Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, desember 31, 2004


Hneisa

Ókei, HVAÐ er í gangi! Hver setti þessa viðurstyggilegu "gellu" inn á síðuna? Það var allavega ekki ég og enginn bar neitt undir mig. Bara einhver shakin' lafandi rass þegar maður mætir á síðuna. Ég vil losna við hana sem fyrst.
Fólk sem ég gruna:

Þessi fiðlugaur er fínn en ef þessar myndir eiga að representa okkur systkinin þá segi ég NEI!



Edda eða Egill kl. 13:49 |

=================

miðvikudagur, desember 29, 2004


Ég er hjá Soffíu Dóru. Helga er hér líka. Þóra er farin. Soffa sagði við mig áðan að hún væri komin með leið á að það væri alltaf "sama helvítis bloggið" á síðunni. Ekki það að þetta sé eitthvað pittíblogg. Ég ætlaði að blogga í dag hvort eð er. Það má segja að dagurinn í dag sé minn eiginlegi fyrsti frídagur því ég er búin að vera að vinna svo mikið í Úlfarsfellinu góða. Ég hélt vel upp á það og fór fyrst út úr húsi klukkan níu að kvöldi til. Var bara inni í leti með Kára. Las, horfði á sjónvarp, borðaði mat og fleira. Og nú er ég stödd hér hjá Soffu eins og segir að ofan. Ég, Soffa, Helga og Þóra fórum í magnaða sjoppuferð. Við hittum karlfyrisætuna Jakob sem ég hef litið hýru auga síðan í níunda bekk. Þegar við komum aftur út í bílinn sögðu stelpurnar mér að hann væri hommi. Get ekki sagt að það hafi verið vonbrigði.

Í janúar ætla ég að versla.

Áramótin verða annaðhvort frábær eða ekki góð.

Edda


Edda eða Egill kl. 02:25 |

=================

fimmtudagur, desember 23, 2004


Ég er jólalagahöfundur Rásar 2 árið 2004, thank you very much!

Í kringum hálf fjögur í gær hringdi Andrea Jónsdóttir útvarpskona í mig og sagði mér að það liti út fyrir að við hefðum bara unnið og spurði hvort við gætum ekki komið upp í Efstaleiti sem fyrst. Brynjar skutlaði okkur þangað á póstbíl og við vorum komnir fyrir 4. Þegar þangað var komið tók Andrea á móti okkur og við vorum leiddir inn í stúdíó. Þar settumst við niður við hringborð með fimm míkrafónum, ég, Kári, Guðni Már, Andrea og dægurmálaútvarpsmaður. Auk þeirra var dægurmálaútvarpskona í beinu sambandi frá Akureyri.
Eftir fréttir og auglýsingar var svo tekið viðtal við okkur og okkur afhent verðlaunin.
1, 2 og:
- Miðar á Hróarskeldu
- Gjafarbréf frá Iceland Express uppá ferð fram og til baka frá Danmörku fyrir 2.
- Tivoli útvarp
- 15 geisladiska
- 4 DVD myndir(eiginlega 7 samt, einn pakki)
- Popppunktsspil (áritað af Dr. Gunna!)
- 50.000 króna bensíninneign frá Orkunni
- 3 gjafabréf fyrir 2 (=6) á American Style.
- Blómvönd.
- 3 viðurkenningarskjöl.

Eftir það settumst við í sófa frammi og myndatökumaður tók myndir af okkur fyrir 10 fréttirnar.

í dag skildum við Kári svo, þ.e.a.s. skiptum öllum sameiginlegum eigum okkar.
Það gekk áfallalaust þó erfitt hafi verið að velja sér geisladiska.
Tókum hraðaspurningaspjald úr poppunkti upp á hver fengi Rabba diskinn. Kári vann 3-2. Síðan þurfti ekkert minna en heilan Poppunkt til að útkljá hver fengi Kalla Bjarna og hver Jón Sigurðsson. Eftir æsispennandi spil þar sem ég var hvorki meira né minna en sendur í meðferð þegar ég átti 3 reiti eftir með örugga forystu fyrir að vakna á Hellu með risastórt Love Gúrú tattú á bakinu. Kári komst þá framúr og vann sannfærandi og hlaut Kalla Bjarna diskinn að launum.

