Jólin eru góður tími. Þá hefur maður tíma til að gera margt skemmtilegt. Hitta fjölskylduna, borða góðan mat, fara í bestu messu sem þú hefur farið í, opna pakka, sofa lengi,
setja myndir á netið, vinna, lesa Flugdrekahlauparann, láta pabba þinn skipta um batterí í i-podnum þínum og horfa á Little Britain.
Þetta allt er ég búin að gera og aðeins meira til.
Fyrir alla þá sem langar að fara vel með i-podinn sinn:
Keep iPod comfy:
-Operating temperature range: 32° F to 95° F (0° C to 35° C)
-Storage temperature range: -4° F to 113° F (-20° C to 45° C)
-Do not leave iPod in a vehicle's interior when parked in the sun. Temperatures may reach up to 150° F (65 °C).
-Do not leave iPod exposed to direct sunlight for extended periods of time.
-Do not charge iPod while it is in a carrying case or cover.
-Put iPod to sleep to save battery life. Press the Play button until iPod goes to sleep.
-Charge the battery every 14 to 18 days when not in use. Even when iPod is off it is in a sleeping state that requires power. Without use, iPod's battery needs to be charged about every 14 to 18 days to be ready for use.
-If iPod displays a "Low Battery" icon, connect it to the Apple iPod Power Adapter and plug the power adapter into an electrical outlet. You may also be able to charge iPod by connecting it to your computer. Make sure the computer is turned on, and is not set to go to sleep.
Jólakveðja, Edda.

Www.eddaogegill.blogspot.com óskar lesendum sínum gleðilegra jóla.
Edda eða Egill kl.
01:02 |
=================
mánudagur, desember 19, 2005
JÓLALAGASAMKEPPNI RÁSAR 2 2005!Lagið Jólanótt eftir Magnús Inga Sveinbjörnsson. Úrslit kynnt í dag. Allir að kjósa Magga! HÉReða hringja í síma 5687123 og kjósa lagið. Takk fyrir.EGILL
Edda eða Egill kl.
12:08 |
=================
fimmtudagur, desember 15, 2005
Nú leikur lífið við mig og vinkonur mínar þar sem við vorum að klára prófin! Það er unaður! Og sérstaklega góður og flippaður fimmtudagur í dag. Eftir stærðfræðiprófið sem ég massaði fórum við á Kaffibrennsluna en svo upp í Kringlu. Þar röltum við stúlkurnar um og hittum fullt af fólki sem einnig var að fagna próflokum í Kringlunni.
En nú sit ég inni í stofu hjá Soffu með henni, Hildi Helgu og Guggu og erum við að horfa á aðra seríu af The O.C,, sem Helga Svala var svo góð að lána okkur. Hér er góð stemmning. Zack var að segja að þau Summer ættu kannski bara að taka baby steps en Hildur heyrði baby sex.
Í kvöld er það svo náttúrulega Bachelorinn, jú, jú. Allir fylgjast með því, veit ég. Ég og amma sitjum spenntar yfir sjónvarpinu.
Ég læt fylgja hér með myndir af stúlkunum sem ég er með núna, því þær eru jú svo sætar.



Edda eða Egill kl.
18:03 |
=================
þriðjudagur, desember 13, 2005

Í apríl á næsta ári hef ég átt gsm símann minn í 5 ár (vona að hann gefi sig ekki þangað til). Mér þykir það afar ánægjulegt enda höfum við átt gott samstarf. Fjöldi góðra símtala hafa átt sér stað í tíð hans, svo ekki sé minnst á sms-in sem eru alltaf skemmtileg. Elsta sms sem ég er með í símanum mínum fékk ég sent annan október 2004. Ég er nefnilega ansi gjörn á að geyma góð skilaboð. Ég og síminn, eins og ég kýs að kalla hann, höfum einnig lent í ýmsu skondnu. Til dæmis þegar Bolli Thoroddsen hringdi, talaði við mig í korter og bauð mér heim til sín. Og þegar ég missti greyið ofan í heitan pott. Og þegar ég ætlaði að hringja í gemsann hans Kára en hringdi óvart á Nings. Ég veit í alvörunni ekki hvernig ég fór að því. Einnig ætlaði ég að senda mömmu minni sms um daginn en fékk í sömu andrá sms sjálf (fannst það rosa gaman að fá sms um leið og ég var að senda sms) en ég hafði þá bara sent sjálfri mér sms-ið. Já, ég vona að ég og síminn minn eigum eftir að meika það í alla vegana þessi 5 ár. Endilega lengur.
Um helgina fór ég á The Green Street Hooligans í bíó. Myndin hefur fengið lélega dóma í fjölmiðlum, en vá, hvað mér fannst hún góð. Ég lifði mig inn í myndina (þó ég sé nú ekki mikið í slagsmálunum) og táraðist tvisvar af reiði. Elijah Wood er ágætur en bestur er Charlie Hunnam, föngulegi maðurinn á myndinni hér. Hann var frekar broddaklipptur í myndinni og ekki var það verra. Ég féll fyrir honum! Og ég mæli með þessari mynd.
Edda
Edda eða Egill kl.
10:53 |
=================
sunnudagur, desember 11, 2005
Halló. Nú blogga ég ekki eins og allir aðrir af því þeir ættu að vera að læra heldur af því allir aðrir eru að læra.
Það er ekki eins mikið stuð að vera ekki í prófum eins og maður hefði haldið. Allir aðrir í prófum svo maður er hálf einmana og svo er lítið sem ekkert jólafrí.
Voðalega eru
þau lengi að fatta.
Ég er búinn að sjá og lesa viðtöl við Unni Birnu sjálfa og báða foreldra hennar og öll segjast þau ekki vera búin að átta sig á eða ná þessu.
En engu að síður óska ég henni innilega til hamingju. Fékk gæsahúð og allt. Uss...
EGILL
Edda eða Egill kl.
19:22 |
=================
föstudagur, desember 09, 2005
Do you know... I love you!...var subject á e-maili sem ég fékk áðan svo ég ákvað að kíkja á gripinn ef ske kynni að ég ætti einhvern leynilegan aðdáanda. Það var þá ekki annað en þetta; í fyrsta lagi typpabréf og í öðru lagi, alveg einstaklega léleg enska.
S-ensational revolution in medicine!
Enlarge your penis up to 10 cm or up to 4 inches!
It's herbal solution what hasn't side effect, but has 100% guaranteed results!
Don't loose your chance and but know wihtout doubts, you will be impressed with results!
Jájá, enginn leynilegur aðdáandi þarna á ferðinni, veit ekki einu sinni hvers kyns ég er :(
Edda

