Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


miðvikudagur, júní 29, 2005


Er a okeypis netkaffi a Hroarskeldu.

Pissadi i annars manns kuk.

Ogedslegt.

Annars gaman.

Bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 19:49 |

=================

þriðjudagur, júní 28, 2005


Jæja, þá eru aðeins 13 tímar þangað til Kári, Lilja, Egill og ég skundum með rútunni út á Leifstöð og fljúgum til Danmerkur, nánar tiltekið Hróarskeldu. Við erum búin að kaupa tjöld, vasaljós, regngalla, gúmmískó og fleira viðeigandi þó spáð sé 20-25 stiga hita alla dagana. En hvað ég er glöð. Síðustu nóttina gistum við á hóteli í Kaupmannahöfn þar sem við getum farið í langþráða sturtu og sofið í rúmi. En hvað ég hlakka til. Síðasta deginum eyðum við svo í miðbæ Kaupmannahafnar, aðallega á Strikinu, býst ég við. Það verður indælt.

Vinnan er alltaf söm, þ.e.a.s mikið stuð. Við förum í "stimplum Arngunni" leikinn, dönsum í sætunum á bílnum, hlustum á poda í gegnum spólutækið á bílnum, dissum konur, hötum börn, tölum um eiturlyf, spilum idiot, pöntum okkur mat, vorkennum Indriða, hlustum á útvarpsleikritið, förum í Hver er maðurinn og svo má nú ekki gleyma grasinu. "Stimplum Arngunni" leikurinn er mjög vinsæll meðal strákanna. Hún er femínisti, náttúruverndarsinni, grænmetisæta og nú síðast dópisti. Alltaf tekst þeim að grípa hana á einhverju sem hún segir.

Síðasta helgi var ansi mikil veisluhelgi hjá mér. Á föstudaginn fór ég í brúðkaupsveislu og á laugardaginn fór ég í útskriftarveislu og
afmæli hjá Hildi Helgu. Allt saman mjög skemmtilegt.

En ég kveð, Edda


Edda eða Egill kl. 15:34 |

=================

þriðjudagur, júní 21, 2005


Þá er ég byrjuð að vinna sem er mjög skemmtilegt. Ég er líka í svo mjög skemmtilegri vinnu en þó líkamlega krefjandi. Það tekur nefnilega alveg á að raka gras. Sérstaklega í fæturna, hendurnar og einnig magann. Það kom mér mest á óvart; maginn. Í gær lærði ég sögnina að sneika sem við Arngunnur ætlum að reyna að nota óspart. Til dæmis er hægt að nota hana í samhenginu "Hey, þú sneikaðir hrífunni minni," eða "Mmm, ég ætla að sneika mér einni kökusneið." Þýðir sem sagt að eiginlega að stela eða taka í leyfisleysi. Í gær komst ég líka að því að reykt hefur verið jóna á svölunum mínum. Í dag hitti ég þó vondan mann. Hann var með yfirgang og læti og sagði leiðinlegar og dónalegar sögur og sagði "fokkaðu þér" við mig. Bara því mér gekk betur í idiot en hann. Aldrei hef ég vitað um mann sem segir "fokkaðu þér" við litlar og ungar stúlkur út af engu og hlær svo eftir á. Helvítis skítafífl.
Arngunnur átti daginn með bröndörum sínum. Biðjið hana einhvern tíma um að segja ykkur moldvörpubrandarann.

Síðasta helgi var skemmtileg. Á laugardaginn fór ég í partý sem Hildur Helga og Brynja héldu. Það var mjög skemmtilegt. Ég tók einhverjar myndir sem koma inn von bráðar eða næst þegar ég fer heim til Kára. Get nefnilega bara hlaðið myndum inn á hans tölvu. Svo fór ég tvisvar sinnum í bíó. Á Layercake með Kára og Batman begins með Þóru og Laufeyju. Báðar skemmtilegar.

Bless, Edda


Edda eða Egill kl. 15:58 |

=================

laugardagur, júní 18, 2005


Síðustu dagar hafa verið sundríkir. Ég fór í sund með Fríðu og Thelmu í síðustu viku og líka Arngunni. Svo fór ég einhvern tíma ein svo skiptin eru orðin mörg. Enda er ég komin með bikinífar. Síðustu dagar hafa líka verið bæjarferðarríkir. Ég fór með Thelmu, Fríðu, Laufeyju og Helgu Svölu í bæinn í síðustu viku. Ég uppskar útiveru, góðan félagsskap og einn myntugrænan bol. Ég er sú eina í heiminum sem á svona bol.

