég svo að passa í gærkvöldi.
Samtal dagsins:
Edda: Þú gengur frá þessu, Villi.
Egill: Allt í lagi, Vala.
Mér líst vel á hugmyndina mína um linkalistann. Hér með verður listanum breytt á hverjum flippuðum fimmtudegi, nema eitthvað svo magnað gerist að ég þurfi að uppfæra hann oftar.
En það er bara efsta sætið sem skiptir máli, sá sem er númer tvö er ekki í öðru sæti og sá sem er neðstur er ekki taparinn. Þessa vikuna heldur
Arngunnur toppsætinu fyrir að sækja svo hart að mér að færa hana ofar og fyrir að vera flippaði sætisfélaginn minn.
Þegar heim kom úr skólanum í dag fékk ég mér Cocoa puffs, settist fyrir framan sjónvarpið og horfði á The O.C. í svona einn og hálfan klukkutíma. Oliver var sem brjálaðastur, Seth hætti með Önnu og byrjaði með Summer, Seth og Summer sváfu saman, Julie Cooper hætti með Caleb og kyssti Luke, Theresa kom aftur til sögunnar...
Úff, þetta voru góðir tímar, og eru, jú, enn.
Verið sæl, Edda.
Edda eða Egill kl.
18:15 |
=================
þriðjudagur, nóvember 23, 2004
Það er svo notalegt að fara undir sæng þegar maður er þreyttur og kaldur.
Deginum mínum mætti líkja við geðklofasjúkling. Dagurinn byrjaði ljúfur og góður en varð svo bara ömurlegur. Eftir skóla fór ég til augnlæknis og ég var í svo asnalegu skapi að mér leiddist alveg þvílíkt mikið. Ég mætti að sjálfsögðu allt of snemma og að sjálfsögðu seinkaði tímanum svo ég sat á þessari ömurlegu biðstofu í hálftíma áður en ég komst inn. Ég sofnaði sitjandi í stólnum og á þessum stutta tíma tókst mér að dreyma að ég væri að gefa Kára kæfubrauð og hann vissi ekki hvað kæfa var. Asnalegt. Ekki bætti það úr skák að þegar ég loksins komst inn til kvensunnar hringdi síminn hennar og ég hélt hún ætlaði ekki að hætta að tala. Eða hún talaði ekki beint, annað hvert hljóð sem hún gaf frá sér var "mhm" með svona gelgjukellingatóni. Ég varð svo pirruð að ég stakk puttunum í eyrun.
Á leiðinni heim ákvað ég þó að hressa mig við og breytti viðhorfi mínu til dagsins. Vegna þeirrar ákvörðunar varð kvöldið alveg snarflippað. Ég tók vítamín, gerði magaæfingar og lyfti lóðum.
Ég þorði ekki öðru en að fara að óskum Arngunnar og færa hana ofar á linkalistanum. Ég var ekkert að tvínóna við hlutina og nú trónir MC Rangunnur efst á listanum. Kannski ég ætti að koma af stað leik. Þeir sem gera eitthvað flippað, eru einstaklega góðir eða vinna hetjudáð færast efst á linkalistann. Hann mun svo vera uppfærður vikulega. Ég er viss um að margir myndu missa sig í afrekunum, bara til að komast efst á linkalistann minn, ha! Einhverjir myndu jafnvel taka upp á því að stofna bloggsíðu, bara til að komast á listann in ðe först pleis.
Bless og Egillerlélegurbloggari!
Edda eða Egill kl.
21:39 |
=================
mánudagur, nóvember 22, 2004
Helgin búin. Hún var skemmtileg. Á laugardagskvöldið var ansi glatt á hjalla hjá okkur Soffíu Dóru. Heilmikið vesen á okkur og þegar líða tók á kvöldið fengum við Braga Soffufrænda til að skutla okkur í Ánanaustin þar sem við keyptum okkur pizzu og kók og nammi! Enn seinna ákvað Óli lokbrá svo að heimsækja okkur og við sofnuðum báðar í rúminu hennar Soffu. Við vorum þó vaktar með miklum flautblæstri og ég ákvað að hlaupa heim á leið.
Soffa skilar kveðju á bloggið, hún er hér í símanum.
Bless, bless, Edda.
Edda eða Egill kl.
17:04 |
=================
laugardagur, nóvember 20, 2004
The fattest!
