Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


mánudagur, maí 29, 2006






!Gad í ilæmfa á gé


Edda eða Egill kl. 00:18 |

=================

fimmtudagur, maí 25, 2006


Þessi mynd er eitt það fyndnasta sem ég hef séð. Arngunnur, reykur, ranghvolfin augu. Steikt stemmning.

Edda

www.photos.yahoo.com/eddahalldo


Edda eða Egill kl. 15:20 |

=================

miðvikudagur, maí 24, 2006


Í þessu kalda veðri get ég ekki gert annað en að liggja í dvala. Ég náði mér í hrottalegt kvef og hálsbólgu með á laugardaginn og er nú bara búin að vera að ná því úr mér. Það hefur nú reyndar bara verið huggulegt. Að liggja undir sæng og horfa á Friends og svona. Í gær leið mér þó betur og fór á tónleika hjá forsprakka Jethro Tull, honum Ian Andersson. Ég fékk boðsmiða á tónleikana og vissi ekki við hverju ég ætti að búast, en hann spilar á þverflautu og það hlaut að verða ágætt. En þetta var sko meira en ágætt. Þetta voru bara rosalega flottir tónleikar í alla staði. Svo spilaði með honum 22 ára fiðlustúlka að nafni Lucia Micarelli sem setti punktinn yfir i-ið á glæsileika þessara tónleika. Ian sjálfur var ótrúlega fyndinn og skemmtilegur og söng og spýtti í flautuna sína. Mjög skemmtilegt.

Á laugardaginn síðasta skemmti ég mér með vinkonum mínum og myndir þaðan má sjá á myndasíðunni hennar Soffu sem er með link hér til hægri. Kíkið á skemmtilegar stelpumyndir.

En nú er ég farin að sækja einkunnirnar mínar og segja skilið við MR í næstsíðasta sinn.
Bless, bless. Edda.


Edda eða Egill kl. 11:42 |

=================

fimmtudagur, maí 18, 2006


Hver kannast ekki við setningar á borð við "ef þorskur kemur upp þá ætla ég að læra í kvöld, annars fer ég í bíó?"

Já, ég segi það. Stærðfræðibókin mín kann sko lagið á unglingum. Hver kannast ekki við svona setningar. Æj, þetta er svo fyndið.
En ég er að öllum líkindum orðin stúdent í stærðfræði (sjöníuþrettán) og það er gaman. Einnig er ég búin í prófum sem er líka gaman. Ég keypti mér Vogue til að fagna. Það var gaman. Svo horfði ég líka á Barcelona-Arsenal og það var sko gaman, því Börsungar unnu. Ég elska Frank Rijkaard.

Þessi skósíða síða er ógeðslega skemmtileg.

Bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 11:45 |

=================

mánudagur, maí 15, 2006


SUMAR
Nú nálgast sumarfríið með allan sinn ís, alla sína sól, freknur, hlaupatúra, sundferðir, ljóst hár og freknur. Sumarið er best. Veturinn er huggulegur, en sumarið er langbest. Vorið og haustið eru góð líka, en sumarið er samt bara best. Ég hlakka til að komast í sumarfrí. Engar skyldur, maður gerir bara það sem mann langar. Og fer til Tyrklands og verður brúnn og ljóshærður og fær freknur. Síðasta sumar var yndislegt. Þá vann ég á Gatnó sem gaf mér ljóst hár, freknur og nýja vini. Svo fór ég til Hróarskeldu sem var ógeðslega gaman og svo naut ég bara sólarinnar hér í Reykjavík.

Síðasta sumar:




















Singstargleði





Með von um að allir eigi eins gott sumar og síðasta sumar. Eða betra. Edda (myndir koma síðar, blogger er ekki í stuði)



Edda eða Egill kl. 22:44 |

=================

þriðjudagur, maí 09, 2006


Að læra fyrir stúdentspróf í líffræði getur gert þig dálítið freðinn í hausnum. Sérstaklega ef Örnólfur Thorlacius getur ekki alveg ákveðið um hvað hann vilji tala í bókinni sem hann og skrifaði og ætlast til að unglingar lesi fyrir próf.

