Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, febrúar 25, 2005


Flippsen!

Endilega kíkið á árlega pistilinn hans Egils hans hérna fyrir neðan.

Ég er búin að uppgötva nýjan munað í lífið en það er súkkulaðihjúpað Oreo kex, (myndin er ekkert hallærisleg, nei, nei).

Fimmtudagurinn í gær var flippaður að því leiti að ég var í fýlu stóran hluta dagsins. Nei, ekki alveg. Ég fattaði ekki að það væri flippaður fimmtudagur fyrr en í hádegishléinu. Í tilefni þess

Eftir skóla var ótrúlega skemmtilegt því ég og Soffa fórum heim til hennar, fengum okkur brauð og oreo kex og töluðum út í eitt. Svo kom gasmaðurinn og gerði við eldavélina og það var sko skemmtilegt! Eeeen eftir kvöldmat missti ég mig í flippinu. Ég, Kári, Egill og Lilja hittumst heima hjá Magga mús og horfum á fyrsta O.C þáttinn í annari seríu. Sjæt, segi ég nú bara. Eftir þáttinn og hangs fórum við Kári heim til hans þar sem ég gerðist eirðarlaus og Kári þuldi ofan í mig Hitch-hikers guide upplýsingar fyrir prófið sem var í dag.

Edda



Edda eða Egill kl. 14:18 |

=================

fimmtudagur, febrúar 24, 2005


Pétur Teitur Teitsson

Pétur Teitur Teitsson póstberi fæddist á Landsspítalanum í Reykjavík 12 janúar 1905. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði 20. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Teitur Magnússon sjómaður f. 1880, d. 1968 og Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 1862, d. 1964 Systkini Péturs eru Kristín Teitsdóttir kennari, f. 1915 og Margrét Teitsdóttir bóndi, f. 1920. Pétur giftist 1934 Ragnheiði Grímsdóttur rostungatemjara, f. 1908.
Börn þeirra eru: Ragnar Pétursson skipstjóri, f. 1935, Rúnar Pétursson veðurfræðingur,
f. 1935 og María Pétursdóttir skokkari, f. 1940.
Pétur ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur til 12 ára aldurs en þá fluttist hann ásamt fjölskyldu sinni til Perú. Þar lagði hann stund á útsaum auk þess sem hann gekk í alþjóðlega málaskóla. Árið 1925 útskrifaðist Pétur með stúdentspróf frá skólanum og flutti þá heim. Hann lærði Guðfræði við Háskóla Íslands og að loknu námi 1931 hóf hann störf hjá Pósti & Síma (nú Íslandspóstur) sem póstberi og starfaði þar allt til ársins 1999 er hann settist í helgan stein.
Pétur var einn stofnenda bókaklúbbsins Jörundar og var árið 1990 gerður að heiðursfélaga klúbbsins. Hann var einning virkur meðlimur þjóðkirkjunnar alla tíð og vann mikið með Hjálparstarfi kirkjunnar.
Útför Péturs fer fram við Neskirkju mánudaginn 28. febrúar.


Edda eða Egill kl. 00:10 |

=================

miðvikudagur, febrúar 23, 2005


Talandi um Has been!

Man einhver eftir þessum?
Nei, ekki ég heldur!

Edda


Edda eða Egill kl. 16:36 |

=================

laugardagur, febrúar 19, 2005


Í morgun vaknaði ég snemma og eyddi tveimur klukkutímum af morgninum með Sigurði Flosasyni og um það bil tuttugu öðrum flautuleikurum. Það reyndi á taugarnar.
Eftir æfinguna fór ég til Kára. Við fórum síðan heim til mín og þaðan niður í bæ. Veðrið var ótrúlega gott og huggulegt. Við löbbuðum upp Laugaveginn og enduðum í Sundhöllinni með stoppi í Aðalsjoppunni þar sem við keyptum malt og nammi. Í Sundhöllinni var stuð enda Iceland Fashion tískusýning í gangi þar sem elskulega barnið mitt fór á kostum. Síðan var það bara strætóinn heim og kvöldmatur borðaður. Eftir mat komu Soffía og Kári til mín og við horfðum á Thunderpants og hlógum.

Kannski fá að fjúka inn einhverjar myndir frá sýningunni eða kvöldinu. Kannski, krakkar, kannski! Svo vil ég lýsa ánægju minni með þáttöku fólks í Kviss jor frends prófinu mínu. Þið standið ykkur vel. Ef einhver vill sjá stigatöfluna er bara hægt að klikka á prófið.

Edda


Edda eða Egill kl. 22:42 |

=================

föstudagur, febrúar 18, 2005


Klikkaður dagur.

Ég og Soffa erum búnar að vera saman í allan dag og þá hlýtur hann sko að hafa verið klikkaður. Eftir skóla byrjaði vitleysan og var að enda núna klukkan sex. Við tókum einn rúnt um bæinn. Fórum inn í Vero Moda. Þar mátaði Soffa eina kápu á meðan ég glossaði mig í speglinum. Soffa vippar sér hinum megin við hornið og heyri ég hana ekki segja: "Ég ætla bara að fá þessa kápu."
"Soffa, er ekki í lagi," er það fyrsta sem ég segi en stuttu síðar löbbum við út úr búðinni og Soffa í nýju kápunni sinni. Það var skemmtilegt. Við tókum strætó heim til Soffu þar sem við fengum okkur grillbrauð og sólberjasaft. Spjöllum við mömmu hennar Soffu og Soffía tjáir henni, eins og ekkert sé eðilegra, að ég sé ólétt (sem ég er bæ ðe vei ekki). Svo hlussuðumst við niður með Birtu og tókum könnunina. Vorum þó sammála um að ekkert væri í hana varið. Svo hengdum við upp úr þvottavélinni og hlógum eins og grísir. Klikkaður dagur, enda við svolítið klikkaðar.