Maroon 5 bara nýliði ársins, ha! Ekki slæmt.
Fimmtudagurinn er liðinn en ég man bara ómögulega hvað ég gerði flippað! Það var nú samt eitthvað en ég bara man ekki hvað. Í gærkvöldi fór ég á Sokkaball með fjórða bekknum í mr. Það var alveg þrusugaman. Myndir eru komnar á síðuna hennar Guggu, svo ég auglýsi hana nú aðeins, en ég var ekki með myndavélina mína í för. Þar var dansað, pylsur borðaðar, farið út í göngutúr, líftóran hrædd úr Soffu og Hildi Helgu, hlegið, búnir til englar og hvaðahvaða.
Í dag er ég svo búin að spila á tónleikum og gera tilraun til að fara á tónleika en það heppnaðist ekki alveg.
Jámajáma, mig langar í Malt.
BLess bless bless bless bless bless bless bless bless bless bless, Edda.
Edda eða Egill kl.
18:14 |
=================
föstudagur, nóvember 12, 2004
Flippaður fimmtudagur #12
Jæja, bara flippaður fimmtudagur í gær. Og hann var meira að segja númer 12 (ef bókhaldið svíkur mig ekki). Jú, hann var svo sem flippaður. Á kaffihúsi hitti ég Evu Sólan og Ellý Ármanns, báðar í einu. Og ég sá þær meira að segja faðmast! Sjit! Það eru nú margir sem gæfu fúlgur fyrir að sjá tvær dvergvaxnar þulur faðmast, ha! Í hádegishléinu voru ég og Soffa svo fengnar til að dæma einhverja bolahönnunarkeppni. Það var flipp. Í dag komst ég svo að því að eitt liðanna sem tapaði hefði sakað okkur svindl í dómarahlutverkinu. Nei, ég veit nú ekki alveg hvernig svindl það hefði þá átt að vera. Í gærkvöldi gerðist ég svo innilega flippuð þegar ég lá uppi í rúmi og las Rend mig i traditionerne. Ég sofnaði klukkan átta og vaknaði tveimur tímum seinna og var þá búin að dreyma eitthvað krappísjitt og bókin var komin undir rúm. Ég var svo snarrugluð það sem eftir var kvöldsins. Svo veit ég um fleira fólk sem átti enn þá flippaðri fimmtudag en ég. Endilega segið mér einhverjar skemmtilegar flippaðsfimmtudagsfrásagnir.
En ég held ég hafi aldrei upplifað jafnleiðinlega viku og langdregna. Ég er svo fegin að hún er búin og nú er bara komin alveg æðislega vel þegin helgi.
Hafið það gott, Edda.
Edda eða Egill kl.
16:44 |
=================
miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Krappísjitt
Gærdagurinn var eitthvað svo fyndinn. Ég hló allavega ansi oft og mikið. Það fyrsta var líklega þegar bekkjarbróðir minn var eitthvað að býsnast yfir tyggjóklessu á bókinni sinni. Ég sagði að þetta hlyti nú bara að vera klístur eftir verðmiðann en þá lyfti hann upp bókinni fyrir mig og á henni var bara einhver risastór, hvít tyggjóklessa. Það var svo fyndið að ég er meira að segja að hlæja núna þegar ég skrifa þetta.
Svo var rosa fyndið í strætó á leiðinni úr skólanum en þar mátti líta eineggja tvíbura sem sátu í sitt hvoru sætaparinu og ekki mátti sjá á nokkurn hátt að þeir þekktust.
Þegar á Seltjarnarnesið var komið bjargaði Kári mér frá könguló og sleppti eldhúsbréfinu bara út með köngulónni. Æ, jú hed tú bí ðer. Í þokkabót er "eldhúsbréf" alveg einstaklega fyndið og hallærislegt orð. Dagurinn í dag er búinn að vera skitinn og skemmtilegur. Ég er orðin svo miklum mun fróðari um tennur og tannhirðingu. Í Bandaríkjunum nota flestir Crest Complete tannkremið. Maður á að nota tannþráð einu sinni á dag. Maður má ekki bursta tennurnar oftar en tvisvar á dag.
Jáh, svo eignaðist ég nýja hárspennu í dag. Mín gamla, góða, brúna týndist um daginn og mín gamla, besta, bláa gleymdist í Austria Centrum svo nú er ég komin með enn aðra nýja.
