miðvikudagur, janúar 31, 2007

Yfirborðskennd dagsins:
Ég vildi að ég ætti ógeðslega mikinn pening, þá væri lífið miklu einfaldara.
Almennt:
Mig langar sjúklega mikið á Hróarskeldu.
Upplýsingar:
Ég er búin að setja myndir frá laugardeginum inn á síðuna mína. Ég held að þetta verði síðasta albúmið á þessari blessuðu yahoo síðu því hún er ógeðslega sló og það eru til fullt að miklu betri myndasvæðum á internetinu.
Kveðja, Edda.
Edda eða Egill kl.
16:41 |
=================
mánudagur, janúar 29, 2007
Komiði sæl.
Ég las fyrir helgi í stjörnuspánni minni í dagskrá vikunnar að fyrst tunglið væri hátt á lofti færi ég offorsi í gleði helgarinnar.
Með bjórkvöld, partý og afmæli á dagskránni trúði ég því alveg og hafði góða trúa á að spáin rættist.
Á föstudaginn byrjaði ég kvöldið eftir stutt stopp í Kópavogi á Celtic þar sem bjórkvöld íslenskunema var haldið. Þar var setið að sumbli með nokkrar 5íFötur þangað til ég kíkti yfir á Kúltúra til Fannsa og félaga sem sátu þar við sömu iðju. Eftir stutt stopp á nokkrum fleiri stöðum hitti ég síðan Bjössa og Gauta á leið upp laugaveginn og fór í lítið stúdentaleikhúspartý uppi í Hlíðum. Eftir mjög stutt stopp þar hringdi Fannsi og hafði fengið skurð í kringum augað á leið út af Kúltúra. Þar sem ég var með plástur í rassvasanum var ég ekki lengi að spretta niður á Arnarhól og heilsa upp á hann. Við ákváðum síðan bara að rölta heim með viðkomu á Nómídos.
Á laugardaginn fór ég ásamt Guðmundi frænda í afmælispartý til félaga hans. Þar var mikið stuð og þrátt fyrir að þetta færi fram nokkurnvegin miðsvæðis í Reykjavík held ég að ég hafi verið einn af tveimur eða þremur sem var ekki frá austurlandi, hugsanlega sá eini. Þarna var afar hresst og mikið drukkið og spjallað. Seint og um síðir var haldið í bæinn þar sem ég fór víða og hljóp svo heim undir morgun.
Í dag er ég svo stirður eins og spýtukall. Ég held það sé eftir öll hlaupin án þess að hita upp, man það næst. Auk þess blæddi svo mikið úr hælsærinu mínu að skórinn minn er rauður að aftan svo ég er frekar farlama eins og er. Ágætis helgi að baki svona heilt yfir þó ég hafi reyndar búist við meiru af orðinu offors.
EGILL
Edda eða Egill kl.
16:30 |
=================
laugardagur, janúar 27, 2007

Mamma gaf mér tvo miða á leikhús. Ég ákvað að bjóða Kára með mér því að eftir þrjú ár höfum við þó aldrei farið saman í leikhús. Tilvalið tækifæri þarna á ferðinni. Leikritið var Dagur Vonar eftir Birgi Sigurðsson í Borgarleikhúsinu. Ég var búin að búa mig undir dramatík og ég fékk hana sko beint í æð. Sýningin byrjaði klukkan átta og við vorum komin út klukkan hálftólf. Í fyrsta lagi var sýningin dálítið löng og einnig fékk kona í salnum flogakast fyrir hlé og stoppa þurfti sýninguna. Hringt var í 112 og tveir sjúkraliðar komu innan tíðar. Allir leikararnir duttu úr karakter og Gunnar Hansson sem ekkert hafði sést fram að þessu í leikritinu kom fram á svið með skelfinguna í svipnum. Þetta var bara magnað. Aðeins of mikið fyrir mig. Þetta og stemmningin í leikritinu var bara svo átakanlegt allt saman. En það var sem betur fer allt í lagi með konuna. Leikritið hélt svo bara áfram.
Leiksýning var góð. Ég get ekki sagt að hún hafi verið skemmtileg. En hún var mögnuð og vel leikin.
Kv. Edda
Edda eða Egill kl.
16:13 |
=================
fimmtudagur, janúar 25, 2007