Edda eða Egill kl.
13:42 |
=================
fimmtudagur, desember 08, 2005

Systkinin ein heima. Þá er bloggað, horft á Pimp my ride og spilað á píanó. Það er huggulegt.
Ég hlakka til jólanna. Þau verða hugguleg. Þá ætla ég að gera margt huggulegt og skemmtilegt. Og vinna, sem er huggulegt. Á miðvikudaginn tók ég svínslegalangt þýskupróf. Ég er mjög fúl út í Kristínu Kött. fyrir að hafa ekki sýnt okkur smá miskunn. Ég elska hvað allir blogga mikið í prófunum. Ég er að fílaða.
Áðan eyddi ég alllöngum tíma á Bókhlöðunni og fór svo í ísbúð ásamt Soffíu og Guggu. Ís í desember. Gott.
Bless, Edda.
Edda eða Egill kl.
19:20 |
=================
þriðjudagur, desember 06, 2005

Harry Potter
You crave your own knight in shining armour: the
guy who will swoop in and save you, and manage
to be a sweet lover and good dad all at the
same time. You are the girl he's fighting for!
Who is your Harry Potter love match? (for girls)Ég var nú reyndar að vonast eftir Cedrig, en allt í lagi...
Edda eða Egill kl.
10:17 |
=================
laugardagur, desember 03, 2005

Það er mjög erfitt að læra latínu þegar heimilið ilmar af ótrúlega góðri matarlykt og foreldrar manns eru að hlusta á jólalög inni í stofu. En ég er fegin að á mánudaginn er latínupróf en ekki eitthvað annað því mér finnst nú skemmtilegra að læra fyrir latínu en margt annað. Málfræðin er mest öll í höfn og á morgun tekur Quintus sæti við.
Í gær fór ég á Harry the Potter og eldbikarinn hans. Ótrúlega var það skemmtilegt. Ótrúlega flott og gamansöm mynd og ekki spillti unga kossaglaða parið sem sat efst í salnum fyrir. ?Well, go off to your knitting.? Ahahaha... fyndið. Weasly bræðurnir eru óborganlegir. Og Cedrig Diggory er það líka. Ansi myndarlegur, kappinn sá.
En nú ætla ég að kíkja á Spaugstofuna, og skutla svo Agli í partý.
Bless; Edda.
Edda eða Egill kl.
20:16 |
=================
fimmtudagur, desember 01, 2005

Jæja, þá er ég officially búin að borða yfir mig. Ég held þó ekki að ég hafi borðað upp í vélinda eins og vinur minn í sumar, en ég er ansi södd.Ég tók að mér að elda fyrir fjölskylduna í kvöld og ég eldaði bara svo góðan mat að ég og Egill tæmdum kjúklinga-fajitas-mauk fatið í sameiningu þó við værum orðin ógeðslega södd.
En það er eitt skemmtilegt og stundum ekki svo skemmtilegt við það þegar ég elda eða baka. Það misheppnast alltaf eitthvað. Einu sinni ætlaði ég að steikja brauð en það varð bara svartur klumpur með deigi inni í og síðustu jól bakaði ég smákökur sem hægt hefði verið að rota mann með. Og í þetta sinn var engin breyting á.Það var reyndar ekki alvarlegt í þetta sinn. Ég byrjaði á því að kveikja á ofninum og fór síðan bara að steikja og skera það sem þurfti. Þegar líða tók á eldamennskuna fór ég að finna dálitla brunalykt en kippti mér lítið upp við það. Þá kom pabbi inn í eldhús, setti upp pottaleppa, opnaði ofninn og dró þaðan út ofnskúffu fulla af brauðskorpum. Svörtum brauðskorpum. Mamma hafði hugsað sér að búa til rasp úr þeim, en það verður víst ekki hægt. Nema hún vilji svart rasp. Þaðan kom þá þessi brunalykt.
Í dag tók ég mikla skyndiákvörðun og keypti mér miða á stórtónleikana í janúar. Það verður vonandi ansans gaman. Ég veit ekki hvernig maður segir pungur á ensku. Ég spurði nokkur bekkjarsystkini mín og við vorum öll í vafa. Komum okkur þó saman um þaðað "sack of balls" eða "sack of testicles" væri brúklegt.
Fríða systir mín er skondin lítil stúlka sem kann sína ensku:
-"Holy moly are we in a pickle now!"
og þegar hún var að leita að 100 kalli til að fara í sund:
-"Here you are, you silly hundred."
Það er geðveikt að Twiggy skuli taka við af Janice Dickinson sem dómari í ANTM.
---Edda---
Edda eða Egill kl.
19:58 |
=================