Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


miðvikudagur, september 27, 2006


Halló.

Þetta blogg er tileinkað systrum mínum.

Ég gerðist svo djarfur um daginn að banna Fríðu litlu að fara út á stuttbuxum og stuttermabol. Það var skítkalt úti! Hún strunsaði inn í herbergið sitt og kom út aftur á kvartbuxum og ennþá á bolnum.
Ég lét undan.

Núna á laugardaginn sátum við síðan saman í sófanum að horfa á sjóvarpið. Ég vildi horfa á fótboltann en Fríða vildi horfa á Smash Hits. Hún var með fjarstýringuna svo hún skipti í sífellu um stöð við hávær mótmæli mín. Í eitt skiptið var myndband með Rachel Stevens á SH. Í kafla lagsins dansar hún um ásamt dönsurum. Dansararnir eru allir bundnir í borða sem ungfrú Stevens heldur síðan í. Ég var eitthvað seinn að mómæla og þá gellur í Fríðu: "Þú segir ekki nei við konur í bandi!"
Ég gat ekkert sagt.

Að lokum vil ég óska henni Eddu innilega til hamingju með tvítugsafmælið síðastliðinn sunnudag og bið hana vel að lifa.

EGILL


Edda eða Egill kl. 00:35 |

=================

þriðjudagur, september 12, 2006


Halló, we have to eat your car! Bogomil Font og Flís eru búnir að eyðileggja halló fyrir mér. Ég fæ þetta lag á heilann í hvert skipti sem ég segi halló. Halló.

- - - - -

Ef Magni vinnur ekki getur hann allavega huggað sig við Stefgjöldin sem hann fær í Desember. Ætli það verði hætt að spila Á móti Sól lög svona mikið þegar þetta er búið? Hefur einhver heyrt Til hamingju Ísland eftir Júróvisjon?

Ef þið fíluðuð frumsamda lagið hans Toby um daginn þá mæli ég með drengjunum í Áströlsku sveitinni The Living End. Þeir eru hressir.

Ég ætla að vera með sms kosningu sem er miklu betri en Rockstar. Númerið er 8497811, kostar nálægt 10 krónum og það er hægt að kjósa alveg fram á mánudag. Líka á daginn.Kved addla tyl að kjósa! Yes!

- - - - -

Í öðrum fréttum er það helst að ég er alveg að pluma mig bara ágætlega í guðfræðinni. Get ekki beðið eftir að læra að tóna, það er víst erfiðara en það hljómar.


EGILL


Edda eða Egill kl. 21:46 |

=================

föstudagur, september 08, 2006


Vá, hvað myndin af bróður hennar Lenu framan á Mogganum er ótrúlega fyndin.

Edda


Edda eða Egill kl. 20:50 |

=================

föstudagur, september 01, 2006


Það styttist í jólin. Bara kominn september og rúmir 3 mánuðir í jólin. Neei, ég segi nú bara svona. Við skulum ekkert vera að hugsa um jólin núna. Hugsum frekar um helgina sem framundan er. Þá verður nefnilega ansi skemmtilegt að skemmta sér. Og skoða stjörnur í leiðinni. Að fara í afmæli og út á lífið og skoða stjörnurnar í leiðinni. Reyna að finna Karlsvagninn og út frá honum Pólstjörnuna. Það verður gaman. Alla vega fer ég í stjörnuskoðun í kvöld og allir sem hafa áhuga á að koma með eru velkomnir.
Ég skora á Soffíu Dóru að setja inn myndir á netið úr partýinu sem hún hélt nú svo eftirminnilega síðasta föstudag. Mig langar Istanmikið að sjá þær, (þið munið, krakkar, Istan er nýja áherzluorðið).

Æj, bless, eitthvað.
Edda


Edda eða Egill kl. 16:35 |

=================