Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, júlí 28, 2006


Þá er síðasti vinnudagurinn búinn. Hann var skemmtilegur en ekki alveg eins viðburðaríkur og síðasti dagurinn minn í fyrra. Ég fékk til dæmis ekkert bensín í augað í dag. Dagurinn einkenndist þó af almennri klikkun og verkstjórinn hafði það á orði að við værum öll að verða geðveik. Við ákváðum alloft að "grafa stríðsöxina" og "bera klæði á vopnin" en við héldum áfram að stríða hvert öðru og snúa út úr og grínast. Það vara gaman. Í lok dags föðmuðumst við þó öll og kváðum sátt. (Haha, ég var að fatta núna að maður segir "kvöddumst sátt" en þetta er bara svo fyndið).

Í gær fór ég á yndislega tónleika hjá Belle & Sebastian. Ég fór með Agli og skemmti mér stórkostlega við að hlusta á þessi skemmtilegu lög og fylgjast með hressri framkomu hljómsveitarinnar. Einnig gat ég ekki annað en starað á risastóru brjóst hæfileikaríku konunnar í sveitinni. Ég lærði einnig að það er ekki sniðugt að fara á tónleika í einu skónum sem þú átt sem eru of stórir á þig svo þú þarft að vera í ullarsokkum í þeim.

Kveðja, Edda.


Edda eða Egill kl. 15:59 |

=================

fimmtudagur, júlí 20, 2006


Í staðinn fyrir að safna hugmyndum að færslum í hausinn á mér og skrifa nokkrar stuttar færslur yfir nokkra mánuði ætla ég að bara að líma þetta saman í eina færslu núna.
- - - - - - - - -
Ég var að tala við Jón Kristján á Msn fyrir svolitlu síðan. Hann býr í Danmörku og við vorum að tala um hvað það yrði gaman ef ég og Fannsi skelltum okkur í heimsókn til hans. Ég ákvað að viðra þessa hugmynd við Fannsa og þar sem ég var í tölvunni ákvað ég að senda honum bara sms á netinu. Það var svo hljóðandi: Hello Fannsi. This is Mary. Here's an idea. Come to Danmark and visit Jon with me this summer. Mér datt ekki annað í hug en hann myndi fatta að þetta væri ég og skrifaði því ekki nafnið mitt undir. Daginn eftir hitti ég Fannsa en gleymi að minnast á þetta og hann gerir það ekki heldur. Svona 2 vikum seinna hitti ég hann og nú er Fannsi sko spenntur. Hann var nefnilega að fara til Danmerkur! Þannig var það nefnilega að Kærasta frænda hans hafði nefnilega sent honum sms á netinu og boðið honum í heimsókn til þeirra. Og hvað hétu þau nú... jújú Jon og Mary!!

- - - - - - - - -
Er enginn að safna gulum kóktöppum og fá HM fótboltamyndir fyrir? Bítta?
- - - - - - - - -
Í gær var ég orðinn þreyttur klukkan 11 en ég vildi ekki fara að sofa. Það var vegna þess að Love Monkey var endursýndur klukkan 1 og ég var mjög spenntur yfir því að sjá hann. Ekki af því að þetta á að vera karlaútgáfan af Sex & the City heldur af því að í þessum ákveðna þætti kom uppáhaldstónlistarmaðurinn minn, Ben Folds fram. Svo ég þraukaði til rúmlega eitt og þó að hann hafi bara verið á skjánum í svona hálfa mínútu fór ég að sofa með bros á vör klukkan hálf 2.
- - - - - - - - - -

Að lokum eru tvær bíóferðir á dagskrá hjá mér á næstunni. Superman og Over the Hedge (Ben Folds semur tónlistina í henni!). Áhugasamir um að slást í för með mér geta skráð sig (b)hér að neðan.

EGILL


Edda eða Egill kl. 22:53 |

=================

mánudagur, júlí 17, 2006


Nú er sko margt sem ég hlakka til. Ég á dálítið erfitt með að lifa í núinu því það er ekkert sérstaklega merkilegt að gerast núna. Ég hlakka til að fara til Tyrklands. Það er það næsta merkilega á dagskrá í lífi mínu. Ég hlakka til að byrja í skólanum því ég hlakka líka svo til að klára skólann. Ég verð að byrja til að geta klárað. Mér finnst æði að skólinn skuli byrja á föstudegi. Ég hlakka til að fara kannski til Þýskalands með þýskubekknum í hausthléinu. Kannski. Ég hlakka til að fara kannski með lúðasveitinni til San Fransisco um páskana. Kannski. Ég hlakka til að fara að öllum líkindum til Rómar næsta sumar með fornmálabraut. Ég hlakka til að útskrifast 1. jún í 2007! Ég hlakka til að ákveða hvað ég eigi að gera veturinn 2007-2008. Ætti ég að fara til útlanda eða ætti ég að vera hér heima og fara í háskólann eða ætti ég að vinna einn vetur? Þetta er allt eitthvað sem kemur til greina og ég hlakka til að ákveða mig.

Edda kveður með tilhlökkun í hjarta.


