Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


þriðjudagur, júlí 26, 2005


Ég var að koma úr sundi með Arngunni og Thelmu Marínu. Við lágum hellingslengi í sólbaði og höfðum það gott. Tölvan okkar er ennþá biluð og um helgina skemmdum við einnig heimilissímann. Helltum sem sagt bjór á hann. Eða ekki við. Það var nú bara Soffa. Hann reyndar afskemmdist um daginn þannig að nú getum við talað í hann en þegar hann hringir heyrist alveg fáránlega fyndið hljóð. Ég er samt alveg að fíla það.

Helgin var mjög skemmtilegt. Grillpartí hjá Lenu á föstudaginn (myndir eru á síðunni minni) og svo fór ég með Soffu og Agli á tebó Framtíðarinnar á laugardaginn. Ég set myndir þaðan inn bráðum.

Vinnan er alltaf söm og það er mjög gott að vera búin að fá Arngunni til baka. Um daginn talaði ég um misheyrnir en í dag mismælti ég mig á ansi skondinn hátt. Mismæli geta einmitt líka verið mjög skemmtileg. Ég ætlaði að segja "vex þetta blóm villt" en í stað þess sagði ég "vellt þetta blóm vix." Hóhóhó, skondið.

Bless, þetta er Edda.


Edda eða Egill kl. 18:24 |

=================

fimmtudagur, júlí 21, 2005


Ég og Egill erum ein heima núna í einhvern tíma. Ekki ætlaði sambúðin að byrja vel. Klukkutíma eftir að mamma og pabbi voru farin ætluðum við að fara að elda en þá fór rafmagnið af. Við settum það á en það fór bara aftur af. Loksins tókst að halda því á. En þá var tölvan biluð. Hún hafði sem sagt bilað í óreglulega rafmagnsleysinu. Svo nú er tölvan farin í viðgerð og ég er í tölvunni hans Kára.
Arngunnur er núna í Noregi svo ég er bara eina stelpan í vinnunni minni. Það er samt skemmtilegt. Hressir tappar sem ég vinn með. Í dag var annað hvort planið að fá sér Oreo kex eða fara út að hlaupa eftir vinnu. Hlaupið varð fyrir valinu. Mmm, það er svo gott að fara út að hlaupa og verða geðveikt þreyttur en koma svo heim og teygja á sér og vera ánægður. Sérstaklega þegar maður er í risakörfuboltastuttbuxum af Magga mis.

Síðasta vetur leiddist okkur Arngunni í tíma og ákváðum á búa til Fólk-sem-við-hötum lista. Á mínum eru tveir manns. Við Arngunnur er nefnilega helvíti góðar að dunda okkur þegar okkur leiðist. Bæði í skólanum og vinnunni. Í 3-G bjuggum við til Síða-tileinkuð-leiðinlegum-kennslustundum í Morkinskinnuna hennar Aggulu þar sem við teiknuðum litlar, fyndnar myndir og hlógum ótrúlega mikið. Sú síða er geggjað flott. Og í vinnunni förum við oftast í Hver er maðurinn en núna í þessari viku þegar Arngunnur er úti í Noregi erum við búin að búa til Hver er maturinn. Það er mjög skemmtilegt.

Jæja, bless skitugemsar.
Þetta er Edda.


Edda eða Egill kl. 20:54 |

=================

föstudagur, júlí 15, 2005



Það er fáránlegt að ég, sem reyki ekki, sé með tvö sár á höndunum eftir sígarettur. Ég fékk annað þeirra á hægra handarbakið á Sonic Youth tónleikum á Hróarskeldu. Hitt fékk ég í dag á vinstri lófann þegar við Arngunnur vorum í höfrungahoppi í vinnunni og ég fór með lófann beint á heitan sígarettustubb. Það var ógeðslega vont og ég er með mjög ljótt en lítið brunasár.

Risatrampolín eru ótrúlega skemmtileg. Mér fannst þau pirrandi þegar ég var að læra undir próf í vor en núna þegar sumarið er komið eru þau æðisleg. Í gær stálumst við Arngunnur á rautt risatrampolín í Hlíðunum og í dag stálumst við á eitt blátt. Líka í Hlíðunum. Mikil skemmtun.

Áðan fékk ég mér Munkahlunk. Hann er mjög góður. Reyndar finnst mér lakkrísinn utan á mun betri en klakinn inni í og þegar ég var búin með lakkrísinn henti ég ísnum. Það var nú ekki mikið eftir. En ég hvet alla til að prófa Munkahlunk. Svo heitir hann líka svo ótrúlega corny nafni. Ég vildi að ég væri feitur munkur því þá væri ég alltaf kölluð Munkahlunkurinn.

Í gær vorum við Kári í Kringlunni og sáum ædentikúl ass twins. Tvær vinkonur með alveg nákvæmlega eins rassa. Það var fyndin sjón.

Ég er með 15 missed calls á símanum mínum. Öll frá Agli. Því hann er svo sniðugur, lítill patti.
Áðan ætlaði ég að hringja heim til Kára en hringdi óvart í gemsann hans pabba.
Pabbi: Halló
Edda: Uuu, hver er þetta?
Pabbi: Halldór
Edda: Pabbi!

Agli fannst mjög gaman að hlusta á þetta samtal.

