Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, apríl 29, 2005


Skyrt'á mig

Ég hef ákveðið að skrifa um gærdaginn þar sem það var, jú, flippaður fimmtudagur.
Við í 4-B áttum mjög stopulan skóladag sökum gata. Í einu tvöföldu gati gerðumst ég,
Brynja, Arngunnur og Sigrún klikkað flippaðar og fórum í Kringluna á bílnum hennar Brynju. Það var heldur betur skemmtilegt og árangursríkt þar sem Arngunnur keypti sér bol og ég fann mér ótrúlega fallegan kjól sem ég mun vonandi eigna mér bráðum. Í öðrum götum í skólanum fórum við í þyrlu, sem er vinsælasti leikurinn um þessar mundir, og keyptum okkur einnig ís. Eftir skóla fór ég á Þjóðarbókhlöðuna í von um að geta lært eitthvað en ég gat það bara ekki neitt. Það eina sem ég gerði var að lesa 5 bls. í Egils sögu og það tók mig um það bil klukkutíma. Ég kýs að kenna myndarlega stráknum við hliðina á mér um þetta. Hann var bara svo töff að ég varð að fylgjast með honum. Gærkvöldið var flippað því mér leiddist og fann mér ekkert að gera svo klukkan tíu sagði ég pabba að ég væri farin að sofa og hann spurði hvort það væri nú ekki örugglega allt í lagi. Jú, allt var í lagi, mér bara leiddist. Ég horfði þó á krípí "Desperate housewives" uppi í rúmi. En flippinu lauk ekki þegar ég fór að sofa eins og flestir myndu halda. Í morgun vaknaði ég með símann minn í höndunum og hleðslutækissnúruna vafða um mig. Svo komu mamma og pabbi í gættina að vekja mig (já, þau voru þarna bæði!) og spurðu mig hvað ég hefði eiginlega verið að gera í nótt því ég hringdi í gemsann hennar mömmu klukkan hálfþrjú en sagði svo bara ekki neitt.

Bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 19:42 |

=================

mánudagur, apríl 25, 2005


Prakkarastrik eru skemmtileg

Meðal minna uppáhalds eru:

Helgin var góð. Veðrið æðislegt. Fór með mömmu í Smáralind þar sem við slepptum fram af okkur beislinu. Ég er nú þremur bolum og einu pilsi ríkari. Ég fékk þó einnig sokkabuxur en ég reif þær sama kvöld svo ég er ekki mjög rík eftir það. Borðaði á laugardagskvöldið í Perlunni í tilefni 80 ára afmæli afa. Það var æðislegt. Sunnudagurinn var skemmtilegur. Ég og Kári, sem kunnum svo vel að rata, keyrðum upp í Árbæ til að ná í eina bók á bókasafninu þar. Ég var með símaskrá í kjöltunni, opna á korti yfir borgina og reyndi að segja Kára hvert hann ætti að fara. Eftir hálftíma keyrslu fundum við staðinn, sinntum erindum okkar og fórum heim að læra.

Góð helgi, sæt og góð. Edda



Edda eða Egill kl. 18:03 |

=================

þriðjudagur, apríl 19, 2005


Halló.
Ég prófaði að gúgla nafnið mitt og fann nokkrar áhugaverðar myndir.
Fann reyndar engar af mér en hér eru nokkar skemmtilegar.
Númer 1 - Hver kannast ekki við þessa?
Númer 2 - Nafni minn og félagi.
Númer 3 - Sjötti bekkur.
Númer 4 - Sjöundi bekkur.
Númer 5 - Kalli Bjarni?
Númer 6 - Mosi fékk peysuna mína lánaða í 4 mánuði.
Númer 7 - Myndarlegur nafni.
Númer 8 - Ekkert ósvipað rassinum á mér.
Númer 9 - Verð að fara að rölta oftar út að kúkastöð.
Númer 10 - Af hverju er mynd af honum en engin af mér?!

Orðið í tölvunni er svo að Edda sé að klambra saman bloggfærslu sem vonandi skilar sér hingað fljótlega.

