Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


laugardagur, desember 30, 2006



Ég vona að ég sé ekki að móðga neinn þegar ég segi að mér finnist þessi verðlaunagripur fyrir íþróttamann ársins það allra ljótasta sem ég hef séð. Ég bara skil þetta ekki. Hvernig nokkur maður getur hannað svona hlut og hvernig aðrir menn geti samþykkt að nota þetta ferlíki sem verðlaunagrip.

Edda.


Edda eða Egill kl. 01:54 |

=================

föstudagur, desember 22, 2006


Ég er bara voða mikið að vinna um jólin og er með verk í fótunum og hnjánum og er farin að tala undarlega. Æj, þið vitið. Bara þetta venjulega. Ég var í stúdentsveislu áðan og spurði nýstúdentinn hvenær hann byrjaði eiginlega í skólanum aftur eftir jól.

EIn auglýsing sem er svo hallærisleg að ég fíla hana í botn:
"Nýi mynddiskurinn með Út og suður kominn út..... og suður!"
Æj, þetta er svo fyndið.

En nú eru það bara tveir vinnudagar í viðbót og svo koma jólin kæru og ég get slappað af.

Góða nótt, Edda.


Edda eða Egill kl. 00:04 |

=================

mánudagur, desember 11, 2006



Þær eru svo góðar að rappa, stelpurnar í Spice Girls. Sérstaklega í Move Over. Þær eru nú alveg óborganlegar, stelpurnar, ha!

Það er líka nokkuð óborganlegt hvað þessi dagur er fagur. Latínupróf að baki og þá bara eitt lítið, sætt frönskupróf á fimmtudaginn. Það er nú bara alveg eins og ég sé komin í jólafrí. Ég er búin að kaupa mér rautt og grænt og fjólublátt kerti fyrir jólin til að hafa huggulegt hjá mér. Svo er ég búin að föndra þvílíkt flott kort með Arngunni og Hildi Helgu. Þau ilma meira að segja. Ég er svo í miðri tiltekt. Á eftir að klára.

Edda.


Edda eða Egill kl. 19:40 |

=================

miðvikudagur, desember 06, 2006



Ég hlakka til á aðfangadag. Þá mun ég vinna í happdrætti. Annað hvort bíl eða heimilistæki. Ég og Kári vorum í Kolaportinu einu sinni og lögðum saman í púkk fyrir happdrættismiða til styrktar Styrktarfélagi vangefinna. Okkur báðum hugleikið styrktarfélag. Kári þekkti meira að segja þann sem seldi okkur miðann. Við gátum ekki sleppt þvi að kaupa. Og miðinn var númer 14324. Það er góð tala því Kári á afmæli 14. og ég á afmæli 24. svo við hljótum að vinna. Þristurinn í miðjunni er örugglega happa líka. Á aðfangadag get ég einnig hvílst eftir að hafa unnið 62 klukkutíma á 6 dögum. Það er dálítið mikið. Ertu þú að vinna mikið um jólin?

Ég var í söguprófi. Það var ekki spurt um neitt áhugavert. Bara búnaðarskóla og baráttu einhverra kvensa. Já, og auðvitað fríhöndlun.

Edda.


Edda eða Egill kl. 11:12 |

=================

þriðjudagur, desember 05, 2006


Edda og mamma hafa báðar verið að kvarta yfir fiskiskítafýlu í íbúðinni í dag. Mig er farið að gruna að hún sé af því ég er að mygla...

EGILL


Edda eða Egill kl. 17:09 |

=================

mánudagur, desember 04, 2006


Nú eru jólalög farin að hljóma ótt og títt hvert sem farið er.
Þess vegna vilja Hvítir mágar minna á þetta!

Það er reyndar hægt að nálgast lagið frítt annarsstaðar á internetinu en það skiptir engu máli.


Edda eða Egill kl. 08:58 |

=================

föstudagur, desember 01, 2006


Sala:

Vill einhver kaupa af mér stjörnufræðibókina mína? Ég keypti hana en er nú hætt í faginu svo ég hef ekkert með hana að gera. 1500 krónur. Hún kostaði 2000 í bóksölu MR. Bara ef einhver skildi eiga eftir að kaupa hana!

Einnig, ef einhvern langar að kaupa af mér aðgang að Office Mac pakkanum þá skal ég selja eitt stykki. Ég hef ekkert að gera með tvo aukaaðganga.

Þá er síðasti dagur haustmisseris búinn og ég mun aldrei sitja aðra haustönn í MR. Það er dálítið skrýtið. Dagurinn var góður, og fokk!, ég gleymi alltaf flippuðum fimmtudegi. Ég fatta það alltaf á föstudögum. Gærdagurinn var ágætlega flippaður. Ég spilaði kvartett með tveimur öðrum flautum. Fyrir Samfylkinguna. Ein flautan spilaði tvær raddir. Ég fékk konfekt og svo bakaði ég Pavlóvu. Mína fyrstu.

Ef einhver vill kaupa ofangreint af mér skrifi hann álit eða bara hringi í mig eða hvernig sem hann kýs að láta þetta fara fram. Ég læt hér fylgja með Astronomy picture of the day af því að hún er svo ótrúlega flott. Þetta er sólin.

Edda



Edda eða Egill kl. 20:22 |

=================