Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, september 30, 2005


Viljiði fara niður! Annars tek ég gluggakistuna!!!


Edda eða Egill kl. 11:45 |

=================

þriðjudagur, september 27, 2005


Já, ég varð víst 18 ára á laugardaginn síðasta. Afmælisdagurinn var mjög rólegur sem og bara öll helgin. Á flippaða fimmtudaginn síðasta nældi ég mér einnig í bílpróf svo áfangarnir hafa hellst yfir mig hver á fætur öðrum. Á afmælisdaginn minn, 24. september, fékk ég til mín fimm sæta krakka sem borðuðu með mér þrjár kökur og einn brauðrétt. Svo spjölluðum við um lífið og tilveruna og allt var voða kósý. Myndir voru teknar sem ég set kannski inn á internetið við tækifæri. Ég fékk skemmtilegar og fínar gjafir og einn rosalega óvæntan blómvönd sem Thelma Marín í Ungverjalandi lét senda mér. Það var rosa gaman.

En ég er farin að sofa núna, þetta var Edda.


Edda eða Egill kl. 22:37 |

=================

laugardagur, september 24, 2005


Edda systir mín á afmæli í dag!


Edda eða Egill kl. 10:04 |

=================

föstudagur, september 23, 2005


Hinn danski vinur minn Jon Christian klukkaði mig svo ég verð víst að skrifa 5 staðreyndir um mig hérna og neyðist því til að blogga með miklu styttra millibili en venjulega.

1. Ég lenti í þriðja sæti í mínum aldursflokki í langstökki á Íslandsmótinu í frjálsum íþróttum fyrir mörgum árum.

2. Ég fæ mér LGG+ á hverjum morgni.

3. Ég æfi Júdó og hef gert það í 4 ár.

4. Ég er mikill áhugamaður um hamborgara.

5. Starf mitt er að miklu leiti fólgið í að skeina öðrum en sjálfum mér.


Værsgo!

EGILL


Edda eða Egill kl. 17:58 |

=================

fimmtudagur, september 22, 2005


Egill er skítur. Ég náði víst verklega bílprófinu í fyrstu tilraun. Þá er þetta loksins búið. Ég þarf ekki að hafa þetta bílprófsdót á herðum mér lengur. Góð tilfinning.

Þokkalega flippaður fimmtudagur. Tók bílpróf! Eftir bílprófið fór ég beint í Afró og svitnaði þar með 30 stelpum og svörtum trommara frá Gíneu. Það var ótrúlega skemmtilegt. Kem svo heim til að fara í sturtu en þá er búið að taka vatnið af í götunni minni vegna framkvæmda. Ekki mjög hentugt.

Okkur Soffu fannst orðið tota líkjast orðinu tútta svo mikið í Melaskóla að við gátum ekki hamið okkur af hlátri. Enduðum á því að kalla á kennarann og spyrja hann hvað "þessi tútta héti" þegar við vorum að teikna mynd af Finnlandi. Það er sem sagt einhver tota á Finnlandi sem okkur langaði ansi mikið að vita hvað héti.
Soffa var ótrúlega fyndin í dag og tók með sér eina ullarpeysu með pallíettum og handklæði í leikfimitíma. Hún var ótrúlega hissa. Vissi ekkert af því að hún hefði bara sett þetta tvennt í leikfimitöskuna.

Bless bless, Edda


Edda eða Egill kl. 18:36 |

=================



Edda náði því miður ekki verklega bílprófinu í fyrstu tilraun eins og við vorum að vona en við vonum bara að hún mæti fersk og reynslunni ríkari í sína aðra tilraun og rúlli því upp þá.

Og mig sem vantaði bílstjóra um helgina! :(

EH


Edda eða Egill kl. 17:16 |

=================

föstudagur, september 16, 2005


Gosh! Heremy photos bara að leggja upp laupana. Greyið webmasterinn og greyið allir. En ekki ég, því ég þoldi aldrei þessar síður. Yahoo er sko frábært og svo finnst mér þetta sem Soffía og Kári Sigh og fleiri eru með mjög gott.

Eins og margir hafa fengið að heyra um (og lesa) pöntuðu ég og Soffa okkur ferð til Danmerkur í hausthléinu. Fjórar nætur, einar í villu frænku hennar Soffu, á Strikinu, í Christianiu, í klippingu (!), á kaffihúsi, á söfnum og hvað og hvað... Pabbi hefur miklar áhyggjur yfir því að við gætum nú vel farið á hasstripp í Christianiu. Jú, jú, það þykir mér ekki ólíklegt að við gerum. Það er engin kósý stelpuferð án smá hasss.

Hróarskelduferðin mín í sumar hefur verið ofarlega í huga mínum síðustu vikur því það var svo ótrúlega skemmtilegt. Eitt sem ég var að rifja upp er þegar við létum geyma töskurnar okkar á svæðinu og þurftum að finna leyniorð. Strumpur, Sigurrós, Blobbsí blobbs og eitthvað eitt sem ég man ekki urðu fyrir valinu. Það var skemmtilegt. Svo fannst taskan mín ekki og ég þurfti að fara inn fyrir borðið og leita að henni. Ég fann hana.

I-C-E cold, nice to be old.
Bless, bless, þetta er Edda.


