Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


fimmtudagur, júní 22, 2006


Ég á við vandamál að stríða sem ég bara skil alls ekki. Ég nota gleraugu. Það er ekki vandamálið. En síðustu tvo daga hefur sólin skinið á andlit mitt í garðavinnunni og ég er komin með gleraugnafar. En ég var með linsur báða dagana. Nefið mitt er ansi rautt og kinnarnar líka, en svo er bilið á milli augnanna skjannahvítt. Þetta gerist eiginlega alltaf. Nefið verður rautt en restin hvít. Ætli húðin sé búin að venjast þunga gleraugnanna svona vel að hún er hætt að taka við sólargeislunum? Ég vona ekki því ég ætla sko ekki að koma heim með gleraugnafar frá Tyrklandi í ágúst. Kannast einhver við þetta vandamál?

Brasilía er að rústa Japan í fótbolta. Ég sem hélt með Japan. Ég þoli ekki þegar sama liðið vinnur aftur og aftur.

Kveðja, Edda.


Edda eða Egill kl. 20:20 |

=================

fimmtudagur, júní 15, 2006


Ég veit að Hróarskeldubandið er stílbrot við ýmis tækifæri en ég held ég láti það bara detta sjálft af með tímanum. Ég hef ekki taugar í að taka það af. Æj, þetta er svo sem bara lítill efnisbútur, en hann geymir góðar minningar. Svo er ég líka búin að kaupa mér appelsínugulan kjól sem passar svona líka vel við appelsínugula bandið.

Þrátt fyrir að ég og Laufey séum að vinna subbulega slátturvinnu erum við duglegar að halda veislu í hádegishléunum og erum nú búnar að fara þrisvar á Kaffitár í hádeginu. Það er ótrúlega gott að hafa uppáhaldskaffihúsið sitt bara hér í Þjóðminjasafninu svona rétt hjá. Það brýtur vinnudaginn líka upp að fara og fá sér góðan kaffibolla í hádeginu og koma svo kannski við í Bóksölu Stúdenta og skoða fallegar bækur og ritföng.

Gærkvöldið var mjög huggulegt. Ég fór út að borða á Krua thai með nokkrum stúlkum og eftir góðan og of mikinn mat fórum við í nýja setrið hennar Sigrúnar sem er rosa huggulegt og sameinuðumst fleiri stúlkum. Þar drukkum við te og borðuðum Toblerone og spjölluðum um heima og geima. Ég skemmti mér mjög vel og tók nokkrar sætar myndir sem ég er búin að setja á internetið á myndasíðuna mína. Kíkið á þær. Sérstaklega held ég upp á krúttlegu hópmyndirnar.

Eigið huggulegt sumar.

Edda.


Edda eða Egill kl. 21:20 |

=================




Ég er búinn að fara þrisvar á Starican Mile í þessari viku!

EGILL



Edda eða Egill kl. 00:13 |

=================

þriðjudagur, júní 13, 2006


Pælingar Eddu

Hvað er málið með að Ragnhildur Steinunn sé alltaf í sömu, grænu blússunni í Kastljósinu. Þetta er falleg blússa en hún má nú alveg skipta.


Edda eða Egill kl. 20:25 |

=================

fimmtudagur, júní 08, 2006


Rainy Days And Mondays


Edda eða Egill kl. 23:19 |

=================

föstudagur, júní 02, 2006


Mig langar svo mikið að komast til útlanda. Mér er eiginlega alveg sama hvert ég myndi fara, bara eitthvert þar sem er gott veður og góður matur og ég get keypt mér falleg föt. Kaupmannahöfn, London, Berlín. Æj, bara eitthvað. Í gær fór ég í Kringluna því mig langaði svo í föt og keypti mér eiginlega svona grænar buxur. Sumarlegar og flottar.

Vinnan er góð nema þroskinn virðist vera eitthvað seinn að færa sig yfir samstarfsmenn mína. 'Gulur bíll' leikurinn er vinsæll og einnig að setja gras í hárið á hvor öðrum. Æ lov it.

Og eitt enn, mér finnst mjög flott þegar stelpur með lítil brjóst eru ekki í neinum brjóstahaldara og eru í einhverju flottum bol. Æ lov it.

Æj, þetta var kannski einum og kallalegt komment.

Bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 20:31 |

=================