Partí í kvöld. Tískusýning í kvöld. Vinna á morgun. Partí á morgun

Bless, þetta er Edda.


Edda eða Egill kl. 16:35 |

=================

miðvikudagur, júlí 13, 2005


Vinnudagurinn í dag var hálfsubbulegur og þegar ég kom heim fann ég gras í naflanum mínum.

Mest af öllu þessa dagana langar mig í I trip á litla sæta podann minn. Ég er búin að senda menn til Ítalíu, Danmerkur og Kanada en trippið er hvergi til. Það er ólöglegt alls staðar nema í Ameríku. Svo get ég ekki heldur pantað það á netinu því það verður bara tekið af mér í tollinum. Ef einhver er að fara til USA má sá hinn sami endilega láta mig vita.

Mig langar líka í Nizza með lakkrískurli sem er ofan á græjunum mínum.

Svo langar mig aftur til útlanda. Mig langar svolítið til Danmerkur aftur en samt meira til London, Frankfurt eða einhvers sólarlands. Ein ástæða þess að mig langar aftur til Danmerkur er sú að ég fann svo geggjað hótel sem ég verð einhvern tíma að gista á. Það heitir Hotel Fox og hvert herbergi er sérhannað af ungum listamönnum. Virkilega flott.

Kveðja, Edda.


Edda eða Egill kl. 15:41 |

=================

sunnudagur, júlí 10, 2005


Átrúnaðargoðið mitt!


Edda eða Egill kl. 22:39 |

=================




Ekki get ég látið staðar numið eftir að hafa uppgötvað æðislegu myndatæknina. Læt fylgja hér með skemmtilega mynd af okkur systkinunum og eigundum þessarar síðu.

Helgin er búin að vera fín. Gott að fá Soffubeibí heim þó það sé nú grátlegt í senn. Elsku anginn litli.

Ég er búin að borða helvíti mikinn mat um helgina. Á föstudagskvöldið var það fjögurra rétta máltíð á Grillinu í tilefni 50 ára afmæli pabba, í gær fór ég á Kjúklingastaðinn Suðurveri með Kára, Svenna og Hössa og fékk hamborgara og franskar og áðan fór ég á Vegamót og fékk mér Burritos. Ég hef ekki borðað heima hjá mér lengi.

Nú er ég í mjög tjilluðu skapi og er að hugsa um að leggjast upp í rúm með podann og Vogue. Eða leigja spólu.

Bless, Edda


Edda eða Egill kl. 19:40 |

=================





Ég var bara að komast að því að það er hægt að setja myndir inn á bloggið. Það finnst mér ógeðslega skemmtilegt.

Edda



Edda eða Egill kl. 19:32 |

=================

þriðjudagur, júlí 05, 2005


Þá erum við komin heim frá Hróarskeldu. Ferðin var ógeðslega skemmtileg og vel heppnuð í alla staði. Veðrið var stundum of gott þar sem við vöknuðum alltaf í svitabaði og alveg að líða yfir okkur úr hita. Það rigndi í 5 mínútur allt tímabilið. Þeir tónleikar sem mér finnst standa upp úr eru Athlete, Snoop Dogg, Jamie Cullum og Brian Wilson. Brian var æði. Ég, Egill og Kári vorum eiginlega fremst á Orange, stærsta sviðinu, (Lilja var á Interpol) og dönsuðum eins og klikkhausar þegar hann tók alla slagarana. Fullt af lögum með Beach boys. Síðustu nóttina gistum við á Hotel Löven í Kaupmannahöfn. Það var yndislegt. Lítið og krúttulegt hótel á Vesterbrogade sem ég mæli sko með fyrir alla sem ferðast til Kaupmannahafnar. Síðasta deginum eyddum við svo á Strikinu.

Ég er búin að setja myndir á netið.

Bless, Edda


Edda eða Egill kl. 16:47 |

=================

laugardagur, júlí 02, 2005


Enn af Hroarskeldu

Tha er eg ordin vidskila vid krakkana og er bara ein her a netkaffi. En thad er viljandi thvi okkur langadi øll ad gera mismunandi hluti. Kari er nuna a Green day tonleikum sem eg ætla ad kikja a rett bradum. Egill og Lilja eru thar ørugglega lika en thau foru eitthvad ad erindast. Og eg for a Royksopp tonleika. Their voru skemmtilegir. Her eru allir ad reykja gras eda hass eda drekka bjor eda eitthvad annad. Her eru fullt af budum/basum thar sem hægt er ad kaupa ymsa hluti. Hja mer myndi eg segja ad Fransk Hotdog med Ketchup, Muffin og lakkrislengjur seu i uppahaldi.
I gær for eg a Snoop Dogg tonleika sem voru bara gedjuklega skemmtilegri en allt. Hann tok øll bestu løgin; Drop it like it's hot, Beautiful, Signs, Gin&Juice, Snoop Doggy Dogg, Ups&downs og fullt af fleiri skemmtilegum. Athlete tonleikarnir voru lika ædislegir. Her er sem sagt mjøg gaman en eg er samt fegin ad vid eigum bara eina nott eftir i tjaldi. Svo førum vid a hotel i Kaupmannahøfn og gistum thar eina nott. Komum heim a manudagskvøld.

En eg er tha farin a Green day, Edda


Edda eða Egill kl. 20:04 |

=================