Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


miðvikudagur, ágúst 24, 2005


Við kvöldverðarborðið

Mamma: "Edda, hvað ertu með í hárinu?"
Ég: "Ha? Ég veit það ekki. Er ég með eitthvað í hárinu?" Og sný mér við.
Mamma: Fer að skellihlæja og dregur vínberjaklasa úr hárinu á mér.


Edda eða Egill kl. 18:27 |

=================

mánudagur, ágúst 22, 2005


Gemma Ward er rosa sæt. Og örugglega ótrúlega rík. Því hún er gjörsamlega alls staðar. Í hverju einasta Vogue blaði sem komið hefur út síðasta árið.

Síðasta fimmtudag var flippaður fimmtudagur númer 52. Vá, pælið í því. 52 vikur sem ég hef haldið þessu uppi. Það er heilt ár! Fimmtudagurinn var svo sem ekkert ótrúlega flippaður. Fyrir utan Rás 2. Það er eins og einhver hafi farið upp í útvarpshús og sagt ráðamönnum þar hvað mér finnst skemmtilegt að hlusta á. Þetta var svo skemmtilegt og rosalegt að ég gat ekki hætt að hlusta fyrr en um miðnætti. Flippuðum fimmtudögum verður haldið áfram af krafti í vetur!

Síðasta helgi sumarsins er búin að vera mjög skemmtileg. Á föstudaginn var boðið til lítils sumbls heima hjá okkur Agli sem magnaðist brátt upp og hætti að vera lítið sumbl. Þýski fáninn var dreginn upp á ný (ekki þó á hún) og sjúddann og flengdann voru áberandi. Samkoman var mjög skemmtileg og endaði á því að ég og tveir Gatnóstráxar vorum ein eftir að spila veiðimann. Myndir eru að finna hér (ég er ekki búin að setja alveg allar myndirnar inn). Svo er ég líka búin að setja inn myndir úr kveðjuhófinu hennar Thelmu sem hún hélt í síðustu viku. Það var einnig mjög skemmtilegt.

Jæja, ég er farin í skólann! Edda.


Edda eða Egill kl. 13:28 |

=================

mánudagur, ágúst 15, 2005










Edda eða Egill kl. 15:55 |

=================

fimmtudagur, ágúst 11, 2005


Það er skemmtilegt að The O.C. sería númer tvö og I-trip séu þeir tveir hlutir sem mig langar mest í og uppáhaldshlutirnir mínir sem ég á nú þegar eru The O.C. sería númer eitt og I-podinn minn. Greinilega er ég ekki mjög flókin persóna.

Ég er að lesa Harry Potter og Fönixregluna (bók númer 5) og skemmti mér vel yfir henni. Það angrar mig eilítið hvað hún er afskaplega löng og ég skil ekki hvernig fólk getur verið að biðja um að síðasta HP bókin verði 1000 blaðsíður eða eitthvað álíka. Ég er komin á blaðsíðu 300 í bókinni og gerði smá athugun áðan. Ég væri sem sagt búin með bækur eitt til þrjú og ætti einungis 200 blaðsíður eftir í bók númer fjögur. Hins vegar á ég núna 450 blaðsíður eftir í þessari endalausu bók. En sem betur fer skemmti ég mér vel yfir bókinni, nema Harry fer stundum eilítið í taugarnar á mér. En það er bara pent hjá honum kallinum.

Ég skulda Arngunni 5700 krónur. Það er mikill peningur að skulda.

Ég hlakka til mánaðamótanna. Þá fæ ég 350 krónur endurgreiddar vegna vinnuslyssins sem ég lenti í um daginn (bensín í augað). Þá get ég loksins keypt mér eitthvað fallegt, ha!
Ég sakna Gatnó.

Bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 13:40 |

=================

þriðjudagur, ágúst 09, 2005


Þessi þriðjudagur er vægast sagt búinn að vera skemmtilegur og viðburðaríkur. Í morgun vaknaði ég heima hjá Kára og hann sagði við mig "ég vil ekki gera þig stressaða, en the complete second serie af The O.C. liggur hérna frammi." Auðvitað varð ég stressuð og yfir mig spennt og gat varla sofnað aftur. Helga Svala, mágkona mín, hafði sem sagt keypt sér dvd-ið úti í London. Ég er mjög öfundsjúk út í hana stelpuna en samgleðst henni mjög því þegar ég vaknaði svo (mér tókst að sofna aftur í einn tíma eða svo) fórum við Helga strax að horfa og horfðum á fjóra þætti. Númer 3,4,5 og 6. Við vorum báðar búnar að sjá fyrstu tvo. Ég get ekki beðið eftir að klára að horfa á alla þættina og svo verð ég náttúrulega að fjárfesta í gripnum bráðum.

Síðasta sumar var í gangi leikur á vegum Fujifilm þar sem hægt var að vinna ýmislegt með því að setja nafnið sitt í pott. Ég var að vinna í Úlfarsfelli og setti nöfn fjölskyldunnar minnar á miða og nafn Kára. Vildi svo skemmtilega til að Kári vann fótboltaspil. Þetta sumar er sami leikur farinn í gang nema aðrir vinningar. Fyrsti verðlaun er digital myndavél. Ég setti einnig nöfn fjölskyldu og vina í þetta sinn. Svo í dag fékk ég símhringingu frá Thelmu þar sem hún tjáði mér að Egill og Kári hefðu unnið fótbolta og Fríða litla systir vann digital myndavél. Þetta finnst mér magnað. Ótrúlega skemmtilegt. Skondið samt hvað ég vinn aldrei neitt en Kári til dæmis alltaf. Hann er greinlega lukkugrís. Og hvað þá Fríða. Ótrúlega heppin að vinna myndavél.