Draumurinn er svo að halda upp á sigurinn með stærðarinnar teiti, Popppunktskeppni, Igore og Jóhann Már Jóhannsson á fóninum og mandarínur að borða. Svo gæti vel hugsast að Hvítir mágar stigi á stokk.

Að lokum vil ég svo þakka öllum kærlega sem kusu okkur eða kusu okkur ekki en héldu með okkur og óska ykkur gleðilegra jóla!

EGILL


Edda eða Egill kl. 01:34 |

=================

föstudagur, desember 17, 2004


Uppáhaldshátíðin mín

Ég var að vafra eitthvað á netinu áðan og rambaði inn á Popplandssíðuna.
Þar er skemmtileg keppni í gangi; jólalagakeppni rásar 2.
Tæplega 40 frumsamin lög voru send inn (talan 70 einnig heyrst) og 7 þeirra valin af dómnefnd í úrslit.
Tveir ungir drengir, annar úr vesturbænum og hinn af nesinu, sendu inn lag sem merkilegt nokk komst í úrslit.
Lagið heitir Uppáhaldshátíðin mín og finnst mér það langbesta lagið. Ég hvet alla til að hlusta á og kjósa það, jafnvel ef ykkur finnst hin lögin betri. Hægt er að kjósa það á popplandssíðunni eða með því að senda smsið "ruv jol 1" í síma 1900. Ef lagið vinnur er ég tilbúinn að gefa nokkrar mandarínur úr verðlaunahaugnum.
"Það skiptir máli að velja rétt"

EGILL



Edda eða Egill kl. 14:59 |

=================

fimmtudagur, desember 16, 2004


Linkalistinn

ÞÁ er Gugga komin efst. Snúllan orðin 17 ára og ég á leið í afmælisboð til hennar. Ég held að það sé nógu góð ástæða til að Gugga þjóti á toppinn.

Varð bara að tilkynna þetta, annars hefði ég kannski verið barin.



Edda eða Egill kl. 19:30 |

=================

miðvikudagur, desember 15, 2004


Þá eru prófin búin. Sem er gott. Rosa góður dagur. Eftir prófið fórum við ýmsar stúlkur í bæinn en svo skildu leiðir okkar og ég og Soffa enduðum tvær á kaffihúsi. Þar sátum við í makindum okkar þangað til Soffa kúgaði mig til að koma með sér í Kringluna. En ég er henni þakklát þar sem ég kom heim með eitt par af buxum og svo sáum við líka svooo marga fræga. Hefði ekki viljað missa af því, ha! Jón Sigurðsson (hittum hann í La Senza), Arnar eða Bjarki Gunnlaugsson, Tiny og Klara í Nylon. Svo kom bílstjórinn að sækja okkur, við keyrðum um og fórum svo heim. Í kvöld er svo stefnan sett á jólatónleika Kvennaskólakórsins og svo Kvennaskólapartý. Rosalegt!

Hér má svo líta myndir sem mér þykja rosa skemmtilegar:

Kalli

Silli

Villi

Bob


Edda eða Egill kl. 18:00 |

=================

mánudagur, desember 13, 2004


Já, ég setti víst líka inn einhverjar myndir frá helginni.

Við Egill erum búin að vera ein heima þessa helgina sem er ansi þægilegt. Hún er þó búin að fara í lærdóm að miklum hluta. Þar sem við Egill erum ansi vanhæf um að elda okkur mat sem hægt er að borða fengum við Kára til að elda fyrir okkur á föstudaginn og Lilju á laugardaginn. Í gær gerðum við Egill svo tilraun til að sjóða okkur pylsur sjálf. Allt leit vel út framan af þangað til við gleymdum að slökkva á hellunni og pylsurnar sprungu allar og duttu í sundur.

Miklar deilur hafa brotist út í sambandi við linkalistann góða. Ástæðan fyrir því að ég setti Sigríði Gyðu efst á listann er sú að ég gat ómögulega ákveðið hvor ætti að fara efst; Lilja eða Gugga. Svo kom Sigga og sagði að sér væri "skítsama um linkalistann" og sá ég mér þá leik á borði og smellti henni efst, kellunni. Bara af því ég var í svo óneitanlega flippuðu skapi, enda fimmtudagur og ekki hægt að álasa mér fyrir neitt.