Bless, Herranótt í kvöld, skemmtilegt.
Edda


Edda eða Egill kl. 17:47 |

=================

fimmtudagur, febrúar 17, 2005


Eftirlýstur!

Lýst er eftir manni. Síðast sást til hans aldrei. Ekki er vitað hvernig hann lítur út og ekki vitað hvernig fötum hann var í. Ekki er vitað hvar hann á heima og ekki vitað hvað hann er gamall. Hann heitir ekki neitt en gengur þessa dagana undir nafninu Ónefndur aðdáandi!

HVER er þessi ónefndi aðdáandi sem fékk 100 stig á kvissinu mínu. Ekki Kári, ekki Soffa, ekki Egill. Þetta er dularfullt. Gefðu þig fram!

Edda


Edda eða Egill kl. 17:53 |

=================



Ég er hermikráka en einnig flippari svo ég ákvað í tilefni dagsins að búa til Kviss jor frends próf sem finna má hér til hliðar.

Take it, or leave it.


Edda


Edda eða Egill kl. 13:40 |

=================

mánudagur, febrúar 14, 2005


Í líffræðitíma voru ég og Kári Hvatsa. að hlusta á i-podinn minn og þá hótaði kennarinn að klippa snúruna í sundur. Ég blótaði honum í hljóði.

Í gær fór ég til ömmu og afa og inni á baði sá ég andlitskrem sem heitir Pure Poison.

Edda


Edda eða Egill kl. 16:03 |

=================

föstudagur, febrúar 11, 2005


Flippaður fimmtudagur og árshátíð

Gærdagurinn var flipp eins og fimmtudögum sæmir. Árshátíðin setti svip sinn á daginn en samt ekki allan. Þó ég ætti frí var ég komin á fætur klukkan hálfátta og fór þá með Kára og Sveini í Árbæjarlaugina. Eftir sundið fór ég í morgunpartý til Arngunnar. Við borðuðum bakarísmat, spiluðum Party og co. og fórum í þokkalega flippaðan leik sem heitir Big booty! Ógeðslega skemmtilegur. Flipp samkomunnar var samt örugglega þegar Kári Hvatsa. kýldi klakaboxið hennar Arngunnar og braut það í spað. Ég tók strætó heim og gleymdi að fara út á stoppistöðinni minni. Kreisí flipp. Seinni partinn fór ég til Soffu þar sem við tókum okkur til saman og fórum svo út að borða, ég með mínum bekk og hún með sínum. Eyjólfur stærðfræðikennari kom með okkur út að borða. Ég reyndi að halda uppi málefnalegum samræðum svo ég fór að tala við hann um i-pod og spurði hvort hann horfði mikið á The O.C. Maroon 5 kom víst líka eitthvað við sögu þarna. Jú, jú, ég get alveg talað um eitthvað annað.
Eftir matinn var haldið í flippað partý hjá Ling. Við fórum í Sing Star þar sem mér tókst að ná Superstar í This Love með 8900 stig og svo fórum við að sjálfsögðu aftur í Big booty.
Ballið var skemmtilegt. Quarashi kúl.

Edda


Edda eða Egill kl. 18:49 |

=================

sunnudagur, febrúar 06, 2005


Helgin búin og ansi stutt í árshátíðina góðu sem allir bíða í ofvæni eftir. Helgin er búin að vera mjög "girlie." Á föstudagskvöldið áttum við Soffa Dóra góðan kvolitítæm saman. Við fengum okkur kvöldmat á Eldsmiðjunni og löbbuðum síðan niður í bæ. Þar settumst við á Café Paris og sátum þar eitthvað fram eftir kvöldi. Laugardagurinn var menningarlegur. Ég og Kári fórum á tónleika hljómsveitar Tónlistarskóla Reykjavíkur í Neskirkju og fíluðum okkur vel í slitnu gallabuxunum okkar hliðina á menntasnobburum. Samt mjög skemmtilegt, hlustandi á Arngunni og Helgu Svölu. Um kvöldið fór ég til Thelmu Marínar þar sem ég, hún, Bergþóra og Brynja bjuggum okkur til pizzu sem ég bæ ðe vei brenndi mig á svo ég þurfti að vera með hendina í skál allt kvöldið og er núna með útbrot. Síðan komu Sigrún, Soffa og Hildur Helga til okkar og við átum nammi og horfðum á Sex and the city.

Mjög "girlie" eins og ég sagði.

Hér er þýska ljóðið hans Kára Hvatsa. sem hann samdi á síðastliðnum flippuðum fimmtudegi:

Die rote Zitrone meiner Schwester
war gestern auf meiner Speisekarte.
Ich habe sie gegessen,
als ich auf meinem fliegenden Teppich sass.

Og Fannar; ég hafði hugsað mér að geyma appelsínuna góðu um aldir alda, þangað til hún skryppi saman og myndi aldrei mygla. Það brást svo nú fæ ég ekki að eiga hana lengur. Mér þykir það sárt.


Edda eða Egill kl. 21:28 |

=================

föstudagur, febrúar 04, 2005


Flipp, jájájá!

Heljarinnar flippaður fimmtudagur! Skólinn var kúl. Í hádegishléinu gerðist nokkuð magnað sem erfitt er að lýsa hér. Þessi maður kom mikið við sögu. Svo samdi ég þýskt ljóð og lærði nýtt orð: Vergirni.

Die Maus ist faul
sie heisst nicht Paul
es tut mir Leid
Gesundheit.

Edda


Edda eða Egill kl. 07:37 |

=================