EGILL


Edda eða Egill kl. 23:53 |

=================

fimmtudagur, apríl 14, 2005


Ég er mjööög ánægð með kvöldið. Það sést bersýnilega á því að nú er klukkan hálfþrjú og ég er að blogga. Ég og Egill erum hér í góðu tjilli inni hjá honum með fartölvuna hans pabba. Egill er að lesa enskubók og ég er í tölvunni. Ég vonaði svo innilega á leiðinni heim af grímuballinu að Egill væri vakandi og svo er hann bara vakandi. Kjeeellinn! Já, rosa skemmtilegt kvöld. Það hófst á því að ég spilaði á tónleikum úti á Seltjarnarnesi. Svo fór ég heim og klæddi mig og málaði mig. Egill hélt mér kompaníi á meðan með myndatökum og skemmtilegheitum. Svo horfði ég náttúrulega á ANTM. Aumingja Nicole. Pabbi keyrði mig svo til Sigrúnar. Við pabbi skemmtum okkur vel á leiðinni. Við ætluðum aldrei að finna húsið hennar Sigrúnar en það tókst að lokum.
Hjá Sigrúnu var mjög góðmennt. Allir sætir og krúttupattalegir. Þar voru teknar nokkrar myndir (sem koma inn á seinna. Myndavélin er enn hjá Sigrúnu) og sitthvað fleira. Begga var aðaldræver kvöldsins og fær alveg þúsund miklar þakkir fyrir allt. Hún var nefnilega á 7 manna trukk sem var að gera góða hluti. Ballið var hálfruglað. Sveitt og þröngt og dimmt og erfitt að finna fólk. Ég var asnalega lítið með Soffu mini Dóru elsku. Fann hana bara svo sjaldan og týndi henni svo strax aftur. Skemmtileg tónlist þó; Dragosta din dei, Toxic, Drop it like it's hot, Call on me und mehr. En eftir ballið var toppurinn. Í 7 manna trukknum hennar Bergþóru var aðalfólkinu smalað saman. Það er að segja; Begga, Raggi, Thelma, Laufey, Sigrún, Arngunnur og ég. Ég og Arngunnur kröfðumst þess að farið yrði í "opna búð" og við fengum ósk okkar uppfyllta. Ekið var beint á Select. Þar keypti ég pylsu, kók, Twix, sleikjó og Bubbaloo tyggjó. Svo borðuðum við pylsurnar okkar og ísana og Motzart kúlurnar og allir voru merry and gay. Arngunnur maríuhæna á óborganlegu setningar kvöldsins:

Arngunnur: "Motzart kugeln. Því Motzart er kúl."

Thelma: "Mig langar í lakkrís með Rísinu mínu."
Arngunnur: "Af hverju fékkstu þér ekki lakk-Rís."

Loks var mér hent heim og sit ég nú hér með Agli og fer nú að sofa. Góða nótt, Edda.

P.S. myndir komnar hér.


Edda eða Egill kl. 02:27 |

=================

sunnudagur, apríl 10, 2005


Ég fór inn á bað áðan og fór að bursta tennurnar. Síðan mundi ég að ég hafði alls ekkert ætlað að gera það, ég var alveg í spreng og átti eftir að fá mér að borða.

EH


Edda eða Egill kl. 23:00 |

=================

föstudagur, apríl 08, 2005


Mér finnst eins og flippuðu fimmtudagarnir hafi legið í dvala um tíma. Það er slæmt og ég vil ekki að það viðgangist. Dagurinn í gær var góður. Ekki mikið af flippuðum atburðum en skapið var flippað. Ég fór þó á Hlöllabáta í fyrsta sinn á ævi minni. Á leiðinni aftur upp í skóla varð ég að gera eitthvað flipp í tilefni dagsins svo ég labbaði viljandi á skilti. Við fórum svo í 10-11 og göbbuðum afgreiðslumanninn upp úr brókunum, hoho. Ég og Thelma Marín fórum á Súfistann í gærkvöldi og sátum þar í huggulegheitum, lásum blöð og drukkum kakó og Kaffi latte.
Kári Sigh átti afmæli í gær og fær hann óskir í hattinn.

