Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


sunnudagur, maí 29, 2005


Á þessum degi fyrir nákvæmlega ári lagði þykkan reyk út úr eldhúsinu hérna á Tómasarhaganum, það voru hátt í 20 hamborgarar á pönnunni, beikon í boði annars kokksins og steikingarbrælan fannst langar leiðir. Baðið var fullt af bjórflöskum og dósum, fólk stökk niður af svölunum án afláts og það var fótbolti í garðinum. Einsi skildi bolinn sinn eftir þegar hann fór og er ekki ennþá búinn að ná í hann.

Á þessum degi fyrir nákvæmlega ári, þann 29. maí, varð ég 19 ára.
Í dag er ég tvítugur.


EGILL afmælisbarn og nýstúdent HALLDÓRSSON


Edda eða Egill kl. 12:24 |

=================

þriðjudagur, maí 24, 2005


Það er alveg merkilegt hvað pabba, mömmu og Fríðu finnst kartöflumús góð og það er alveg merkilegt hvað okkur Agli finnst hún vond. Í svona hálft ár höfum við ekki haft kartöflumús með matnum því mér og Agli finnst hún svo vond en um daginn byrjaði Fríða að kvarta. Þá tókum við upp á því eitt kvöldið að bjóða upp á bæði kartöflumús og hrísgrjón með matnum svo allir yrðu ánægðir. Í kvöld var það svo kartöflumúsin sem var alls ráðandi. Ég og Egill ætluðum nú ekkert að fá okkur en pabbi slengdi skeið á diskana okkar og sagði að hún væri nú heimatilbúin svo hún væri mun betri en aðrar. Undir matnum töluðu pabbi og Fríða svo um það að þau ætluðu að setja afganginn af músinni inn í ofn og strá osti yfir og setja smjör og eitthvað ógeð og fá sér í eftirmat. Mennirnir eru misjafnir.
Um daginn fóru ég og
Laufey á Napoleon Dynamite í Háskólabíó. Við vissum ekkert hvað við værum að fara að sjá en okkur langaði samt bíó. Myndin var ótrúlega fyndin og kjánaleg og það gerðist nú reyndar ekkert mjög mikið. Enda bara 85 mínútna löng mynd. En salurinn hló brjálæðislega mikið og við líka. Maðurinn hliðina á okkur öskraði svo við urðum bara hræddar. Mjög fyndin mynd sem sagt.
Í dag fóru
ég, Soffa og Laufey svo út á línuskauta og rifjuðum upp gamla tíma frá því við vorum í Hagaskóla. Þá var mikið línuskautað. Mér þykir mjög vænt um línuskautana mína og mér þykir þeir svo fallegir. Við þeystum um í klukkutíma og komum kófsveittar heim. Það er líka merkilegt hvað línuskautar gefa manni mikla hreyfingu. Besta rassæfing sem til er. Seinni partinn fór ég svo með Thelmu Marínu á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands á Kjarvalsstöðum. Sýningin var mjög skemmtileg og margt sniðugt að sjá þar. Ljósmyndadeildin náði vel til okkar með skemmtilegum myndum. Við keyptum okkar svo ís með lúxusdýfu hjá Úlfarsfelli. Það er best.

