Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


sunnudagur, mars 27, 2005


Dagbókin hans Dodda er á ensku og það er komið nýtt lag í þættina um Samma Brunavörð!
Hvað á það eiginlega að þýða!?
Iss!

EGILL


Edda eða Egill kl. 11:45 |

=================

laugardagur, mars 26, 2005


Mamma fann túrkísbláan, hangandi eyrnalokk með demöntum í sófanum okkar. Mér þykir líklegt að einhver O.C. aðdáandi eigi hann. Kannast einhver við það? Anybody?


Edda eða Egill kl. 19:57 |

=================

fimmtudagur, mars 24, 2005


Ég er hætt með heremy krappið og er komin með yndislega, nýja myndasíðu. Ég er búin að færa flest albúmin frá heremy yfir á nýju yahoo síðuna svo bráðum eyði ég heremy og við tekur nýtt og betra líf. Slóðin að nýju síðunni er photos.yahoo.com/eddahalldo. Ég set hana á linkalistann bráðum, þegar hún er fullkláruð. Á eftir að færa Danapartýið yfir.

Edda

P.S. Munið The O.C. Jú nó vott æm toking abát.


Edda eða Egill kl. 13:56 |

=================

þriðjudagur, mars 22, 2005


Voru ekki allir að hlusta á Rás 2 áðan?!
Egill & the gay guys tróðu upp órafmagnað í beinni útsendingu frá JL-húsinu.
Spiluðum tvö lög við góðar undirtektir. Þeir ætla svo að hafa samband við okkur á næstu vikum og fá okkur inn í stúdíó að spila nokkur lög í dagskrárliðnum: hljómsveitir í beinni.

Stei tjúnd!

EGILL


Edda eða Egill kl. 17:14 |

=================

mánudagur, mars 21, 2005


Ógeðslega skemmtilegt gærkvöld. Ég, Thelma Marín og Arngunnur fórum á rúntinn og það engan smá rúnt. Arngunnur var búin að drekka svo mikið kaffi og borða svo mikinn sykur að hún var alveg að fara yfir um. Hún dró okkur með sér niður í svaðið og brátt vorum við allar orðnar snarklikkaðar. Við fórum í bílalúguna á Aktu Taktu og keyptum ís. Við hlógum svo mikið og krúttugaurinn sem afgreiddi okkur spurði, "er verið að flippa?" Þetta kvöld keyptum við einnig popp, grape, íste, sleikjó og brjóstsykur. Síðan fórum við á Arnarhólsróluvöllinn og lékum okkur þar. Settumst síðan á rónabekkina á Arnarhóli og horfðum á ljósin. Að lokum keyrðum við fimm hringi í kringum Hagatorg.

Setning kvöldsins:
Arngunnur: "Æ, þetta er svo mikið kalla. Settu á 89,5."


Edda eða Egill kl. 11:51 |

=================

sunnudagur, mars 20, 2005


Halló Halló.
Það kom upp smá pæling í dag. Hvað er Craig David að gera í G-Unit!?

Ég fór líka á Arnarnesið í kvöld í held ég fyrsta skipti barasta og sem mikill áhugamaður um flott hús er ég alveg í sjokki. Stefni ótrauður á að eignast Súlunes 15 í framtíðinni.


EGILL


Edda eða Egill kl. 02:21 |

=================

miðvikudagur, mars 16, 2005


Myndirnar úr Danapartýinu eru loksins komnar á netið.

Edda


Edda eða Egill kl. 22:30 |

=================

sunnudagur, mars 13, 2005


Tónleikar
Í sal FÍH
Rauðagerði 27
Mánudaginn 14. Mars
Kl. 20:00

Fram koma:
EGILL & THE GAY GUYS!!!!
Sugerpillows
Svitabandið
sexÍjazz

Aðgangur ókeypis

Ekki missa af!


Edda eða Egill kl. 22:53 |

=================



Síðast þegar ég skrifaði hafði ég gengið á ljósastaur. Í gær gekk ég á lokaða hurð. Klukkan var á milli eitt og hálftvö um nóttina og allir farnir að sofa hér heima nema ég og Kári sem vorum að brillera í Super Mario 3 í Nintendo tölvunni. Ég ætlaði að fara inn í stofu að ná í símann minn. Öll ljós voru slökkt en ég ákvað nú bara að fikra mig áfram í myrkrinu eins og ég hef nú svo oft áður gert. Ég hélt það væri bara svona dimmt inni í stofu og gekk áfram, en nei, þá var hurðin bara lokuð. Ég dúndraðist á hurðina og kastaðist aftur á bak á gólfið. Gleraugun mín brotnuðu og ég fékk stokkbólgnar varir og þurfti að halda klaka á þeim í korter.

Þrátt fyrir þetta hefur helgin verið góð. Á föstudaginn var matarboð hjá Þóru. Á laugardaginn fóru ég og Thelma á Morfís, keyptum okkur ís og litum til Arngunnar.

