Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


mánudagur, janúar 31, 2005


Magnaður skítur!

Á tuttugu dögum eru rúmlega 1200 manns búnir að skoða síðuna okkar góðu (smá egóflipp, ég skal hætta að setja inn myndir af okkur sjálfum).

Síðastliðna viku var ég farin að taka óneitanlega mikið eftir vaxandi áfengislykt inni í herberginu mínu. Alltaf þegar ég steig inn í herbergið fann ég keim af þessu áfengi. Mér fannst það þó skrýtið þar sem ekkert áfengi var inni í herberginu, en svo fattaði ég það. Appelsínan sem Fannar gaf mér í afmælisgjöf var farin að mygla!

Edda



Edda eða Egill kl. 21:54 |

=================

sunnudagur, janúar 30, 2005


Asnahelgi, kúkur.

Hún var ágæt þó ekki sé hún búin enn. Föstudaginn fór ég í Kringluna Soffu með. Það var flipp og typp. Störðum á brjóst og hittum óvini. Fór til Kára um kvöldið eftir góðan kvolitítæm með Agli. Dagurinn í dag var sérstakur. Eftir hádegi fórum við Kári að sækja Helgu Svölu upp í Tónó Reykjavíkur. Þar vildi ekki betur til en svo að ég hitti bæði Arngunni og Lenu. Það var ógisslega skemmtó. Síðan löbbuðum við Kári líka niður Laugaveginn og hittum svo mikið að skrýtnu fólki að ég á ekki orð. Lækjartorgið var sérstaklega skrýtiðfólksmikið. Þar var rónakona að tala við rónamann. Hún var að fara í Ríkið að kaupa sér pela, eins og hún orðaði það, en hún átti þó ekki pening fyrir gyllinæðarkremi. Hún var að drepast, gat hvorki setið né sofið með góðu móti.
Svo var feitur maður að hlaupa á eftir strætó en náði honum ekki. Þá æpti hann: "Ertu blindur, mannandskoti," rosa hátt á miðju Lækjartorgi. Ég hræðist hann enn.

Edda




Edda eða Egill kl. 01:04 |

=================

mánudagur, janúar 24, 2005


Góð helgi að baki. Á föstudaginn fór ég til Lenu þar sem við stúlkurnar höfðum það skemmtilegt með sangrí og léttum danssporum. Myndir þaðan má finna á myndasíðunni minni (og síðunni hennar Guggu). Eftir miðnætti fór ég með Thelmu og fleirum á Gauk á Stöng en við stoppuðum þó stutt. Thelma skutlaði mér síðan út á Seltjarnarnes í afmæli þar sem Kári dvaldist.
Laugardagurinn fór í bæjarráp en um kvöldið komu Soffa, Arngunnur og Laufey til mín. Við snarflippuðum og héldum svo í party þar sem hlutföllin voru 7 mr-ingar á móti svona 40 mh-ingum. Það var athyglisvert.
En nú er enn önnur vikan hafin. Á morgun er þriðjudagur og þá er sko ekki mikið eftir :S

Edda


Edda eða Egill kl. 16:44 |

=================

föstudagur, janúar 21, 2005


Flipp

Velflippaður fimmtudagur í gær. Söngkeppnin var stórskemmtileg og ballið alveg creisý. Eftir söngkeppnina fórum við Soffa heim til hennar, klæddum okkur, máluðum okkur og þegar við vorum orðnar fínar heimtaði mamma hennar Soffu að við fengjum okkur eitthvað að borða. Við fórum því upp í sparidressinu og fengum okkur franskar, kjúkling og kók. Eftir máltíðina hringdum við á leigubíl og hann skutlaði okkur heim til Önnu Katrínar þar sem við héngum þar til ballið byrjaði.
Ballið varð svo alveg brjálað. Ég dansaði svo mikið að annað eins hef ég ekki séð. Ótrúlega skemmtilegt. Þóra skutlaði svo mér og Kára á Tómasarhagann eftir ballið og þar hélt flippið áfram.
Sjeise, sko. Við vorum að bursta á okkur tennurnar og Kári missti tannkremstúpuna á úlnliðinn á mér. Þetta var nú bara tannkremstúpa en samt var þetta brjálæðislega vont. Eftir svona hálfa mínútu er komin stór kúla á hendina á mér, grjóthörð kúla. Kári hélt að ég væri handleggsbrotin, svo illa leit þetta út. Ég er mjög viðkvæm á allt svona ógeð svo eftir að hafa starað á þetta í smástund varð mér ótrúlega óglatt. Svo hitnaði mér í andlitinu og fór að svima og sortnaði fyrir augum eins og það væri að fara að líða yfir mig. Ég settist á kalt baðherbergisgólfið og það bjargaði mér alveg. Mér leið síðan betur og gat farið að sofa. Nú er kúlan að mestu farin en eftir situr fallegt, rautt og fjólublátt, upphleypt mar á úlnliðnum. Allt út af einni tannkremstúpu!

Edda


Edda eða Egill kl. 14:35 |

=================

þriðjudagur, janúar 18, 2005


Skralló!
Ég fór á bíó um helgina. Sá mynd sem heitir Lemony Snicket's A Series of Unfortunate Events. Ég hafði ekki hugmynd um um hvað hún væri en svo var þetta bara fínasta mynd. Kom mér mjög á óvart. Mæli með henni.

Á sunnudaginn drakk ég kaffi í sturtu. Mögnuð upplifun.

Svo fer óðum að styttast í að ég leggi í hann til Chile. 2 og hálfur mánuður þangað til og ég er strax farinn að hlakka til. Veit samt voða lítið um landið en ég vona að það sé svipað og Uruguay. Fór þangað síðast þegar ég fór til S-Ameríku og það var mjög gaman.