Bless, bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 19:53 |

=================

sunnudagur, maí 22, 2005


Jæja, prófin sem sagt búin og allt í góðu gengi. Mikið er það nú yndislegt að geta gert allt það sem mann lystir. Ég hlakka mest til að geta farið að lesa bók. Harry Potter er ansi ofarlega í huga mínum þessa stundina. Mig langar bara að klára hana. Harry er líka alltaf skemmtilegur. Á fimmtudaginn þegar prófin kláruðust fór ég með Kára í sund og næst var ferðinni heitið í Hvalfjörðinn í bústað með stúlkunum. Það var ótrúlega skemmtileg ferð. Huggulegur bústaðurinn og mikið skemmtilegt brallað. Myndir þaðan eru komnar hingað. Við komum heim seinni part gærdagsins. Í gærkvöldi var líka stuð því þá fór ég á Loop Troop tónleika, einmitt með stúlkunum líka. Ekki alveg sömu stúlkum samt. Á Gauknum var ótrúlega hössuð stemmning. Annar hver maður klóraði sér í nefinu og fólk inni á klósetti að gera guð má vita hvað. Frekar subbulegt. Loop Troop voru góðir þó við höfum náð litlu af þeim og þegar við komum út af Gauknum fórum við á BSÍ á bílnum hennar Sigrúnar Elfu og fengum okkur pizzu. Maðurinn þar var helvíti hress og var orðinn góður vinur okkar og bað meira að segja um eiginhandaráritun.
Svo er Júróvisjón búið. Ágætt vinningslag en ég hélt með Möltu. Mér fannst það flottasta lagið og svo voru Lettar fínir og Danmörk og Noregur. Ég er þó ánægð að Malta hafi lent í öðru sæti. Nú var ég svo að koma heim frá Lenu þar sem við horfðum á Finding Neverland. Æj, hvað hún er góð og sæt og skemmtileg. Ég grét svo mikið. Peter litli eða Freddie Highmore er núna minn uppáhaldsleikari og þegar ég fann þessa mynd af honum á netinu þá fór ég að gráta. í alvörunni þá eru tár að leka niður kinnarnar á mér núna. Bara af því hann er svo sætur.

Nú ætla ég að fara að sofa. Tónleikar Barnakórs Dómkirkjunnar á morgun klukkan fimm.
Edda


Edda eða Egill kl. 00:31 |

=================

miðvikudagur, maí 18, 2005


Síðasta prófið á morgun og ég nenni ekki að læra. Samt ætla ég að fá góða einkunn. Ég og Egill erum að horfa á Friends og ég er að drekka Diet kók. Veit ekki af hverju. Kannski því það er ágætt og mig vantar gerviorku. Næstu dagar munu einkennast af miklum skemmtilegheitum. Sund, sumarbústaður, Loop Troop tónleikar og Júrovisjon. Ó, mig auma, ég hlakka til. Svo ætla ég að kaupa mér ís og fara meira í sund. Svo ætla ég að horfa á lokalokaþáttinn af ANTM í kvöld sem verður mjög skemmtilegur. Ég vona að allir geri það líka. Allir allir. Svo ætla ég að fara á Hamborgarabúlluna í sumar. Og línuskauta. Ég og Fríða línuskautuðum í gær og það var þrusugaman. 27. maí verður skemmtilegur. Þá fer ég í nýja fína fallega kjólinn minn og fer í veislur. Veislur eru svo skemmtilegar. Sérstaklega þegar maður er í fínum kjól og heldur á glasi og er með fallega eyrnalokka. Og í fallegum skóm. Ég sá nýtt tónlistarmyndband í dag með manni sem ég man ekki hvað heitir en lagið var mjög skemmtilegt og mynbandið enn skemmtilegra. Anna okkar frá Pittsburgh lék einmitt í því. Hún var rosa sæt.

Sjáumst, krakkar, úti í ísbúð.
Edda

P.S : Daniel Powter kommentaði hér og linkaði á síðu þar sem hægt er að hlusta á lagið og horfa á myndbandið hans. Kíkið endilega á það. Svo verð ég bara að segja ykkur frá fyndnustu þýðingu í heiminum. Ég var að horfa á ANTM og Eva sagði "I get at Kiss FM" og það var þýtt "ég fæ að kyssa filmurnar."


Edda eða Egill kl. 16:00 |

=================

föstudagur, maí 13, 2005


Ég var að læra fyrir líffræði en svo komu Egill og Lilja heim og við fórum að tala um Hróarskeldu og nú get ég ekki lært meira. Ég er með fiðrildi í maganum. Bæði út af tilhlökkun og líka samt stressi. Hvað ef við villumst, förum í vitlausa lest, einhver brennir okkur inni í tjaldinu okkar þegar við erum sofandi, ég næ ekki að eyða nógu miklum tíma á Strikinu og hvað ef Egill, Lilja og Kári deyja öll áfengisdauða og ég þarf að sjá um þau. Og HVAÐ ef það verður rigning allan tímann! Ég má ekki til þess hugsa.

Edda


Edda eða Egill kl. 11:52 |

=================



Fékk tölvupóst áðan:

Sæll Egill

Viltu hafa samband við mig með því að svara þessum tölvupósti eða með því að hringja í mig í síma ******* fyrir hádegi á morgun. Málið snýst um námsmatið þitt í þýsku en þar er staðan ekki góð eins og þú kannski veist.

