Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


laugardagur, apríl 29, 2006





Haha, Kári Sigh. sagði sögu um sextuga konu sem gaf honum puttann.

Ég teiknaði konuna.

Ragnhildur var með myndavél.

Bitte.



Edda eða Egill kl. 12:57 |

=================

mánudagur, apríl 24, 2006


Egill pælir.

Ég var að horfa á einhvern þátt á Sirkus í fyrradag. Útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson var að kynna aðstæður hjá World Class. Hann sagði eitthvað á þá leið að það væri ekki bara ungt fólk sem sækti stöðvarnar heldur líka ellilífeyrisþegar og upp úr.

Þá fór ég að pæla: Hvað er upp úr ellilífeyrisþegum?

EGILL


Edda eða Egill kl. 22:09 |

=================

laugardagur, apríl 22, 2006


Ég og Egill tókum sama gírinn á'etta í morgun og ákváðum að koma okkur í form eftir lúðasveitarpartýið í gær. Ég hjólaði í ræktina en Egill var hér heima að æla. Ha. Ha. Ha!

Kolaportið er málið. Ég var að koma þaðan með henni Laufeyju stúdent í munnlegri frönsku. Ég keypti mér svarta háhælaða lakkskó, þeir heita víst Salamandra. Konan sá mikið eftir þeim.
KonaA "Passaði einhver í þá, já, sem sagt?"
KonaB "Já, hún er svo lítil, stelpan."
Þetta er alltaf að henda mig. Ég kaupi mér fallega skó og þá segir afgreiðslukonan mér að það hafi enginn passað í þá á undan mér. Því ég er, jú, með svo litlar lappir.
En Salamöndru skórnir kostuðu alla vega 300 krónur. Kolaportið er málið. Já, og það sást varla að þeir væru notaðir.

Ég seldi ljósmyndaranum þessi umslög. Myndin heitir Keðjubréf. Tekið af postkassi.andri.org.

Bless. Edda



Edda eða Egill kl. 14:11 |

=================

föstudagur, apríl 14, 2006


Hmm... já, já. Ég var að setja nokkrar myndir á netið síðan úr afmæli Brynju og afmæli Kára og Hilmars sem voru einmitt haldin sama kvöldið. Þessi mynd af mér og Soffu er aftur á móti gömul.

Ég hélt að sumarið væri að koma en nú er bara farið að snjóa. Heima hjá mér standa nú yfir framkvæmdir. Ég er að skipta um herbergi, Fríða er að skipta um herbergi og mamma og pabbi eru að skipta um herbergi. Jáh, það er úr nógum herbergjum að velja hér í húsi okkar. Ef einhver vill fá herbergi hjá okkur, gjörið svo vel! Við eigum nóg. Framkvæmdir fela í sér tiltekt og ég hef verið ansi iðin að taka til í skúffum. Þar hef ég fundið ýmislegt skemmtilegt eins og nokkur bréf frá Fríðu litlu systur. Við áttum það til að rífast þegar við vorum yngri (við börðumst aldrei, neih!) en við tókum það báðar nærri okkur og Fríða var gjörn á að senda mér afsökunarbréf eftir á. Í einu bréfinu stóð; "Elsku Edda, firigefðu hvað ég var leiðileg við þig. Ég skal reina (svo búið að krassa yfir reyna) hætta því."
Svo fann ég annað; "Edda, þú ert findin og skemtileg."

Alltaf gaman að fá svona skemmtileg bréf.

Bless. Edda.


Edda eða Egill kl. 15:02 |

=================

fimmtudagur, apríl 13, 2006


Flippaður fimmtudagur.
Ég ber Kjarvalsmálverk út úr bílnum mínum og Egill spilar á klarinettið!

Fúff!

Bless.


Edda eða Egill kl. 21:56 |

=================

mánudagur, apríl 10, 2006


Fyrsti dagur páskafrísins er kominn langt á leið. Ég er búin að gera margt huggulegt; horfa á Amélie, fara í bæinn með Fríðu systur og svo var ég nú að enda við að baka sjónvarpsköku. Nú bíð ég bara eftir að fjölskyldan komi heim úr vinnu sinni svo ég geti gefið þeim köku.

Og mjólk.

Bless, bless.
Edda.


Edda eða Egill kl. 15:37 |

=================

föstudagur, apríl 07, 2006


Að hlusta á tónlistina úr Amélie og skrifa þýskuritgerð er góð skemmtun. Það er reyndar auðveldara að hlusta á tónlistina heldur en að skrifa ritgerðina en þessir hlutir renna vel saman og vonandi verður útkoman bærileg.
Að taka þátt í uppsetningu leikrits með lúðrasveitinni minni var líka góð skemmtun. Og í kvöld fer ég í lúðrsveitarpartý. Það verður góð skemmtun líka, geri ég ráð fyrir.
Góð skemmtun í nútíð, þátíð og framtíð. Lífið allt er bara nokkuð góð skemmtun.

Í gær keyrði ég heim til Kára. Ég hef ekki skemmt mér jafnvel lengi og ég gerði á leiðinni. Ég var með i-pod og i-trip og stillti Harder, better, faster, stronger með Daft Punk í botn. Prófið þetta. Það er ógeðslega gaman. Því þetta lag er svo töffað.

Ég veit ekki hvaða orð ég á að nota yfir skrýtinn frænda í þýskuritgerðinni minni. Merkwürdig. Besonders. Ganz anderes. Óhó!

Bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 16:37 |

=================

sunnudagur, apríl 02, 2006


Ég las skemmtilega frétt um daginn ( ekki í gær 1. apríl, tek það fram).
Þar sem margir MRingar lesa þessa síða ákvað ég að setja þetta inn.

Það stóð að líklega stæði til að nafni Menntaskólans í Reykjavík yrði breytt.
Nafnið er nefnilega orðið úrelt og þess vegna þarf nýtt!

Á sínum tíma stóð hann undir nafni en núna eru svo margir menntaskólar í Reykjavík að nafnið gengur ekki. Alveg eins og Kvennó er oft kallaður Menntaskólinn við Fríkirkjuveg, þó það kalli hann náttúrulega flestir ennþá Kvennó.

Það stóðu líka nokkrar tillögur að nýju nafni. Misgáfulegar.
Hér eru nokkrar:

- Menntaskóli í Reykjavík
- Menntaskólinn við Lækjargötu
- Lærði skóli
- Einn af Menntaskólunum í Reykjavík. (uppáhaldið mitt)

Þetta var bæði í Fréttablaðinu og Mogganum svo það hlýtur að vera eitthvað til í þessu. Sá þetta reyndar ekki í Blaðinu eða DV.

EGILL


Edda eða Egill kl. 23:30 |

=================