fimmtudagur, nóvember 30, 2006
Hvað á ó-ið í óveður að þýða? Í orðum eins og ógeðslegt, ótrúlegt og óréttlátt stendur ó-ið fyrir ekki. Er þá óveður ekki veður? Það er alveg jafn mikið veður og annað veður, það er bara verra veður en gott veður.
- - - - -
Í dag sat ég í strætóskýli í 45 mínútur. Bara sat. Síðan labbaði ég heim með náladofa í rassinum.
EGILL
Edda eða Egill kl.
16:36 |
=================
þriðjudagur, nóvember 28, 2006
Þórbergur Þórðarson og Guðbergur Bergsson eru töff nöfn. Sérstaklega ef þæu stefnir á að verða frægur.
Hins vegar finnst mér mjög hallærislegt að hafa nafn höfundar jafnstórt og titil bókar. Ég hélt alla vega alveg þangað til í dag að bókin héti "Skipið Stefán Máni" en ekki að hún héti "Skipið" og væri eftir Stefán Mána.
Asnalegt. Lífið er bara dálítið asnalegt stundum.
Edda eða Egill kl.
22:18 |
=================
fimmtudagur, nóvember 23, 2006
Mig langar margt en veikindi mín aftra mér frá því. Mig langar að taka til í herberginu mínu en þá verð ég svo þreytt. Mig langar í sturtu en þá fæ ég meiri eyrnaverk. Mig langar í skólann. Mig langar út. Mig langar að taka armbeygjur.
Þetta verður því miður að bíða betri tíma.
Ég horfði á Prestinn, djáknann og brúðgumann áðan. Hún er mjög fyndin. Hvet alla til að horfa á hana. Hún er svo stutt og skemmtileg.
Það er ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu í kvöld. Jú, Sigtið. Það er skemmtilegt. Annars hélt ég að ég væri orðin frísk í gær og fór á James Bond, Casion Royale. Ótrúlega skemmtileg mynd. Hann Daniel Craig er svo góður. Hann er góður leikari og sjarmör og töffari. Mjög góð mynd, já, sem sagt.
Ég var að pæla, ætli maður geti allt ef maður bara æfir sig. Ég veit vel að karlar munu aldrei geta fætt barn þó þeir æfi sig, og allt svoleiðis sjitt, en ég er ekki að leita svona djúpt. Ég hef til dæmis fulla trú á því að ef ég æfi mig nóg þá geti ég fengið 10 á armbeygjuprófinu. Kannski eftir jól. Sumir eru rosa góðir að semja lög og ljóð og texta. Ætli ég gæti líka orðið góð í því? Ef ég bara æfi mig? Eða ætli ég geti orðið góð í ballett ef ég byrja að æfa núna, 19 ára gömul. Já, ég hef eiginlega fulla trú á þessu öllu. Maður þarf bara að hafa viljann og dálítinn tíma aflögu til að æfa sig.
Það væri ótrúlega gaman eftir MR að taka bara eitt ár í að rækta einhvern hæfileika. Til dæmis gæti ég byrjað að æfa ballett og lagt fulla stund á hann í dálítið langan tíma. Það væri nú gaman. Einnig gæti ég farið að læra ítölsku og talað hana reiprennandi eftir ár eða svo. Inn á milli tek ég svo armbeygjur og verð voða góð í þeim líka. Haha, þá mun ég líta kostulega út. Ballett og armbeygjur.
Fyrir þá sem ekki vita skipa strákarnir í bannernum hljómsveitina Athlete sem ég og Egill höldum mikið upp á.
Sjúklingurinn kveður.
Edda eða Egill kl.
21:37 |
=================
miðvikudagur, nóvember 22, 2006
Hvað er málið með...
...að allir séu að týna eyrnalokkunum sínum í MR?
...Bubba? Hann er bara svooo hallærislegur að ég skil ekki hvernig hann gat fengið þessa þokkadís til að vera með sér? Hann hlýtur að hafa mútað henni eða eitthvað? Ég sé alla vega ekki einn hlut sem gæti hugsanlega heillað mig við Bubba.