Núna er strákurinn á efri hæðinni að spila Óðurinn til gleðinnar á píanó. Mitt uppáhaldspíanóstykki. Og ég gæti sko spilað það þúsund sinnum betur. Enda pró. Það er alltaf jafnskemmtilegt að spila það fyrir Soffíu Dóru. Hún fær ekki nóg.

Bless í bili, Edda.


Edda eða Egill kl. 15:00 |

=================

miðvikudagur, apríl 06, 2005


X-Fannar

Það er svo gaman að hafa það kósí. Og það er svo margt sem er kósí. Kaldar sængur og bara sængur yfirleitt eru ótrúlega notalegar. Og rúm líka. Veðrið í gær var klikkað en samt var svo kósí að vera inni og heyra í vindinum og snjónum. Í gærkvöldi kom ég inn úr kuldanum , fór í sturtu og fékk mér svo Werther's original. Þeir finnst mér alveg ótrúlega kósí. Síðan er rosalega notalegt að horfa á sjónvarpið og að fara á kaffihús. Kaffihús eru svo frábær. Maður fær sér eitthvað heitt að drekka og skoðar blöð og talar við vini sína. Já, ég er óneitanlega í huggulegu stuði núna.

Síðasta helgi var skemmtileg. Ég fór í frábært afmæli til Brynju, horfði á The Incredibles, fór á Laugaveginn og í Kringluna með Soffíu Dóru, Smáralind með Agli og sitthvað fleira. Ég setti einnig inn myndir frá flippi um páskana og svo auðvitað afmælið hennar Brynju.

Svo er grímuball Menntaskólans á miðvikudaginn í næstu viku. Einhverjar hugmyndir að búningi?

Og að lokum; Fannar er frábær.

Kveðja, Edda.


Edda eða Egill kl. 14:17 |

=================

föstudagur, apríl 01, 2005


Vill einhver taka þátt í snús-keppni?
Ég skrái mig hér með til leiks með 4 klukkustundir og 10 mínútur.

Mér gekk alveg bölvanlega að sofna á þriðjudaginn, nóttina fyrir fyrsta skóladaginn eftir páska.
Ég var auðvitað búinn að snúa sólarhringnum við í fríinu svo ég var ekkert þreyttur.
Ég leit á klukkuna 01:30 og hélt síðan áfram að reyna að sofna. Eftir þó nokkra stund ákveð ég að kveikja á sjónvarpinu svona til að dreifa huganum. Það var auðvitað ekkert nema tónlistarmyndbönd í því en svo set ég á stöð 2 og hvað sé ég....jú Ísland í bítið og á litlu klukkunni í horninu á skjánum stendur að klukkan sé 07:02!
Ha? Var ég búinn að liggja þarna í meira en 5 tíma án þess að sofna eða var ég kannski að vakna og mundi ekkert eftir að hafa sofið?

Sei sei nei. Þetta var þá bara endursýning frá því morguninn áður. Klukkan var ekki nema hálf 3. Ég tékkaði til öryggis á þrjár klukkur til að vera öruggur.
Ég lagðist síðan aftur niður og sofnaði fljótlega.

Klukkan 07:50 byrjaði vekjaraklukkan mín, vekjaraklukkan í símanum mínum og 10 rímænderar stilltir á að hringja með mínútufresti til 8 að væla. Tími til að vakna.

En nei, ég snúsaði til klukkan 12! Snúsaði! Ég vaknaði ekki og slökkti á öllu og hélt svo áfram að sofa.
Í staðinn var ég rjúkandi upp á tveggja mínútna fresti til að snúsa í 4 tíma. Ég bara skil ekki hvernig mér tekst alltaf að sofna á milli.

Einhver til í snús keppni?

Lag mánaðarins: Sunshine of your love - Ekki með Cream heldur með stráknum á efri hæðinni. Hann er nýbúinn að fjárfesta í rafmagnasgítar og magnara og spilar þetta lag út í eitt.
Gott lag.

EGILL


Edda eða Egill kl. 23:34 |

=================