Ég er komin með nýtt skipulag á myndasíðunni minni. Mér finnst óþægilegt að safna öllum myndunum mínum á internetið svo allir geti skoðað allt um mig og mína vini. Þess vegna hef ég ákveðið að hafa bara opin almenningi tvö nýjustu albúmin. Ef fólk vill sjá einhverjar sérstakar myndir þá bara lætur það mig vita og það er ekkert mál.
Þar hafið þið það!
Kv. Edda.
Edda eða Egill kl.
14:45 |
=================
sunnudagur, janúar 21, 2007

Þessi helgi er búin að vera svo fabjúlus. Á föstudaginn fór ég í huggulegt matarboð og drakk Mojito og hvítvín. Í gær fór ég í tvítugsafmælið hennar Thelmu. Ég borðaði ótrúlega góða humarsúpu og fór svo í fabjúlus partý á Prikinu. Ótrúlega gaman. Ég var ljósmyndari afmælisins og stóð mig bara prýðilega. Ég er að setja myndirnar inn á netið núna en yahoo er svo seinvirkt að það tekur sinn tíma. Þið þurfið bara að sýna smá þolinmæði.
Kv. Edda.
Mynd eftir ítalska listamanninn Tizian.
Edda eða Egill kl.
15:15 |
=================
fimmtudagur, janúar 18, 2007
Sælinú!
Ég hef ætlað að blogga síðan um áramót en Edda er alltaf skrefi á undan mér. Hérna kemur þetta þó loksins:
Hvar er Mandy Moore eiginlega?!?
EGILL
Edda eða Egill kl.
19:00 |
=================
mánudagur, janúar 15, 2007

Ég fíla veður eins og var í dag alveg ótrúlega vel. Stillt en kalt. Það er svo fallegt. Það er allt svo fínt þegar það er ekki rok. Ég fíla það líka ansi vel að þurfa ekki að mæta í skólann fyrr en um hádegi en vakna samt snemma og fá mér kaffi og hafa það rólegt svona í morgunsárið. Ég fíla aftur á móti ekki ógeðslega löng landafræðiverkefni og svo píningar kennarans í kjölfarið. Galdra-Loftur er líka kúl.
Um daginn fór ég á Little Miss Sunshine. Ótrúlega góð og skemmtileg mynd. Mæli með'enni.
Kv. Edda.
Edda eða Egill kl.
19:45 |
=================
föstudagur, janúar 05, 2007

Verðlaunagripurinn hans Guðjóns Vals hefur fengið að njóta sín of lengi á toppi þessarar síðu.
Þessi síðasta önn skólans leggst bara ágætlega í mig. Ég er að fara að lesa fullt af bókum á hinum ýmsu tungumálum sem verður örugglega dálítið strembið, en samt bara gaman. Það er gott að þessu fer öllu að ljúka og ég get leyft mér að hugsa hvað mig langar að gera á næsta ári. Ég er komin með nokkrar óljósar hugmyndir í kollinn en á eftir að þróa þær betur og kynna mér hugsanleg viðfangsefni. Ég hlakka til.
Einnig hlakka ég til að fara til Boston þann annan apríl. Aldrei hef ég komið til Bandaríkjanna og ég gæli einnig við þá hugmynd að taka lest frá Boston til New York sem tekur víst ekki nema um þrjá tíma. Um það bil 300 kílómetra. En ég verð bara í fjóra daga svo það tekur því kannski ekki. Sjáum bara til...
Um daginn lenti í í aftanákeyrslu ásamt fleiri vinkonum mínum. Klesst var aftan á okkur. Ég fór til læknis sem setti mig á 1800 mg. skammt af Íbúfeni á dag í fjóra daga. Eftir þriðju og síðustu töflu dagsins var ég komin á góðan tremma og ákvað að á morgun skyldi ég bara láta mér nægja 1200 mg. Það ætti að nægja fyrir litla stúlku eins og mig.
Njótið helgarinnar. Blessó, Edda.
Á mynd: Arthur Miller og Marylin Monroe.
Edda eða Egill kl.
23:34 |
=================