Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


miðvikudagur, nóvember 30, 2005


Noj Noj Noj!!!

Og bara á 99 krónur!

Alls ekki láta þetta einstaka tækifæri fara fram hjá ykkur!

Annars er líka alltaf hægt að slá á þráðinn upp á Rás 2 og biðja um óskalag. (5687123)

Stef Stef Stef

Kommaso!

EH


Edda eða Egill kl. 17:17 |

=================

þriðjudagur, nóvember 29, 2005


Ég er búin að gefast upp á því að reyna að svara klukkleiknum þar sem maður á að segja fullt af 7 hlutum um sjálfa sig. Ég bara get það ekki.Helgin að baki var mjög róleg og góð.

Á föstudaginn tókum við Soffa góða syrpu. Við fórum í Kringluna og náðum svo í mat á Mama?s Tacos og sprelluðum ásamt Þóru þangað til stúlkurnar stungu af á Harry the Potter.
Á laugardaginn komu Hildur Helga og Arngunnur til mín og við bjuggum til franskt samtal sem við fluttum svo í munnlegu frönskuprófi í morgun. Ég var frönsk og hét Jacqueline Dufour og Arngunnur og Hildur voru enskar systur; Gwendolin og Sessely McGregor. Þær spurðu mig til vegar og þegar samtalinu lauk vissum við nánast allt hver um aðra. Sessely (Hildi Helgu) fannst skemmtilegast að borða tertur og Gwendolin (Arngunnur) var nítján ára píanósnillingur sem fannst skemmtilegast að flétta hárið á Sessely á meðan hún borðaði. Jacqueline (ég) var bakari sem fannst skemmtilegast að faðma kærastann sinn.
Áðan fór ég í Kringluna með Agli og ætlaði að tröstespise gallabuxur en svo áttaði ég mig á því að ég á alveg nógu margar Lee gallabuxur. Allavega núna. Kannski breytist skynsemisviðhorfið eftir nokkra daga. Eins flottar og Lee gallabuxur eru þá er eins og heimasíða Lee sé aðeins á eftir.
Þegar maður leitar að venjulegum kvenmannsbuxum poppa þessar upp og fleiri álíka hallærislegar.

Svo er ég einnig komin í ritstjórn Latínublaðsins ásamt þremur föngulegum stúlkum. Ég hlakka mikið til að vinna í þessu og vona að blaðið komið vel út. Svo sér Arga litla um umbrotið og fjórar álitlegar stúlkur skipa auglýsinganefnd. Ég hlakka til samstarfsins.

Mér finnst Twiggy mjög falleg þegar hún var ung.

Edda


Edda eða Egill kl. 11:16 |

=================

föstudagur, nóvember 25, 2005


Það eru tónleikar í kvöld!
Helgi Hrafn Jónsson er að spila á Gauki á Stöng.
Kostar 1000kall.
Pétur Ben. hitar upp.
Allir að mæta!

Hann var líka með tónleika í gær úti á nesi.
Ég fór ásamt systur minni og mági.
Þeir tónleikar voru frábærir og ég hvet engan til að missa af í kvöld.
Einnig mæli ég eindregið með disknum hans Glóandi sem er nýkominn út hér á landi.

EGILL


Edda eða Egill kl. 19:23 |

=================

laugardagur, nóvember 19, 2005


Í gær horfðum ég og Kári á þrjá Wallace and Gromit þætti. Ótrúlega skemmtilegir. Í dag fór ég svo að vinna. Til mín í búðina komu Davíð Oddsson og lítil stelpa með sítt hár og skalla. Davíð keypti krossgátublað og 5 happaþrennur, (sorrí, Davíð, ef þú ert að lesa, að ég skuli uppljóstra þessu).
Svo er Lilja búin að klukka mig í klikkuðum klukkleik. Ég ætla að leggjast í það bráðum að svara því. Það tekur örugglega nokkra tíma.
En nú er ég komin í partígallann og á leið út úr dyrunum.

Bless, bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 21:30 |

=================

fimmtudagur, nóvember 10, 2005


Í gær varð ég vitni að þessu samtali. Eða þetta var öllu heldur eintal :

Tillastelpa í 6.bekk, nát I: Hvaða bekkur er þetta inni í stofunni okkar
Ágætis gaur: Fimmti bekkur, málabraut, held ég.
Tillastelpan: Málabraut, pfff. Ég get bara ekki farið þarna inn á meðan þau eru þarna. Ég myndi kannski sætta mig við náttúrufræði II en málabraut...

Já, þessi ágætisstelpa hefur kosið að taka líffræðina á líf sitt og er henni það alveg valfrjálst en hún ætti nú ekki að vera með eitthvað yfirborðskennt diss. Maður losnar víst aldrei við fordóma. Ekki einu sinni innan verndaðra veggja Menntaskólans í Reykjavík.

Ágætur flippaður fimmtudagur.Ég komst að því að það er mjög mikilvægt að gera grindarbotnsæfingar svo að maður fái ekki þvagleka. Ef maður fær þvagleka getur maður ekki farið á bíó, leikhús eða tónleika, þar sem maður þarf að sitja lengi, og maður þarf að nota þvaglekableiu. Einnig krufði ég svínshjarta, 400 grömm að þyngd. Svo notaði ég töng og kroppaði allt hálfstorknaða blóðið úr hjartanu. Ég fékk þar mikla útrás og samkrufningarmaður minn, Brynja, líka.

Þá er bara um að gera að fara að lesa Die sechs Schwa(umlaut)ne eða Njálu. Eða kannski bara horfa á Friends og bíða eftir Svona var það 76.

Bless, bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 19:06 |

=================

mánudagur, nóvember 07, 2005


Nú er helginni lokið. Um helgina borðaði ég 7 pylsur og 2 og hálfan hamborgara.

Í gær var fyrsta Svefnþorn æfingin síðan í desember haldin. Gekk bara vel. Enginn mundi gömlu lögin og ég lenti í þriðja sæti í fótboltaspilsmóti.

Lokaball Kvennó 2004
Lilja: Þú ert svolítið hljómsveitarlegur, ertu í hljómsveit?
Egill: Já.
Lilja: Hvað heitir hún?
Egill: Svefnþorn.
Lilja: Hey, ég þekki trommarann!
= Tadaaa!


Edda eða Egill kl. 17:18 |

=================

föstudagur, nóvember 04, 2005


Það er kveikt á útvarpinu og mér finnst ég knúin til að skrifa hér nokkrar línur. Það er verið að spila lag með Svölu Björgvinsdóttur. Er það bara ég eða er hún ógeðslega leiðinleg söngkona? Ég þoli ekki hvernig hún syngur og svo eru lögin bara leiðinleg.

Ég er farin að hlakka ótrúlega mikið til jólanna. Ég er mjög sátt við að vera búin í prófum 15. desember. Það er bara frekar snemmt finnst mér einhvern veginn. 21.-23. desember verð ég að vinna í Úlfarsfelli sem verður vonandi bara gaman og kósí. Óska fullt af fólki gleðilegra jóla og sel gjafapappír, bækur og jólamerkimiða. Frá 15. des til 21. des get ég þá gert allt það jólalega. Bakað, keypt gjafir, skreytt og skrifað jólakort. Mmmm.... og drukkið kakó.

Bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 17:55 |

=================