...Lagið/Lagleysuna sem hljómar svona "Oh, I wish I was a punk rocker with flowers in my hair..."? Það er svo leeeeiðinlegt.
Nú hef ég komið bitrum skoðunum á framfæri. Ég er kannski svona gagnrýnin vegna þess að ég er veik og hef ekki farið út úr húsi í þrjá daga en kannski ER Bubbi bara svona asnalegur og kannski ER þetta lag alveg glatað. Spurning?
Kv. Edda.
Jeei, mynd sem er ekki í neinu samhengi við færsluna!

Edda eða Egill kl.
13:47 |
=================
þriðjudagur, nóvember 21, 2006
Halló
Þegar ég þarf að læra geri ég eitthvað annað. Það er bjánalega lítið áhugavert í sjónvarpinu á daginn svo ég fer í tölvuna. Ég er búinn að klára Bubbles fjórum sinnum á tveimur dögum og kominn með mæspeis.
Ég fann smá ljóðstúf á netinu sem mér finnst mjög viðeigandi.
Ég veit ekkert hvaða bragarhætti það er í þó ég gerði það vafalaust ef ég læsi í staðinn fyrir að vera í tölvunni.
(Ég veit ekki hvað það heitir)
Tölvur eru tryllitæki
Töluvert til trafala.
Tilgangslitlir tímaþjófar.
(Ég veit ekki hver samdi þetta)
Ég er líka nokkuð viss um að það er lengra en það kemur alltaf error.
EGILL
Edda eða Egill kl.
03:05 |
=================
sunnudagur, nóvember 19, 2006
Ég veit ég hef sagt þetta áður, en...
...hvað er fjandans málið með Bubba og þessi helvítis sólgleraugu?
Pælingar Eddu segja bless.
Edda eða Egill kl.
20:54 |
=================
Það er merkilegt hvað allt verður huggulegt þegar það er svona mikill snjór. Maður veit að jólin eru á næsta leiti.
Áðan var ég búin að fá kreditkort móður minnar lánað og var sest við tövuna til að panta mér miða á Give peace a chance, John Lennon og sinfonían það allt tónleikarnir. Ég hætti þó við þegar ég sá að það kostar fjandans 6500 krónur á þessa tónleika. Hvað er nú eiginlega málið með það? Ég læt ekki hafa mig út í svona vitleysu.
Helgin var góð með tónleikum, partýi, upptökum og matarboði og nú eru einungis tvær vikur eftir af skólanum og þá taka jólaprófin við. Það verður nú gott.
Edda
Edda eða Egill kl.
13:03 |
=================
föstudagur, nóvember 10, 2006
Jó!
Ég fór út áðan að koma hjólum fjölskyldunnar inn í hlýjuna og róta laufblöðum frá niðurfallinu. Ég varð pínu blautur.
Ég fór aftur út, nú á bíl, og rúðuþurrkurnar áttu ekki séns í dropana sem lentu á rúðunni, þó þær væru á FúlSpíd. Ég rak mig líka í rúðupissið. Þvílík sóun.
Í báðum þessum útferðum mínum hugsaði ég að óveðrið væri þá bara strax komið. Veðurfræðingarnir sögðu að það kæmi ekki fyrr en 6 í fyrramálið.
Svo kom ég inn og varð ekkert var við vindinn. Það var eins og allt væri búið.
Núna, klukkan 3, kom svo óveðrið. Ég þori ekki út. Ætli það komi meira klukkan 6.
Það blæs meðfram gluggakistunni minni svo hún flautar.
EGILL
Edda eða Egill kl.
03:05 |
=================
fimmtudagur, nóvember 09, 2006
Þið trúið því kannski ekki en það er flippaður fimmtudagur í dag. Ansi hreint var ég búin að gleyma að snúllast eitthvað skemmtilegt á fimmtudögum. En nú kem ég hress aftur með flippuðu fimmtudagana. Það verður nú skemmtilegt að fá smá hressa tilbreytingu inn í vikuna. Dagarnir verða nefnilega alltaf skemmtilegri þegar þeir heita eitthvað sérstakt. Það er til dæmis alltaf gaman þegar einhver á afmæli. Þó dagurinn sé bara venjulegur þá verður hann samt alltaf dálítið öðruvísi. Og í dag vill svo skemmtilega til að það er bæði flippaður fimmtudagur og mamma mín á afmæli, sem gerir þennan dag alveg margfalt skemmtilegri en hann annars væri.