Í gær var víst sautjándi júní. Hann var ágætur dagurinn. Um kvöldið hitti ég Thelmu, Laufeyju og fleiri niðri í bæ og við röltum um. En hvað mér finnst hallærislegt að láta alla dagskrána klárast klukkan tíu. Það var sem sagt ekkert að gerast niðri í bæ svo ég ákvað að hjóla heim. Endaði þó í partýi sem Kári var í. Þar horfði ég upp á Svein slasa sig alloft og ég fór á risatrampolín. Það var asskoti gaman á trampólíninu þó ég hafi reyndar verið í pilsi sem gerði það eilítið slungnara.

"Misheyrnir eru svo skemmtilegar" sagði Kári áðan. Mikið hefur borið á þeim síðustu daga. Til dæmis finnst mér misheyrslan hennar Guggu á bensínstöðinni ógeðslega fyndin. Síðustu daga hefur mér einnig misheyrst oft það sem Kári segir. Um daginn sagði hann munnstykki en ég heyrði bumbuspik. Og um daginn sagði hann vegna færslu Miklubrautar, en ég heyrði vegna færslu minnsta bróður. Sem sagt; misheyrnir eru mjög skemmtilegar.

Á mánudaginn byrja ég að vinna. Ég hlakka til en þó aðallega vegna þess að ég er að vinna með Arngunni. Annars væri þetta ekkert skemmtilegt. Mér skilst að við séum einu stelpurnar nema einhverjar nýjar séu komnar núna. Er það rétt? Nett 3G stemmning þar á ferð.

Bles, Edda.


Edda eða Egill kl. 13:22 |

=================

þriðjudagur, júní 14, 2005


Á morgun eru aðeins tvær vikur þangað til þau og við förum til Hróars. Enn eigum við eftir að kaupa tjöld. Við erum ekki að standa okkur nógu vel hérna. Við fórum þó um helgina og skoðuðum tjöld en eigum nú eftir að ákveða hvaða tjald hentar best. Fortjald er mjög nauðsynlegt. Og ég er líka að tapa mér í afslöppun því ég er ekki búin að búa til neinn lista yfir hvað á að vera með í för. Vanalega þegar ég fer til útlanda þarf ég að hemja mig til þess að ég byrji ekki of snemma að búa til lista.

Helgin síðasta var skemmtileg ef við lítum fram hjá því að Soffa fór til Mílanó á laugardaginn. Ég og Egill vorum ein heima um helgina. Á föstudagskvöldið fengum við til okkar nokkurt fólk; Kára, Lilju, Arngunni og Guðmund Ingva. Við spiluðum Trivial Pursuit og fórum í Sing Star. Soffa kom einnig í gættina og kvaddi okkur. Myndir eru á síðunni minni.
Á laugardagskvöldið fór ég á Trabant tónleika. Þeir voru mjög skemmtilegir. Eftir tónleikana fann ég Kára í bænum og við löbbuðum heim.

Dagurinn í dag er búinn að vera mjög sviðinn. Það síðasta sem ég borðaði í gær var popp og það fyrsta sem ég borðaði í morgun voru salthnetur. Af öllu þessu salti sveið mig í líkmann og leið alls ekki vel. Þurfti alltaf að pissa. Svo varið ykkur á saltinu. Og svo brann ég á bringunni í sundi. Mjög sviðið sem sagt.

Guði sé lof að það eru aðeins fjórir vinnudagar þessa vikuna. Nei, haha, mér er alveg sama.
Bless, Edda