Bledda.
Edda eða Egill kl.
22:41 |
=================
þriðjudagur, nóvember 09, 2004
Þetta er alveg drop dead gorgeous nýtt lúkk hjá okkur!
Edda eða Egill kl.
07:39 |
=================
mánudagur, nóvember 08, 2004
Smáauglýsing!
Getur einhver lánað mér kvikmyndirnar
Clueless eða
Emma í dag!?
Ég tími ekki að leigja þær báðar.
Próf á morgun....
EH
Edda eða Egill kl.
16:18 |
=================
sunnudagur, nóvember 07, 2004
Punkass motherfucker
Þessi helgi er búin að vera með eindæmum fyndin og skemmtileg. Mér þykir leiðinlegt að hún sé búin. En það eru nú ekki nema fimm dagar í næstu helgi.
Föstudagskvöldið var skondið. Ég og Kári fórum í ævintýranlegan leiðangur upp í Grafarvog og sóttum þar Magga og Brynjar. Við stálum eplum og keyrðum um.
Laugardagskvöldið var flippað. Safnast var saman heima hjá Soffíu og ýmsilegt brallað.
Myndavélin var með í för. Við Soffa fórum út í sjoppu, keyptum nammi og síðar kom fleira fólk og joinaði okkur. Ég og Soffa tókum Mr. and Mrs. í bossann og einhverjir spreyttu sig í Singstar. Þegar enginn var eftir nema Soffa, Kári og ég dró Soffa upp einhvern lærdóm sem við skemmtum okkur við fram efir nóttu. Rosalega skemmtilegt kvöld.
Ránsfengur helgarinnar: Fjögur rauð epli, tveir appelsínusvalar, tvær grænar plasttrjágreinar.
Bless, Edda
Edda eða Egill kl.
19:58 |
=================
mánudagur, nóvember 01, 2004
Vóhó! Kreysí One tree hill lokaþáttur!!!
Það gerðist bara næstum allt, allt, ALLT sem gat gerst. Úffípúffí!
Ooog út í annað...Laugardaginn minn. Dadara!
Vaknaði eins og venjulega í kringum 12 og kveikti á sjónvarpinu eins og venjulega og setti á enska boltann á skjá einum eins og venjulega. Frekar slappur leikur svo ég gafst upp í hálfleik og fékk Magga Mis með mér útí í fótbolta. Þegar ég kom að ná í Magga var mér barasta boðinn hamborgari. (klukkan 1 á laugardegi!)Ég stefni því á að verða tíður gestur í laugardagshádegismat á þeim bænum. Eftir matinn var svo haldið út á heimavöll minn við Hagaskóla og sparkað á milli marka. Maggi vann 15-11 og svo fór ég heim.
Eftir stuttu sturtu lá svo leiðin út á Álftanes í 8 ára afmæli hjá
Hannesi Kristni frænda. Þar belgdi ég mig meðal annars út af alskonar kræsingum og horfði á
Liverpool leikinn.
Um 7 leytið var svo örstutt Svefnþornæfing og stuttu eftir hana var partý hjá 2 2. bekkjum í Kvennó, 2-NA og 2-FF, bekknum hennar Lilju. (4x2 í sömu setningu). Þar var glatt á hjalla og ég þakka bara kærlega fyrir mig. Á samt ennþá eftir að ná stimpli af hálsinum á mér og kroti af maganum á mér eftir partýið en annars alveg óskaddaður.
Maggi (ekki sami Maggi og áðan) leit við og var svo elskulegur að skutla okkur Lilju heim.
Á sunnudaginn vaknaði ég svo skítþunnur sem hefur ekki gerst í marga mánuði. Það var samt ekkert sem svefn til 4, róleg og góð tónlist, sturta og panodill gátu ekki læknað.
Núna er ég svo sprækur sem lækur og er farinn að lesa 90 bls. í Sölku Völku fyrir morgundaginn. Verð samt að vera fljótur og fara snemma að sofa líka því ég stefni á 100% mætingu þessa vikuna. Ykkur er velkomið að heita á mig eða efna til veðmáls um hvort mér takist það en það er alla vega stefnan.
Bless Bless
EGILL
Edda eða Egill kl.
23:57 |
=================