Jæja, þetta er sem sagt greinilega happadagurinn minn í dag. Allt mjög skemmtilegt að gerast. Svo er Thelma búin að bjóða mér í matarboð og svo er kertafleyting á Tjörninni í kvöld. Allt mjög yndislegt að gerast í lífi mínu.

BLess


Edda eða Egill kl. 17:58 |

=================

mánudagur, ágúst 08, 2005


Á laugardaginn var haldið hér þrusugatnópartí. Sú samkoma var mjög skemmtileg og ég er mjög ánægð með kvöldið í alla staði. Nema kannski fyrir utan dauða manninn í rúminu mínu. Það voru teknar ótrúlega margar myndir og flestar þeirra eru komnar hingað. Ég setti einnig inn myndir frá síðasta vinnudeginum mínum. Takk fyrir kvöldið, sætu krakkar.

Í dag er fyrsti frídagurinn minn og það má segja að ég sé eilítið undarleg. Þegar Kári fór frá mér til vinnu sinnar gat ég ómögulega sofnað aftur og var ekkert það þreytt. Svo nú er ég komin á fætur, klukkan hálfníu, og búin að setja í eina þvottavél. Það er ótrúlegt hvernig Agli tekst alltaf að fara í hvíta, nýja bolinn sinn áður en hann hellir niður á sig ís eða tómatsósu.

Í dag er ég að hugsa um að kíkja niður í bæ eða jafnvel Smáralind. Svo kannski að lesa smá Harry Potter og horfa á The O.C. Svo koma mamma og pabbi heim á morgun svo ég þarf að taka til. Þó er íbúðin bara ansi vel útlítandi.

Ég kveð í bili, er farin að þvo þvott.


Edda eða Egill kl. 08:23 |

=================

laugardagur, ágúst 06, 2005




Í gær var síðasti vinnudagur minn á Gatnó þetta sumarið. Ég á eftir að sakna krakkanna og Carryboy mikið. En auðvitað gat ég ekki farið frá Gatnó án þess að síðasti dagurinn yrði algjör föstudagurinn þrettándi. Þegar stutt var liðið á daginn var Arngunnur að fylla bensín á sláttuorfið sitt og í leiðinni var hún niðursokkin í að segja mér sögu af homma. Allt þetta fát varð til þess að bensín gutlaði upp úr brúsanum og beint framan í mig og inn í vinstra augað. Já, þetta var ógeðslega vont en sem betur fer vorum við með saltvatnslaun í bílnum sem ég tæmdi í augað á mér. Svo keyrði ég og verkstjóri minn upp á heilsugæslustöð þar sem augað mitt var skolað betur og ég fékk lyfseðil upp á einhverja augndropa. Stuttu síðar kom í ljós að þetta voru ekkert dropar heldur krem sem minnti á bráðið smjör. Mjög ólekkerir dropar þar á ferð. Í hádeginu léttum við í Carryboy okkur lundina og fórum á Devitos því ég var að hætta og svona. Þegar við komum út af Devitos sáum við að við höfðum fengið stöðumælasekt. Og þegar við vorum að býsnast yfir sektinni og Eyþór verkstjóri að bakka út úr stæðinu urðum við ekki heppnari en svo að bakka á annan bíl. Almáttugur, vesenið á einum degi. Þetta verður þó alla vega minnistæður dagur fyrir mig. Síðasti dagurinn á Gatnó. Það skemmtilega er að ég tók með mér myndavél síðasta daginn og náði því að mynda öll ósköpin. Þau koma inn á netið síðar.

Getur nokkur sagt mér hver datt út í The biggest loser síðast?

Bless, Edda


Edda eða Egill kl. 10:45 |

=================

þriðjudagur, ágúst 02, 2005


Netið loksins komið í lag og ég get bloggað heima hjá mér.

Síðan síðast er ég búin að setja einhverjar myndir inn á netið, held ég.

Um Verslunarmannahelgina fór ég upp í sumarbústaðinn okkar á Hjalteyri og var þar í þrjár nætur með móðurfjölskyldu minni. Það var ótrúlega gott að komast þangað í kyrrðina og sjávarloftið. Það hitti ég mömmu og pabba og ljúfu systur mína, hana Fríðu. Við áttum þetta indæla samtal:

Edda: "Ef þið finnið hnepptu lopapeysuna mína einhvers staðar, þá endilega látið mig fá hana."
Fríða: "Nei, ég ætla að skíta á hana og kveikja svo í henni."

Í dag kallaði ég yfirmann minn "dónabangsa." Mér fannst það pen leið til að segja að hann væri dónalegur en öðrum fannst það bara klúrt.

Í kvöld elduðum við Soffía Dóra ótrúlega góðan mat hérna heima hjá mér. Við keyptum inn í Melabúðinni góðu og elduðum okkur síðan pastakjúklingarétt með pestó og parmesan. Mmm... það var svo gott.

BLess bless, þetta er Edda.


Edda eða Egill kl. 21:30 |

=================