Myndirnar úr Danapartýinu fara að koma, krakkar, ekki örvænta.

Edda


Edda eða Egill kl. 18:28 |

=================

miðvikudagur, mars 09, 2005


Það er kannski enginn sykur í Coke Light en mér finnst nú samt vera eitthvað nammibragð af því.

EGILL


Edda eða Egill kl. 23:17 |

=================

þriðjudagur, mars 08, 2005


Í gær labbaði ég á ljósastaur. Ég var að labba við hliðina á Kára og var að tala við hann og horfa á hann í leiðinni. Svo bara dúndraðist ég á ljósastaurinn. Virkilega fast og hann titraði allur. Ég átti erfitt með andardrátt um stund, bæði því ég labbaði svo fast á staurinn en líka því ég hló svo mikið. Ég klessti þó ekki með hausinn á staurinn svo engin ummerki eru sjáanleg.

One tree hill þátturinn í gær var svo asnalegur. Ég fór hjá mér í hverju atriði. Svo er þetta svo mikil stæling á The O.C. þó ég vilji helst ekki vera að bera þessa tvo þætti saman. Þessi Felix gaur var alveg eins og Oliver og þegar Brooke fór í nærfataverslunina hugsaði ég "ekki stela, ekki stela, ekki stela." En svo stal hún!

Edda


Edda eða Egill kl. 09:45 |

=================

föstudagur, mars 04, 2005


Þessa vikuna fer Arngunnur efst á linkalistann. Hún er svo flippuð og orðheppin. Í gær fór ég með þverflautuna mína í skólann og í líffræðitíma setti Arngunnur hana saman og byrjaði að spila.
Í enskutíma í dag komst Arngunnur svo vel að orði: "Life is dreaming, and dying is waking up." Henni tókst þó einnig að segja "Skottland" allnokkrum sinnum í staðinn fyrir Skotland.

Í gær fór ég til Magga og sá The O.C. þátt númer tvö. Ómægod.

Edda


Edda eða Egill kl. 14:20 |

=================

þriðjudagur, mars 01, 2005


sKrAlLó!
Ég er farinn að sjá nafnið mitt í sviga svo oft þegar minnst er á þessa síðu að mér finnst kominn tími til að blogga. Síðasta færsla telst varla með því hún var bara kopí-peist af fjölmiðlafræðiverkenfi sem ég gerði um daginn.

Eeeeeen á sunnudaginn fór ég á skólakynningu hjá Háskóla Íslands. Vissi samt ekkert hvað ég væri að fara að gera þarna. Langaði bara að kíkja og sjá skólann. Held ég hafi einu sinni komið inn í hann fyrir mörgum árum og hann er eiginlega bara í næsta húsi svo mig langaði að sjá hvernig væri inni.
Ég fékk Jón með mér skítþunnan. Við röltum um allar byggingarnar. Alls staðar þar sem maður fór voru háskólanemar með kynningarbæklinga sem þeir réttu manni brosandi ef maður fór of nálægt þeim. Ég er auðvitað allt of kurteis til að segja bara: "Nauhauts mig langar ekkert örverufræðibæklinginn þinn." svo ég tók bara við bæklingunum, þakkaði fyrir og brosti á móti. Nema þegar strákurinn ætlaði að fara að rétta mér lyfjafræði bækling í fjórða skiptið, þá sagði ég honum að hann hefði rétt mér hann fyrir mínútu.
Síðan voru stundum pennar eða nammi við básana og sums staðar drykkjarföng. Ég kunni ekkert við að labba bara þangað og taka mér penna og labba í burtu svo ég byrjaði alltaf á ná mér í bækling, fletti honum síðan af áhuga, stakk honum í pokann og gríp svo pennann/nammið/drykkinn annarshugar áður en ég fer. Held að græðgin hafi aðeins stigið mér til höfuðs því pokinn minn var farinn að síga verulega í og ég var farinn að eiga erfitt með að troða ofan í hann. Allir aðrir með nokkra bæklinga í léttu pokunum sínum á meðan ég þurfti að skipta reglulega um hendi vegna þyngsla. Mér fannst bara alltof asnalegt að ná mér í auka poka og vera með í sitthvorri hendinni til að gera það. Kom heim með fjöldann allan af allskonar bæklingum, fullt af karamellum og brjóstskykrum, 2 kók læt, 2 flöskur af sódavatni, 1 LH, tannkrem, límmiða, nælu, tyggjó, 6 penna, 1 blýant og örugglega eitthvað sem ég er að gleyma.
Annars leist mér bara mjög vel á skólann og langar meira í hann eftir heimsóknina þó ég sé litlu nær um hvaða fag mig langar í.


EGILL


Edda eða Egill kl. 17:22 |

=================