Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


fimmtudagur, janúar 26, 2006



Rigningardagur. Vætan seytlar niður gluggana í stofu 10. Athlete ómar í eyrum mínum og mig langar til að vera á Hróarskeldu. Möndlur og rúsínur í poka og norsk grein um "ordet gud i isländskan."

Svona var dagurinn minn. Mjög rólegur og bara frekar huggulegur. Við enduðum skóladaginn á að syngja þýska stúdentasöngva (sem Kári Sigh vildi reyndar segja að væru nasistasöngvar). Eftir skóla las ég nokkrar blaðsíður í Death of a Salesman og fór í nýju vinnuna mína. Skúringar og tiltekt. Það var hressandi og ég var dugleg. Pasta með pabbasósu í kvöldmat og hugarangur yfir því hvort ég eigi að fara í ræktina eða ekki. Sleppum því bara, Egill.

Um daginn lenti ég í dálitlum merkilegu. Ég fór á Íþöku til að læra
málvísindi áður en að skólinn byrjaði. Þegar ég gekk inn í lessalinn voru þar tvær manneskjur, og báðar rauðhærðar. Svona eldrauðhærðar. Eftir dálitla stund þegar ég var búin að komast yfir þetta gekk annar maður inn, og hann var líka eldrauðhærður! Við vorum þarna fjögur og ég sú eina sem bar ekki rauða litinn á höfði mér. Þeim hlýtur að hafa fundist þetta furðulegt líka. Sama dag fór ég í Sundhöllina, áður en ég skyldi hefja störf í nýju þrifnaðarvinnunni minni. Ég hafði ekki komið í sundhöllina síðan ég var lítil (ekki nema þegar ég fór að horfa á tískusýningu þar, en þá var ég bara á bakkanum). Sundhöllin hefur orð á sér fyrir að vera gömul og góð sundlaug með marga fastakúnna. Mér leið illa þarna. Klefarnir voru gjörsamlega óskiljanlegir. Konan í afgreiðslunni gaf mér einstaklingsklefa og ég fékk innilokunarkennd í honum. Það var of dimmt í lauginni, fannst mér, og hún var allt of djúp. Eftir að hafa synt eina ferð (ég gat ekki meira því mér fannst þetta svo óþægilegt) fór ég út í pottana. Þar voru bara útlenskir, feitir karlar með yfirvaraskegg. Eftir að hafa verið ofan í í um það bil fimmtán mínútur fór ég upp úr. Mig langar ekki að fara þarna aftur í bráð.

Heilsuhorn:
-Allir ættu að drekka nóg af vatni til að fá ekki nýrnasteina sem er víst sársaukafyllra en að fæða barn.
-Allar konur (karlar mega líka) ættu að gera grindarbotnsæfingar til að fá ekki þvagleka. Þá þarf að nota bleyju.
-Kári ætti að fara í bólusetningu gegn hettusótt.

Bless bless, Edda.

Myndir eru komnar á netið frá söngkeppninni.


Edda eða Egill kl. 21:52 |

=================



Af hverju er Bubbi alltaf með þessi sólgleraugu?


Edda eða Egill kl. 19:18 |

=================

laugardagur, janúar 14, 2006


Ókei, ókei, ég vissi að það kæmi að því að fólk fengi leið á þessum skóm. Ég hef þó ekki enn fengið leið á þeim og hlakka til þegar ég verð orðin gömul og bólgin, með bjúg, og get farið að nota þá.
Vikan hefur liðið ekki alveg átakalaust. Ég hef glímt við mjög undarlega magakveisu. Mér er búið að vera óglatt á hverjum degi en hef þó aldrei gubbað. Það er óþægilegt, en samt ágætt að gubba ekkert. Svo eru ég og Egill búin að fá okkur kort í líkamsrækt og höfum verið dugleg að vörka bæseppinn með öllum steraboltunum. Í gær fór ég í BodyJam hjá Mána sem var það skemmtilegasta sem ég hef gert í laaangan tíma. Vissi ekkert hvað það var og svo vorum við bara að dansa allan tímann. Hann Máni kenndi okkur hip hop dans og Michael Jacksson dans og við stelpurnar í tímanum bánsuðum rassinum í takt við bítið. Það var stuhuð!

Au revoir, Kuchen für den Besuch, Edda.


Edda eða Egill kl. 00:41 |

=================

þriðjudagur, janúar 03, 2006




Þessa skó átti föðurbróðir minn. Mér finnst þeir geeeðveikt flottir!

En hér eru myndir frá gamlárskvöldi hjá Brynju.

Edda segir bless.



Edda eða Egill kl. 16:01 |

=================

sunnudagur, janúar 01, 2006


Ég hlakka til ársins 2006. Þá verða vöðvar ræktaðir. Þá verður Ragna Lára stolt. Ég er líka mjög ánægð með árið 2005. Það var virkilega gott ár. Ég er að hugsa um að setjast niður með blað og penna á eftir og rifja aðeins upp hvað ég gerði á árinu. Það er einhvern veginn allt í móðu. Allt rennur saman í eitt. Áralokunum var fagnað heima hjá mér og heima hjá Brynju og ég set myndir inn á eftir. Soffa er búin að setja myndir inn á netið. Kíkið á þær.

Bless, bless. Edda


Edda eða Egill kl. 22:05 |

=================