Edda eða Egill kl. 16:06 |

=================

föstudagur, júní 10, 2005


Þá eru aðeins nokkrir klukkutímar þangað til Soffa besta fer til Mílanó. Ég á eftir að sakna hennar ógeðslega mikið. En í gær héldum við stelpurnar surprise kökuboð fyrir Soffu heima hjá Lenu. Það heppnaðist mjög vel og allir voru ánægðir. Sérstaklega Soffa. Hana grunaði ekki neitt. Hohohoh. Myndir þaðan má finna bæði á síðunni minni og síðunni hennar Guggu. Ég og Soffa erum búnar að eiga mikinn kvolitítæm saman síðustu daga þar sem hvorug okkar er að vinna. Í gær fórum við eitthvað að erindast fyrir Soffu uppi í skautahöll (!) og svo pöntuðum við okkur pizzu heim til Soffu og horfðum á Friends. Ég er líka búin að baka mikið síðustu daga. Og fara í sund. Ég bakaði súkkulaðiköku fyrir kökuboðið í gær og í dag bakaði ég skinkuhorn því mér leiddist svo. Þau voru góð en ljót. Í dag fór ég í sund og líka í fyrradag og daginn þar áður. Örugglega daginn þar áður líka. Og ekki má gleyma Acno's energizer.

Bless, bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 21:00 |

=================

miðvikudagur, júní 08, 2005


Ég var að eiga um það bil verstu viðskipti sem ég hef átt við nokkurn. Ég fór með gullskóna mína í viðgerð, eða, ég lét spreyja þá með fallegri gylltum lit og svo voru þeir orðnir ansi snjáðir svo þeir löppuðu aðeins upp á þá. Fyrir þetta lét ég af hendi 4500 krónur. Og það "fyndna" er að ég fékk skóna á kílóamarkaði í Spútnik ásamt fullt af öðru dóti á 3000 krónur.

Síðastliðnum tveim dögum hef ég eytt að mestu með henni Soffíu Dóru. Það er mjög indælt. Ég gisti hjá henni á mánudagskvöldið. Við leigðum okkur tvær myndir. Uptown girls og View from the top. Svo átum við nammi til þrjú um nóttina, skoðuðum Vogue og fórum að sofa. Á þriðjudeginum fengum við okkur speltpasta í morgunmat, fórum svo heim til mín þar sem Soffa svalaði mánaðarlöngu internetleysi sínu og svo fengum við okkur heitt kakó og ristað brauð og hentum okkur aftur upp í rúm og horfðum á Friends. Mikið ert gott að hún sé komin heim frá Danmörku. En gamanið varir ekki lengi. Því miður. Búhú.

Ef einhverjum leiðist; er kannski ekki með vinnu eða eitthvað álíka, þá mæli ég með að þið farið á www.miniclip.com og í leikinn Acno's energizer. Frábær skemmtun.

Bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 13:23 |

=================

miðvikudagur, júní 01, 2005


Þá er kominn 1. júní og við taka 20 dagar af ekki neinu. Ég fæ nefnilega ekki að byrja að vinna hjá bænum fyrr en 20. júní. Ég hélt það myndi verða bara ágætt að vera í smá fríi en núna strax á fyrsta degi er mér farið að leiðast. Það er heldur ekki heilbrigt að allir vinir mínir eru einhvers staðar á flandri. Kórinn er farinn út til Danmerkur, Thelma Marín ákvað að skella sér upp í sumarbústað og svo eru allir aðrir bara að vinna. Til að gera eitthvað fór ég áðan út að hjóla á þriggja gíra fótbremsuhjólinu hennar mömmu, í pilsi og kirsuberjasokkabuxum með Jack Johnson í eyrunum. Jack Johnson er sko þokkalega að gera sig. Og veðrið er svo æðislegt. Ég er búin að uppgötva hjólið á ný. Á tímabili þoldi ég ekki að hjóla en nú geri ég það næstum daglega.

Áðan átti ég alveg ótrúlega skemmtilegt símasamtal við starfsmann Útilíf í Smáralindinni. Hress ungur strákur sem aðstoðaði mig svona vel og þegar við kvöddumst sagði hann "Leiter, bæjó."

Jæja, hvað ætti ég nú að taka mér fyrir hendur. Ég gæti hringt í fleiri búðir og spurst fyrir um íþróttatöskur á hjólum eða tjöld. Nú þegar ég er í fríi hef ég nefnilega ákveðið að skipuleggja Hróarskeldu. Og okkur vantar tvö tjöld og mig vantar einhverja tösku. Ég veit nefnilega ekki hvernig tösku er best að hafa meðferðis. Stóran bakpoka, flugfreyjutösku eða það sem mér datt nú síðast í hug, íþróttatösku á hjólum. Það gæti verið svolítið sniðugt.

Bless, Edda


Edda eða Egill kl. 13:40 |

=================