Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


sunnudagur, mars 26, 2006


éG eR BúInN aÐ vErA aÐ fArA YfIr (nenni þessu ekki lengur) gamalt skóladót nýverið. Einu sinni fékk ég háar einkunnir. Ég geymi þau próf. Hitt fer í ruslið.
Ég fann líka nokkrar skemmtileg ritunarverkefni. Meðfylgjandi saga er síðan í 9. bekk og heitir Mandarínumaðurinn.

Góðan Dag! Ég heiti Hjálmar Þorláksdóttir og er 91 árs. Ég bý á Hjarðarhaga 47. Ég vinn við að selja mandarínur og tissjú í Kolaportinu. Það er mjög gaman þó það sé ekki vel borgað. Ég fæ ellefu krónur fyrir hvern klukkutíma sem ég vinn. Ég fæ líka að eiga skemmdu mandarínurnar.

Ég stunda líka íþróttir til að halda mér í formi. Ég er í sundleikfimi annan hvern miðvikudag og hundrað metra hlaupi á mánudagskvöldum. Mér gengur vel í báðum íþróttunum. Í sundleikfimi í síðustu viku gat ég synt án þess að hafa kúta í fjóra og hálfa sekúndu en þá þurfti ég þá aftur svo ég mundi ekki drukkna. Þjálfarinn segir að bráðum verði ég orðinn nógu góður til að hætta að æfa í heita pottinum og geti fært mig yfir í barnalaugina. Ég held líka að ég sé orðinn frábær í hundrað metra hlaupi, ég held satt að segja að ég geti tekið þátt í Ólympíuleikunum næst og þá vinn ég örugglega. Ég get nefnilega hlaupið hundrað metrana á einum klukkutíma, fjörutíu og sex mínútum og fimmtíu og sjö sekúndum. Ég held að ef ég æfi aðeins betur geti ég slegið heimsmetið!

Ég er líka mikill lestrarhestur og safna símaskrám. Ég á þær allar frá 1977. Ég er búinn að lesa símaskrárnar frá 1977 til 1986 og bíð spenntur eftir að byrja á 1987 skránni.

Ég er líka í hljómsveit með vini mínum. Hljómsveitin heitir Mandarínumennirnir. Vinur minn spilar á greiðu og ég spila á þríhorn. Við stefnum að því að vinna Júróvision og verða heimsfrægir.


Edda eða Egill kl. 21:15 |

=================

laugardagur, mars 25, 2006


"Idus martii ársins í ár er með fyndnari blöðum sem ég hef lengi lesið".
-Tekið af skrubaf.blogspot.com, bloggi íslenskumeistarans Ármanns Jakobssonar

Það er mjög ánægjulegt.

Edda


Edda eða Egill kl. 11:38 |

=================

sunnudagur, mars 19, 2006


Mamma og pabbi spurja mig stundum hvort ég sé veikur þegar ég tek upp á því að þurrka af eða ryksjúga óumbeðinn.

Nú er ég hins vegar í alvöru veikur og þá er laggst í að parketleggja og mála herbergið mitt.

Ég reyndar ligg upp í sófa á meðan og horfi á fótbolta.

EGILL


Edda eða Egill kl. 13:10 |

=================

fimmtudagur, mars 09, 2006


Ritstjórnarávarp var samið í dag og þá fer bara latínublaðið Idus Martii alveg að smella saman. Ég hlakka til að sjá útkomuna því ég hef trú á virkilega skemmtilegum og fræðandi snepli.

Ég hef einkar mikinn áhuga á stelpulegum hlutum. Mér þykir mjög gaman að skoða Vogue og önnur tískublöð. Mér finnst gaman að borða nammi. Mér finnst gaman að stunda líkamsrækt og ég get grátið mikið (þó ekki yfir Bakbrotsfelli). Mér finnst gaman að vera í fallegum nærfötum og mér líður illa þegar hárið mitt er skítugt. Ég fæ stundum cravings fyrir ótrúlegustu hlutum; kornfleksi, Ab-mjólk, nammi og bjór (ég með cravings fyrir bjór!). Mmm... mér finnst gaman að vera stelpuleg stelpa. En ekki má gleyma því að margur er knár og allir eiga sínar myrku hliðar. ÚHÚÚU.
Já, í dag er flippaður fimmtudagur númer 81. Það er hressógaman.

Um bloggheiminn gengur núna skemmtilegur klukkleikur sem enginn hefur nú reyndað klukkað mig í. Maður á alla vegana að skrifa niður fernt eitthvað dót og þar á meðal fjóra staði sem maður hefur búið á. Mér finnst nú til heldur mikils ætlast. Ég er einungis átján ára og hef ekki búið á svona mörgum stöðum. Ég hef bara búið á Tómasarhaga 34 og Tómasarhaga 37. Það er allt of sumt, og ekki er fjölbreytnin nú mikil.

Mér finnst að allir þeir sem ekki hafa séð Wallace and Gromit-The Curse of the Were Rabbit ættu að horfa á hana um helgina.

Sjáumst seinna. Bless. Edda


Edda eða Egill kl. 21:23 |

=================

föstudagur, mars 03, 2006


Flippaður fimmtudagur #80...

...var í gær. Vá, ég er svo stolt. Þetta var góður dagur og bara ágætlega flippaður.
-Ég mundi ekki eftir því að það væri flippsi fyrr en klukkan 17:00
-stuldur
-Gettu betur
-Þetta samtal við Laufeyju:

Laufey:Edda, lastu Fréttablaðið í dag?
Edda: Uuu, nei, hvað var þar?
Laufey: Æj, bara, þetta var svo skemmtilegt blað.

Ég hef aldrei heyrt neinn tala svona um dagblað. Ég óska Laufeyju og endajöxlunum hennar góðs bata.

Ég var að koma af pubquiz á Grand Rokk. Þar var rokkað femínistastuð. Það var reykingalykt af gleraugunum mínum þegar ég kom þaðan út.

Í málvísindum höfum við komist að því með ítarlegri rannsókn að algengasta beyging grunnskólabarna í 6. bekk á örðinu hönd, er hér er hendi, um hendi, frá hendi, til hendi. Þetta er svolítið merkilegt.

Jess, bless. Edda


Edda eða Egill kl. 20:05 |

=================