Þeir sem ekki eru komnir með nýju gerðina af msn (BETA) ættu að redda sér henni hið snarasta.


Edda eða Egill kl. 11:41 |

=================

sunnudagur, desember 12, 2004



HAH, ég kann sko líka að gera svona!


Edda eða Egill kl. 15:57 |

=================

fimmtudagur, desember 09, 2004


Í dag er flippaður fimmtudagur númer eitthvað. Lítið er hægt að flippa í prófum en flipp dagsins í dag er að leyfa mér að blogga. En hver er ég?

Ég mæli með því að fólk kynni sér útgáfu Sauðkræklinganna í VON á laginu Jólahjól.
Ég mæli með því að sem flestir setji sér það takmark að kyssa Pál Óskar Hjálmtýsson.
Ég mæli með því að fólk neiti sér aldrei um helgun því það er eðlilegasti hlutur heims.

Þá er það þraut, með hvaða hljómsveit er eftirfarandi textabrot?

Why is the message pending, where the fuck are they?


Og í hvaða kvikmynd er þessi setning?

Ættleiddu mig, pápi minn!


Annars bað Edda mig um að setja Siggu Gyðu efst á listann góða.

Er ég búinn að flippa nóg í dag?
Jón Sigurðsson, Idolstjarna, getur ekki klappað á tveimur og fjórum í einföldu lagi. Samt er hann með ótrúlega mjúka og fallega rödd. Þegar hann segir ,,let me die by your side" er ekki laust við að manni hlýni um hjartarætur.
Talað er um að óregluleg hlutfallsstyrking sé best til árangurs, þess vegna eru spilafíklar til. Væri þá ekki gráupplagt að ráða fólk í vinnu og gefa þeim laun stundum og stundum ekki? Það væri kannski gott fyrir spilafíkla í meðferð að vera í svona vinnu þar sem á hverjum degi er spenna um hvort manns bíði feitur tékki (eða feitur Júgóslavi sem lemur þig í spað). Mætti í því samhengi nefna að helmingur tríósins Placebo (borið fram pleisbó) er samkynhneigður.

Ég kveð með ljóði:

Helsi og hælsæri eða frelsi og frælsæri?
Maður hlýtur að spyrja sig.


Edda eða Egill kl. 14:15 |

=================

laugardagur, desember 04, 2004


Stundin sem við öll höfum beðið eftir er loks runnin upp. Sunday Morning með Maroon 5 er komið í spilun á Popptíví, Rás 2 og FM 95,7.

Í dag voru svo sörveraðar á heimilinu verstu frönsku kartöflur sem sögur fara af:

Pabbi: Edda, smakkaðu þessar frönsku kartöflur og segðu mér hvað þér finnst.
Edda: Hmm... þetta bragðast eins og skemmdur fiskur.
Pabbi: Já, einmitt það sem ég hélt.


Edda eða Egill kl. 22:04 |

=================

fimmtudagur, desember 02, 2004


Oh, my fokking gohod (híhíhí;)) Það er kominn fleppaður femmtudagur, mar! Það er ýkt gegt. Ég ætti sko eilla að vera að læra fyrir söguna á morgun en, æ só, mér er alleg sama. Tss... ég gef bara skít í'ana, mar. Tíhíhí ;););) Úff, þessi dagur er bara búinn að fara í eikka rugl. Ég er bara búin að vera inni að rotna, gegt ömó, ekkað!:( :( :( Þessi saga er sko alleg að fara með mig, mar. Oh, ég hlakka svo til þegar essi próf eru búin!!!!!!! Ég er búin að vera bara í allan dag í einvherrum ógisslegum heimafötum, líður gegt asnalega. Díses. Æ, ég hef ekkert að segja, mar. Bara þúst, þið eruð æðisleg og bra endilega skrifa eikkvað kúl komment :* Æ, ég ætla halda áfram að læra. Hey, já, svo er ég búin að setja Kára minn krúttubollurassgat (mússímúss;););)) efst á linklalistann!!!!! ;) Bara..... þúst, boj, boj.


Edda eða Egill kl. 21:02 |

=================