Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


laugardagur, febrúar 25, 2006


Þá er ég búin að laga hlekkjalistann. Fólk sem hætt er að blogga er farið og ég er búin að setja inn fullt af bekkjarsystkinum mínum og nýtt blogg Lenu. Já, svona er lítið að gera í vinnunni. Ég er búin að læra og lesa hálft bandaríska Vogue og afgreiða svona fimm manns og klára lakkrískurlið sem ég keypti í gær. Bara nokkuð huggulegt.

Mig langar mikið til útlanda. Ég fer til Marmaris í Tyrklandi 1. ágúst næstkomandi en þangað til held ég að ég verði bara að vera hér á Íslandi og vinna mér inn pening eða eitthvað álíka viturlegt. Mig langar á Hróarskeldu; Kayne West, Sigurrós, Placebo, The Streets og fleira. En ég mun ekki fara. Ég veit það. Mig langar líka til Parísar og London. Og svo sem alveg Kaupmannahafnar aftur. Mmm... mig langar í húsið okkar Soffu í Hellerup. Oh, Soffa það var svo gaman. Mig langar líka í tjaldið okkar Kára á Roskilde. Eða þá hotelherbergið á Hotel Löven. Mmm... það var nú gott.

Hér eru tvær skrýtnar myndir sem vekja upp góðar minningar


Jæja, já, bless, bless. Edda


Edda eða Egill kl. 11:42 |

=================

fimmtudagur, febrúar 23, 2006


Það er farið að birta þegar ég hleyp í vinnuna og það er ennþá bjart þegar ég labba heim. Vorið er hér um bil komið vona ég, á eftir vorinu kemur sumar og ég get ekki beðið, en þegar sumarið fer kemur haustið og þá stefni ég að því að fara að læra eitthvað.
Ég hef verið að hugsa um hvað þetta eitthvað ætti að vera af einhverri alvöru daglega í meira en ár. En sama hvað ég hugsa þá kemst ég aldrei að niðurstöðu.

Stundum þegar það liggur óvenju vel á krökkunum hjá mér hef ég smá tíma og þá sest ég gjarnan niður og krota eitthvað á blað. Í gær ákvað ég að skrifa niður alla skóla sem mér datt í hug að fara í.
Hér á eftir fylgir þessi listi og athugasemdir mínar.

Háskóli Íslands ? Ég hef rennt í gegnum námsgreinalista HÍ örugglega hátt í 100 sinnum og finn aldrei neitt sem heillar mig upp úr skónum. Og eins og ég hef margoft sagt áður þá langar mig ekki að byrja í einhverju bara til að byrja í einhverju.
Háskólinn í Reykjavík ? Enginn námsgreinin heillar mig.
Listaháskólinn ? Aðeins tónsmíðanámið er eitthvað freistandi en mig skortir tónfræðikunnáttu og eitthvað fleira.
Bifröst ? Langt að labba í skólann og námið ekki spennandi
Iðnskólinn ? Einkar óhandlaginn
Tónvinnsluskóli Þorvaldar Bjarna ? Dýr og ég er frekar lítið fyrir svona tækjadútl
Flugskóli Íslands ? Nei nei
Kennaraháskólinn ?Ég hef bara engan áhuga á að leggja kennslu af einhverju tagi fyrir mig.
Hússtjórnarskólinn ? Nehh...
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri ? Mehh...
Stýrimannaskólinn ? Blehh...
Lögregluskólinn ? Hef ekki áhuga á að hafa afskipti af fullu og dópuðu fólki með læti. Það felst örugglega eitthvað fleira í starfinu en ég hef eiginlega heldur ekki áhuga á því
Slökkviliðið - Nett lofthræðsla og hugsanleg næturvinna og eitthvað og eitthvað og eitthvað.
FB ? Höfðar ekki til mín
MK ? Á 21. ári og þurfti leiðsögn í að sjóða vatn í síðustu viku. Kokkurinn? Nei nei.
Háskólinn á Akureyri - Mjög svo langt að labba í skólann og ekkert í skólanum sem heillar mig það mikið þarna að ég leggi gönguna á mig.


Einhverjar fleiri hugmyndir?

EGILL


Edda eða Egill kl. 14:27 |

=================

föstudagur, febrúar 17, 2006


Var gaman á árshátíð? Já, það var gaman. En mér fannst samt skemmtilegra í partýinu. Duttu skórnir mínir í sundur? Já, þeir duttu í sundur. En þeir kostuðu líka bara þúsund krónur. Voru teknar myndir? Já, Soffa gerði það. En hún á eftir að setja þær á netið.

Mér finnst grátbroslegt að Arngunnur æskuvinkona mína sæta hafi einungis einu sinni setið með mér í bíl þar sem ég keyri og í það eina skipti klessti ég á ljósastaur. Æj, þetta er fyndið.

Sjást, Edda.


Edda eða Egill kl. 20:20 |

=================

laugardagur, febrúar 11, 2006


Kaffi í mávastellsbolla heima hjá ömmu og afa. Huggulegt. Ég lifi fyrir huggulegheit.

Í gærkvöldi fór ég á Brokeback Mountain með Soffu og Kára. Soffa grét en ekki ég. Kári vill ekki tjá sig mikið um þetta. Fólkið í salnum kunni ekki alveg að bregðast við á réttan hátt þegar Ennis og Jack voru eitthvað að gera sér dælt við hvor annan og sprakk alltaf úr hlátri. Ég skil það ekki alveg. Það er ekkert svo fyndið að sjá tvær manneskjur elska hvor aðra. Það finnst mér ekki.

Edda


Edda eða Egill kl. 15:52 |

=================

mánudagur, febrúar 06, 2006


Helgin sem var að líða einkenndist af skemmtunum og svefnleysi. Föstudagskvöldið var toppurinn! Þá var kokteilboð og það var svoo gaman. Myndir eru að finna hér, á síðunni hennar Soffu Dóru. Á laugardaginn hélt ég svo matarboð fyrir þreyttar vinkonur mínar. Það var gott að slappa af yfir súpu og brauði. Svo þurfti maður náttúrulega eitthvað að læra og vinna en samt sem áður, góð helgi.
Í dag fór ég í hressasta þýskutíma sem ég hef farið í. Christian, þýskur gaur frá Köln, sem ekur þýskufótboltabílnum út um allt land kom í heimsókn og skemmti okkur með æðislegum bröndurum og hressleika. Kristín Kött þarf nú að hafa sig alla við og brydda upp á nýju gríni svo hún falli ekki í skuggann af honum. Hún fer nú létt með það!

Ég er farin að dedda, Edda.


Edda eða Egill kl. 16:55 |

=================

laugardagur, febrúar 04, 2006


Það er ótrúlega skemmtilegt að kaupa sér föt. Græna slá, gul stígvél og gyllta háhælaða. Og það er ótrúlega skemmtilegt að hafa það gaman með vinkonum sínum. Cosmopolitan. Mojito. Fallegir kjólar. Jarðaber og súkkulaði.


Edda eða Egill kl. 18:46 |

=================