Kær kveðja



Gott að lesa þetta svona kvöldið fyrir síðasta prófið. Eiginlega bara stresslosandi....
Bara smááá hnútur í maganum.


Edda eða Egill kl. 00:06 |

=================

laugardagur, maí 07, 2005


Varðandi trapisuna hérna austan megin.

Újé partý!!! Fjörið í algleymingi.
Msn-samtal við Fríðu litlu systur með eina rennihurð á milli okkar. Vefmyndavél og alles! Það er víst verið að bjóða upp á súkkulaði og kaffi frammi í stofu.

Síðasti skóladagurinn minn var 28. apríl og ég er ekki enn þá byrjaður í prófum, fyrir utan eitt samræmt próf sem telst eiginlega ekki með. Fyrsta prófið er ekki fyrr en á þriðjudaginn svo ég er aðallega búinn að vera að skila verkefnum sem ég hefði átt að vera búinn að skila fyrir löngu síðustu vikuna.

Síðan er alveg ótrúlegt hvað ég verð aktívur í lagasmíðum í prófum. Hef ekki getað samið heilt lag í alveg 2 mánuði svo koma þau bara á færibandi einmitt þegar maður er í prófum.
Ég gef örugglega út disk einhverntíman sem mun heita "Vorpróf 2004" ég samdi svo mörg þá. Verst þetta eru vonandi síðustu prófin.

Er búinn að fara tvisvar í bíó nýlega. Napoleon Dynamite og Hitchhiker's Guide To The Galaxy. Mæli með þeim báðum.

Bless bless.
EGILL

Æji, ég gleymdi að segja, hún Lilja er sæt. <3


Edda eða Egill kl. 20:48 |

=================

þriðjudagur, maí 03, 2005


Trampolín virðast vera hin besta skemmtun og eru það sjálfsagt. En ekki þegar ég er í prófum. Börnin í húsinu hliðina á eru nýbúin að fá risatrampolín í garðinn og ískrin í líninu eru svo mikil að ég á mjög erfitt með að einbeita mér. Sérstaklega þar sem ég týndi öðrum eyrnatappanum mínum svo nú heyri ég helmingi betur en þegar ég átti tvo og gat litið út eins og Frankenstein.

Það er svo margt sem er fallegt. Bæði manneskjur og einnig hlutir og föt. Um helgina keypti ég mér fallegasta kjól sem ég hef séð og jafnframt átt. Svo var ég að vafra á netinu og fann gullfallega Manolo Blahnik skó sem kosta 38.000 krónur. Svo er það þessi síða hér sem gjörsamlega blú mæ mænd.

Síðasta sumar setti ég mér það markmið að geta þríbolt áður en sumrinu lyki. Ég æfði mig en þegar skólinn hófst gat ég það ekki enn. Það er svo glatað að setja sér markmið þegar maður hefur allan tímann í heiminum og standa svo ekki við þau. Þess vegna fer ég hægt í sakirnar í sumar en ég er samt reið út í mig svo ég ætla að finna mér markmið til að standa við. Ég held að í sumar verði það að lesa eina bók. Það hljómar ekki mjög krefjandi en það er það fyrir mig. Bækur sem koma til greina eru Meistarinn og Margaríta, Furðulegt háttalag hunds um nótt og einnig Harry Potter 5 sem ég kláraði aldrei. Hugmyndir eru þó líka vel þegnar.
Í sumar ætla ég líka að:
  • skrifa gamaldags sendibréf til Ítalíu
  • hjóla og fara á línuskauta
  • fara til Hróarskeldu
  • borða ávexti
  • fá lit

Soffía Dóra: Soffa er lítil skotta með smáar tennur. Henni þykir kók gott en Djúpur falla henni ekki í geð. Einu sinni var blóðugt nautakjöt uppáhaldsmatur Soffíu en ég mér skilst að það hafi eitthvað breyst. Heima hjá mér á Soffía stuttbuxur, nærbuxur, bol og handklæði og ennig Vogue blað. Sjálfsagt eitthvað fleira sem leynist hér einhversstaðar. Jaaaá, að sjálfsögðu Nintendo tölvu. Soffa er gangsta' sem á bráðum mikinn pening.

Takk, Edda



Edda eða Egill kl. 11:06 |

=================