Edda eða Egill kl. 16:09 |

=================

föstudagur, september 09, 2005


Eins og Egill benti hér réttilega á, náði ég skriflega bílprófinu mínu, en ekki í fjórðu tilraun heldur fyrstu tilraun. Gærdagurinn var sem sagt alveg mikið flippaður fimmtudagur. Fyrst var það busavígslan, svo var það bílprófið og svo var það partí og svo busaball. Ballið var mjög skemmtilegt og gaman að dansa og hitta grunnskólabekkjarfélaga sína eftir ótalmörg ár. Mér blöskraði reyndar eitt, hvað það voru ótrúlega margir ótrúlega fullir. Mér fannst það óvenjumargir sem gátu varla haldið sér uppi vegna of mikillar mænudeyfingar. Það var virkilega ógeðslegt. Og getur fólk svo ekki líka stundað villta ástarleiki heima hjá sér! Ég hélt að eitt parið þarna væri bara að fara að stunda kynmök í einum stólnum.

Mér líður vel núna. Ég var að koma inn úr rigningunni og er komin í náttbuxurnar hans Kára. Mig langar mest af öllu að leggjast undir sæng, borða súkkulaði og horfa á franska bíómynd og anda að mér ilmi blómanna.

Bless, þetta er Edda.


Edda eða Egill kl. 14:57 |

=================

fimmtudagur, september 08, 2005


Systir mín, hún Edda Halldórsdóttir náði í dag skriflega ökuprófinu í fjórðu tilraun og óska ég henni til hamingju með þennan áfanga og vona að hún rúlli upp verklega prófinu sem fyrst.

Gimmí fæv!

EGILL


Edda eða Egill kl. 18:30 |

=================

miðvikudagur, september 07, 2005


Heyrt á leikskólanum:

"Látið hann vera, hann býr á Hjarðarhaga!"

Klíka?


EGILL í alvöru

Lilja er sæt og býr til góðan mat!



Edda eða Egill kl. 17:29 |

=================

sunnudagur, september 04, 2005


Jesús almáttugur, hvað föstudagurinn var mikið rugl. Skólinn var allt í lagi og kvöldið eftir klukkan átta var rosa skemmtilegt en þar á milli var bara eitt ruglumbull. Eins og svo oft á föstudögum ákváðum við Soffía Dóra að það væri nú skemmtilegt að fara í Smáralind. Við ákváðum að taka strætó upp í Smáralind en ekki séns að við tækjum hann aftur heim. Auðvitað getur alltaf einhver sótt mann upp í Smáralind! Eftir 50 mínútna setu í strætó komumst við loks á leiðarenda og höfðum það skemmtilegt í Smáralind og ég keypti mér miða á Jeff Who? og Franz Ferdinand. Klukkan svona hálfsex fórum við að hugsa okkur til hreyfings og fórum að hringja í fólk sem gæti hugsanlega sótt okkur. Enginn gat sótt okkur. Við sátum því á einhverjum
bekk eins og litlar píkur sem gera ekkert annað en að hanga í Smáralind eða Krinlgunni og vissum ekki hvað til bragðs ætti að taka. Enduðum á því að taka strætó heim og tveimur tímum eftir að við höfðum ákveðið að fara heim vorum við komnar heim til Soffu. Þar skelltum við í okkur hamborgara, Egill kom svo að sækja mig, kom með fötin mín með sér, ég klæddi mig í
fötin í bílnum og Egill keyrði mig upp í Kaplakrika á tónleikana. Fjúff, þá er eiginlega öllu veseni lokið. Ég eyddi tónleikunum með Kára Sigh og ég skemmti mér konunglega. Eftir að Franz-menn höfðu lokið sér af fengum við Kári Sigh okkur að borða og svo fór ég á tebó. Nú man ég líka að öllu veseni er ekkert lokið. Tebóið var heitt og sveitt og troðið og stelpurnar
komust ekki inn svo ég fór út. Þá tók nú eiginlega bara skemmtun við því við röltum um bæinn, ég og Arngunnur hittum vinnufélaga okkar kæru og við dönsuðum lítið eitt á Kaffi Cultura.

Ég labbaði heim með Kára Sigu og eins og áður hittum við sætan kött. Þessi var svo yndislegur að mig langaði bara að taka hann með heim. Hann settist í fangið á mér og hjúfraði sér upp að mér og malaði þegar ég klappaði honum. Hann hét Húni og var ótrúlega snyrtilegur og fallegur. Oh, ég sakna hans. Hann vildi nefnilega alls ekki yfirgefa mig. Og ég ekki hann. Æ, það voru sterk tengsl sem mynduðust þarna milli mín og Húna, en einhvern tíma tekur allt endi.

Eitt sem mig langar að segja að lokum sem fer ótrúlega mikið í taugarnar á mér. Sumir krakkar sem koma aftur heim til Íslands eftir að hafa verið úti í útlöndum sem skiptinemar fara að hafa þessa miklu óbeit á Íslandi, finnst það ömurlegt land og tungumálið ömurlegt og eru ótrúlega fúl að allt sé nákvæmlega eins og þegar þau fóru út. Ég þoli ekki þegar ég heyri skiptinemakrakka tala um þetta. Um daginn heyrði ég stelpu segja hvað henni fyndist ömurlegt að kunna íslensku og fyndist það bara ekkert merkilegt tungumál. Farðu þá bara aftur til útlanda, nöldurskítur.


Edda eða Egill kl. 21:58 |

=================

fimmtudagur, september 01, 2005


Ég veit ekki hvort það er kaffið sem ég drakk í dag eða kóræfingin sem ég fór á í kvöld, en alla vega er ég komin fram úr rúminu, eftir að hafa reynt að sofna í drjúga stund, og er farin að drekka "mildan morgunsafa." Þetta er einkar flippaður miðvikudagur miðað við að það er ekki fimmtudagur.

Ég er orðin hrædd á að sitja hér ein í myrkrinu.

befehlen-befiehlt-befahl-befohlen.

Góða nótt, Edda.


Edda eða Egill kl. 00:10 |

=================