laugardagur, október 29, 2005
"Ef Íslandsbanki væri persóna, hvernig myndirðu lýsa henni?"
Já, Gallup er í góðum málum.
Edda
Vek athygli á myndum úr afmæli Soffíu Dóru á síðunni hennar Guggu.
Edda eða Egill kl.
19:18 |
=================
miðvikudagur, október 26, 2005
Spurning um að enska Uppáhaldshátíðina mína.
Þetta lag er með Ampop, heitir
Senn koma jólin og lenti í 5. sæti í jólalagasamkeppni rásar 2 2004.
Hérna er síðan nýjasta smáskífan með sömu hljómsveit,
3 Hours of Daylight. EH
Edda eða Egill kl.
20:06 |
=================
laugardagur, október 22, 2005

Stundum kem ég sjálfri mér á óvart. Ég var að skora 90 stig í Quiz your friends prófi um Sigurjón, bróður hennar Soffu. Ég klúðraði einni grimmri spurningu.
Í skólanum núna er alveg offramboð á keppnum sem skemmtilegt væri að taka þátt í. Ég og Soffa erum að spá í að taka þátt í Forritunarkeppninni Enter og svo er Ökuleikni eitthvað sem að ég má ekki láta fram hjá mér fara. Ef einhvern er leikinn við að aka þá er það ég. Blindakstur í rigningu er mín sérgrein.
Í gær fór ég á Hjálmartónleika á Airwaves á Nasa. Stemmningin í hjarta mínu á þessum tónleikum var öðruvísi en á öllum öðrum tónleikum sem ég hef farið á. Þetta voru þeir mest kósý. Hlýtt loftslag, dempuð birta, bein sjónlína við sviðið, hönd Kára, klarinett og skemmtileg tónlist.
Á flippaða fimmtudaginn síðasta átti ég gott samtal við bróður minn í Kringlunni:
Edda: Viltu ekki taka þetta, elskan
Egill: Jú, hjartaknúsið mitt
Ef einhver annar en Soffa og Kári getur sagt mér hver er á myndinni þá skal ég brosa til hans.
Bless, Edda
Edda eða Egill kl.
12:44 |
=================
föstudagur, október 21, 2005
Ég get ekki lært og borðað á sama tíma. Sérstaklega ekki ef ég er að borðanammi. Um daginn var ég að læra fyrir latínupróf og éta bombur og lakkrís íleiðinni. Ég áttaði mig síðan á því hvað nammiátið var að taka mikinn tímafrá mér. Þá henti ég lakkrísnum inn í skáp og notaði viljastyrkinn á bomburnar sem lágu á gólfinu. Bomburnar keypti ég í fríhöfninni og lakkrísinn keypti ég á Strikinu. Minningar um Danmörku streymdu um munnminn og maga. Það var æðislega gaman úti hjá okkur Soffíu Dóru. Við bjuggum einar í risastóru húsi frænku hennar Soffu og höfðum það kósý inni í stofu fyrir framan sjónvarpið að horfa á Sex and the city og danskt Paradise Hotel. Við versluðum einnig lítið eitt, fórum til Christianiu, fórum á Nyhavn þar sem götudjassleikarar voru að spila fyrir okkur og við settumst á veitingastað og böðuðum okkur í haustsólinni og borðuðum pasta carbonara. Við fórum einnig á vaxmyndasafnið og löbbuðum um myrkvaða Kaupmannahöfn á Kulturnat. Ferðin var yndisleg en það er líka gott að vera komin heim. Fleygar setningar úr ferðinni:
Þessi samloka er eins og rifin kona (Soffa)
Mér líður eins og ég sé með kúk í andlitinu (Edda)
Hej, smukke! (E-r gaur, svona 12 ára, feitur)
Kan du gemme disse bukser for mig (Soffa, þýð: geturðu falið þessar buxur fyrir mig)
Það gerðist einnig margt annað skondið í ferðinni eins og kannski mátti búast við. Eins og til dæmis þegar við gengum óvart (óvart frá Soffu hálfu, ég fattaði strax en varð bara að prófa) frá veitingastað án þess að borga. Þegar við vorum komnar alllangt frá staðnum sagði ég Soffu frá þessu og hún trylltist og dró mig alla leiðina til baka og kallaði mig ?þjóf? það sem eftir var ferðarinnar. Og líka þegar mjög samkynhneigt-looking gaur rakst óvart með hendina í rassinn á mér. Mér fannst það svo fyndið að ég leit einu sinni á manninn en fór svo úthlæjandi. Grey maðurinn hélt greinilega að ég hafi farið út í fússi og bað Soffu margsinnis afsökunar.
Jæja, ég set myndir inn síðar, bless, Edda.
Edda eða Egill kl.
13:12 |
=================
sunnudagur, október 09, 2005
Á morgun getum við Soffa sagt "ekki á morgun heldur hinn förum við til Danmerkur." Það er skemmtilegt og mikið tilhlökkunarefni.
Helgin er búin að vera skemmtileg. Ræðukeppni á föstudaginn. Kaffiboð, Eldsmiðjan og bekkjarpartý á laugardaginn. Ég setti inn myndir frá laugardeginum.
Fyndnasta setning í Njálu hingað til: "Ásgrímur átti tvo sonu og hét hvortveggi Þórhallur." Síðan áttu Þórhallur og Þórhallur systur sem hét Þórhalla. Ótrúlega frumlegir foreldar þarna á ferðinni.
Bless, þetta er Edda.
Edda eða Egill kl.
20:54 |
=================
föstudagur, október 07, 2005
Flippaður fimmtudagur # 59!Vá, sem þýðir að númer 60 verður úti í Danmörku hjá mér og Soffu. Við erum heppnar að vera ekki búnar að kúka á okkur af spenningi. Því við vorum næstum því búnar að því áðan. Fjúff.
Flippaði fimmtudagurinn í gær var ekki sérstakur. Hann var ágætlega flippaður, en þó ekki nóg. Hann byrjaði eldsnemma um nóttina þegar Soffía Dóra sendi mér sama sms-ið átta sinnum. Síðan fór ég í síðasta Afrótímann minn og um kvöldið fór ég í ömurlegustu bílferð sem ég hef farið í sem bílstjóri. Hún var ömurleg, þessi bílferð.
Bless, skitugemsar. Þetta er Edda.
Edda eða Egill kl.
15:12 |
=================
þriðjudagur, október 04, 2005
Þessi klukkun er klikkunI. Hróarskelda 2005 var það skemmtilegasta í heiminum. Ég ætlaði alltaf bara að taka armbandið af mér svona þá og þegar eftir að ég kom heim, en nú tími ég því bara alls ekki því það vekur upp svo góðar minningar.
II. Þegar það er fiskur í matinn fæ ég mér alltaf BBQ sósu út á hann. Öllum á heimilinu finnst það ógeðslegur siður hjá mér.
III. Ég bursta alltaf á mér tunguna.
IV. Þegar ég tygg ljósgrænt Extra tyggjó verður mér óglatt og ég fæ hausverk. Þess vegna fæ ég mér það aldrei.
V. Mig langar mjög mikið að flytja út í litla, sæta íbúð og fá mér kettling.
Kveðja, Edda.
Edda eða Egill kl.
22:12 |
=================