Edda eða Egill kl. 18:24 |

=================

laugardagur, júlí 15, 2006


Ég vil ekki vera leiðinleg og draga ykkur niður í eitthvað svað með mér, en ég verð bara að segja að þetta sumar er örugglega það leiðinlegasta sem ég hef upplifað hingað til. Það er þó ekki búið og ég á eftir að fara til Tyrklands og svoleiðis, en það er bara ekki búið að vera mjög skemmtileg í sumar.
Hins vegar var síðasta sumar besta sumar sem ég hef upplifað. Það hefur greinilega verið lognið á undan storminum í fleiri en einni merkingu. Veðurlega séð og einnig skemmtanalega séð. Sumarið 2005 var best. Veðrið á Íslandi var gott, ég var í ótrúlega skemmtilegri vinnu og fór í mörg vinnuparty, ég fór til Hróarskeldu sem er það skemmtilegasta sem ég hef gert og ég var bara almennt mjög hamingjusöm. Ef sumarið 2006 á ekki eftir að skána þá veit ég ekki hvað ég geri.

Ég er búin að fara allavega þrisvar á bíó í sumar, örugglega oftar samt. En fyrst fór ég á Keeping Mum sem var ótrúlega skemmtileg. Hinar tvær myndirnar voru ekki eins góðar, Click og The Break up. Maður mátti nú svo sem búast við því að þær yrðu ekkert sérstakar. Click var bara rugl á rugl ofan og The Break up var ekki mikið að gera upp úr söguþræði. En það er eitthvað við mig sem dregur mig á svona gelgjumyndir. Ég þyrfti eiginlega að fara að læra af reynslunni og eyða ekki 800 krónum í þær. Mig langar til dæmis mikið að sjá myndina Stick it núna. Úff... þetta sumar hefur örugglega þessi áhrif á mig.
Í kvöld ætla ég að reyna að skemmta mér. Elda með stelpunum og hafa það gaman. Og svo er ég að fara á lokatónleika Þremenningasambandsins sem verður örugglega huggulegt og fallegt.

Bless bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 14:28 |

=================

laugardagur, júlí 08, 2006


Thelma er sjúklega góð á tvíslá. Hún er mjög sterk og lenti í þriðja sæti á slá úti í Ungverjalandi. Hún er með vöðva. Massa. Ef hún myndi æfa sig væri hún ógeðsleg. Hún segir það sjálf. Nú er Þóra að taka vaxtaræktarkonuna á'etta fyrir okkur við lagið "nasty girl."Og Brynja biður okkur um að hækka. Nú hlammar Þóra sér á mig. Ég segi "áááá", en þetta var samt ekkert vont. Allir syngja með. Brynja var ekki með neinum sem hún þekkti á tveimur bestu tónleikum sem hún hefur farið á. Franz Ferdinand spiluðu í Kaplakrika. Thelma er leið að hafa misst af þeim, og Roger Waters.

Já, ég er í partýi heima hjá Brynju og það er mjög gaman. Laufey fær sér sopa. Brynja lýsir Rassa Prump fyrir Thelmu. "Förum á næstu tónleika."

Nú er engin tónlist því Brynja var að skipta um lag. En nú er hún komin aftur.

Thelma vill ekki að ég kalli hana Thelma Marín. Nú er ég hætt því.

Gaman.

Edda.


Edda eða Egill kl. 23:42 |

=================

mánudagur, júlí 03, 2006














Fyrir nákvæmlega 2 árum horfði ég á Punch-Drunk Love.


Edda eða Egill kl. 00:45 |

=================

laugardagur, júlí 01, 2006


Lífsins lystisemdir
Lífið, já. Það er bara ágætt. Stundum er það ekki gott. En oftast er það nú bara mjög gott og mér líður mjög vel. "Maður má ekki missa gleðina út af einhverju ekki merkilegu." Já, mér finnst það mjög vel orðað. Því gleðin er eitthvað sem skiptir rosa miklu máli. Mér finnst gleði alveg ótrúleg. Hún lætur manni líða vel og maður er hamingjusamur. Hlátur er líka frábær. Stundum finnst mér svo gaman og ég hlæ svo mikið að ég fæ einhverja klikkaða tilfinningu þar sem mig langar að taka lífið og fólkið í kringum mig og faðma það allt að mér. Gleðin, já.

Sólin hefur skinið óvenjumikið síðustu daga og ég er bara orðin dálítið tönnuð og ljóshærð. En við skulum nú bara bíða þangað til ég fer til Marmaris á Tyrklandi. Þá ætla ég að maka sítrónu í hárið á mér og koma brún og fersk til baka. Það verður gaman. Er ekki málið að skella sér í dagsferð og skoða Efesos? Hver vill koma með mér? Það er sko boðið upp á þetta, ég er ekki bara ein að skipuleggja þetta. Svo verðum við að fara í tyrkneskt bað og kaupa okkur fullt af drasli. En við skulum ekki borða smitað salat og ísmola.














Á eftir held ég upp í bústað með þremur vinkonum mínum þar sem við ætlum að grilla og hafa það kósý og gista eina nótt. Ég hlakka til því það er svo gaman að komast aðeins út fyrir Reykjavík og gleyma sér í góðra vina hópi.

Munið að spenna bílbeltin. Kveðja, Edda.


Edda eða Egill kl. 12:26 |

=================