"Hér verður vefjum í plöntum ekki lýst,"

"Eyrum skordýra verður ekki lýst hér"

og

"Á myndinni eru dæmi um helstu gerðir liða en ekki verður fjallaði nánar um þá hér."

Öll bókin er svona. Örnólfur telur upp hluti sem hann ætlar ekki að tala um. Það gagnast mér ekki neitt, Önni minn.

Edda.

P.S. Já, Egill var víst að slá persónulegt met og bloggaði tvisvar í röð svo þið ættuð kannski að kíkja á færsluna hans hér fyrir neðan. Enda rosalegar fréttir þar á ferð.


Edda eða Egill kl. 19:54 |

=================

mánudagur, maí 08, 2006


Líf og fjör í vinnunni

tekið af visir.is :

Maður með hníf í hendi kom á leikskólann Hagaborg
"Maður í annarlegu ástandi og með hníf í hendi kom á leikskólann Hagaborg um fjögurleitið í dag, en hann huggðist sækja barn sambýliskonu sinnar. Starfsfólki tókst að tala manninn til og lét hann frá sér hnífinn áður en til vandræða kom. Lögreglan í Reykjavík var kölluð á staðinn og færðu þeir manninn í sínar vörslur. Sambýliskonu mannsins var ekki kunngugt um ástand hans en talið er að hann eigi við lyfjafíkn og andleg veikindi að stríða."

EGILL


Edda eða Egill kl. 19:40 |

=================

miðvikudagur, maí 03, 2006

















*Beislaðu nú aðeins orku þína.

*Þér ber að gegna

*Bend over

*Gå ud.

*Hinnfóturinnfaddiralala

Kannski ekki hægt að ætlast til þess að þau hlýði ef þau skilja ekki það sem ég segi.


Edda eða Egill kl. 22:24 |

=================

þriðjudagur, maí 02, 2006


Ég á mér mörg uppáhöld. Lindu-Buff, að fara út að skokka í morgunsárið þegar það er sól, liggja ein í stóra rúminu mínu og fleira. En að læra enskar glósur fyrir próf sem kallar sig Enskur stíll er ekki eitt af mínum uppáhöldum. Þess vegna hef ég ákveðið að hlusta frekar á Muse, skoða Vogue og hangsa í tölvunni.

Guy Bourdin er franskur ljósmyndari sem tekur aðallega erótískar, seiðandi tískuljósmyndir. Verk hans má finna hérhttp://guybourdin.org/cgi-bin/showthumbs.pl?1024 og er það ansi athyglisvert að skoða myndirnar hans.

Ég vil óska Magnúsi Inga til hamingju með að vera orðinn 20 ára.

Ég hlakka til sumarsins. Það er búið að bjóða mér vinnu á Gatnó eins og síðasta sumar. Það leggst bara ágætlega í mig nema að núna vill ekki svo skemmtilega til að æskuvinkona mín verður að vinna með mér. Nei, ég veit bara ekki um neinn sem er að vinna á Gatnó í sumar. En eins og síðasta sumar vona ég að þetta sumar kynnist ég jafnskemmtilegu fólki og ég gerði þá. Það er líka svo yndislegt að vinna úti. Fá smá ljósan lit í hárið og smá rauðku í andlitið. Svo skellir maður sér náttúrulega til Tyrklands. Þar fær maður enn ljósari lit í hárið og kannski smá brúnku í stað rauðku. Hressandi.

Þar sem ég er ekki í alveg eins mörgum prófum og vinir mínir hef ég haft dálítinn tíma aflögu til að dunda mér og er ég núna búin að sauma mér eina peysu og einn kjól. Það er svo gaman að sauma.

Eeeeeeen, kannski ég ætti aðeins að líta á þessar ensku glósur fyrir próf sem kallar sig Enskur stíll. Bless. Edda.


Edda eða Egill kl. 02:06 |

=================