Ég læt hér fylgja með myndina sem ég er með á desktopinu mínu þessa dagana því hún er svo hress.
Kveðja, Edda.
Edda eða Egill kl.
17:33 |
=================
þriðjudagur, nóvember 07, 2006
Ég hlakka svo til jólaprófanna. Það verður svo gott að hætta í skólanum, læra bara fyrir nokkur skitin próf og komast síðan í jólafrí, sem er bæ ðe vei ótrúlega stutt síðan að var síðast. Vá, hvað árið er búið að líða hratt.
Ég get heldur ekki beðið eftir 1. júní, en þá mun ég útskrifast úr Menntaskólanum í Reykjavík og halda á vit ævintýranna. Það verður svo gaman. Að geta gert bara nákvæmlega það sem mann langar. Ég hlakka til lífsins.
Ég var að finna mér nýjan galla fyrir Skuldbindingu og sit ég nú eins og Jennifer Beals í Flashdance og drekk kaffi. Stuuuuð.
Ég var einnig í klippingu að snyrta litla toppinn minn sem var farinn að hamla mér sýn. Á þessum 20 mínútum sem ég sat í stólnum kom það tvisvar sinnum fram að klipparinn minn væri ekki samkynhneigður. Það var ágætt að fá staðfestingu á því. Ég var búin að vera að hugsa um það.
-Edda.
Edda eða Egill kl.
17:41 |
=================
sunnudagur, nóvember 05, 2006
Ég er búin að vera skemmtilega myndaglöð um helgina og er búin að setja á netið bæði myndir frá afmæli Sigrúnar á föstudaginn og laaaaadyafmæli Arngunnar í gær. Í gær fór ég einnig í innflutningsteiti Sigurlaugar og á tónleika Togga í Hinu húsinu sem voru ansi huggulegir. Ég hlakka til að fara á fleiri tónleika með Togga í framtíðinni og þá vona ég að hann taki fleiri lög af plötunni sinni. Hann er með svo fallega rödd.
Þá fer ég að gera latínustíl.
Bless, Edda.
Edda eða Egill kl.
16:46 |
=================
laugardagur, nóvember 04, 2006
Í gær fór ég nú í skemmtilegt afmæli til hennar Sigrúnar. Ansi lekkert afmæli með góðum mat og huggulegheitum en þegar líða tók á kvöldið voru tekknó-, bassatrommu-, reiflögin ekki langt undan. Ég tók myndir sem munu byrja að streyma á netið einhvern tímann eftir klukkan þrjú, því þá er ég, jú, einmitt búin að vinna í Úlfarsfelli. Í kvöld ætla ég svo að gerast laaaady og hlakka ég til þess. Einnig langar mig að ganga gegn nauðgunum og hlusta á ljúfu tónana hans Togga huggulega.
Sjáum hvernig fer...
Edda.
Edda eða Egill kl.
14:06 |
=================
föstudagur, nóvember 03, 2006
Hallló halló haló!
Í gær gerði ég svolítið sem ég geri aldrei!
Og hvað var nú það?
Drakk ég mjólk? Nei!
Þurrkaði ég af? Nei!
Straujaði ég? Nei!
Þvoði ég þvott? Nei!
Ég eldaði kvöldmatinn og það voru sko ekki pylsur!!
- - - - - - - -
Svo koma trommarafréttir!
Trommari Maroon 5 er hættur vegna meiðsla og trommari Phantom planet er hættur reyndar fyrir löngu til að einbeita sér að leiklistinni! En hafið engar áhyggjur, það eru komnir menn í manna(minnum) stað!
Er samkynhneigði trommarinn minn nokkuð að hætta?
-EGILL- !
Edda eða Egill kl.
12:43 |
=================