EGILL


Edda eða Egill kl. 20:34 |

=================

mánudagur, janúar 17, 2005


Komnar nýjar myndir úr afmælinu hennar Thelmu.


Edda eða Egill kl. 18:44 |

=================

sunnudagur, janúar 16, 2005


Það er örugglega stuð að heita Þorsteinn. Mér finnst allavega gaman að þekkja mann sem heitir Þorsteinn. Það finnst Arngunni örugglega líka því eitt af okkar aðalaðhlátursefnum í tímum er að finna ný nöfn á Þorstein, bekkjarfélaga okkar. Honum finnst það líka gaman.
Dæmi um gælunöfn á mann sem heitir Þorsteinn eru Þossi, Steini, Þorskur, Skorsteinn, Skorri (stytting á Skorsteinn) og nú það nýjasta; Þorsti. Einnig er gaman að slá um sig á ensku og nota nafnið Thirst!


Edda eða Egill kl. 18:26 |

=================

laugardagur, janúar 15, 2005


Eitt heitt og splunkunýtt á listanum sem flýgur beint í toppsætið er nýtilkomið blogg þeirra Soffíu Dóru og Þóru. Svo hefur Sváralinkurinn tekið á sig nýja mynd og ég tók mér bessaleyfi og henti fólki út af listanum sem ég veit ekki einu sinni hvernig lítur út.

Þessi hressleiki hér að ofan er að mestu leyti bara uppgerð þar sem ég er búin að vera veik í þrjá daga. Ég held ég sé þó að hressast því í nótt fór hitinn úr 39,5 í 37,5 svo mér líður allavega betur. Ég er búin að gera mest lítið annað en að liggja uppi í rúmi, hlusta á Gettu Betur í útvarpinu, horfa á The O.C. og taka Panodil. Átta panodil á tveimur sólarhringum.
Svo dreymdi mig að þessi maður rændi mér. Ég var ekki alveg með réttu ráði.

Edda


Edda eða Egill kl. 11:13 |

=================

miðvikudagur, janúar 12, 2005


Ég ætla ekkert að hafa langa tölu en þetta er komið í hús! Mikil gleði og hamingja.

Svo, takk, Lilja, fyrir teljarann.

Edda


Edda eða Egill kl. 15:43 |

=================

mánudagur, janúar 10, 2005


Vitiði hver leikur í nýja Hanson myndbandinu!? Engin önnur en Anna úr O.C. ! Ætli Hanson bræðurnir búi þá líka í Pittsburgh....

EH


Edda eða Egill kl. 01:09 |

=================

fimmtudagur, janúar 06, 2005


Já, eins og ég sagði; tuttugasti flippaði fimmtudagurinn! Hann var alveg svolítið snúbbíflippaður. Það sem ég er stoltust af er að hafa teiknað hjarta á gsm símann hennar Arngunnar og að hafa stolið steinhnullungi ú 66°N búðinni og svo hrinti ég Arngunni á bekk. Annars gerðist ekkert mikið merkilegt nema ég var í flippuðu skapi.

Arngunnur var tvímælalaust flippfélagi minn þennan fimmtudag svo hún litla músin fær að fljúga efst á linkalistann, í annað sinn að mig minnir! Vei!


Edda eða Egill kl. 21:51 |

=================



Flippaður fimmtudagur númer 20, pípúl! Gerið eitthvað magnað!


Edda eða Egill kl. 13:48 |

=================

miðvikudagur, janúar 05, 2005


Edda: Hver á þennan I-pod?
Soffa: Stevie
Edda: Ha!
Soffa: Nei, úps. Ég var að hlusta á Stevie Wonder!


Edda eða Egill kl. 16:19 |

=================

sunnudagur, janúar 02, 2005


2005

Gamlárskvöld, já. Það var skemmtilegt. Ótrúlega skemmtilegt. Var í veislu hér heima en eftir miðnætti fór ég ásamt Agli og Lilju til Helgu í hið árlega (allavega síðustu tvö ár) áramótapartý. Ég skemmti mér magnaðvel. Við dönsuðum við Dáðadrengi og sitthvað fleira. Í byrjun partýsins lenti ég á "Ég hef aldrei" með einhverjum Kvennópíum. Það var skrautlegt en þegar einhver sagðist aldrei hafa verið hnefaður þá gekk ég út. Fann að þetta var ekki beint minn félagsskapur.
Klukkan sjö var kominn stemmning í mig og mína að fara að tygja sig heim á leið. Ég, Kári, Egill, Lilja og Maggi yfirgáfum því samkvæmið. Á leiðinni var mikið brasað og bullað en þegar að vegamótum kom ákvað ég að senda Egil og Lilju heim og ég og Kári tókum að okkur að labba á BSÍ með Magga. Ekki sé ég eftir því, því þessi ferð var skrautleg og skemmtileg. Við fengum okkur að borða á BSÍ, eignuðumst vin og þá var bara að koma sér heim. Við vorum komin á þá niðurstöðu að labba bara meira en komu þá ekki Yngvi og Toni (!) og voru svo góðir að skutla okkur heim. Bílferðin var speisuð og Maggi varð svo sár út í mig af einhverjum völdum að hann strunsaði út úr bílnum án þess að kveðja og hvarf fyrir horn. Þó er allt í besta lagi núna og hef ég ákveðið að sejta Magga litla efst á linkalistann að þessu sinni fyrir gott stuð.

Ég vil svo bara þakka öllum sem ég skemmti mér með þetta kvöldið fyrir frábæra skemmtun.
Myndir koma eftir skamma stund en þær segja ef til vill meira um stemmningu kvöldsins heldur en þessi orð mín. Bless, Edda.

MYNDIR


Edda eða Egill kl. 13:15 |

=================