Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


þriðjudagur, febrúar 20, 2007




Súri dagur. Ling ping pong og Shang Kang Kong. Og líka Mulan. Kína er gott ríki. Með forseta, en ekki keisara. Ég þakka Arngunni fyrir skemmtilegan fyrirlestur um Kína. Þá þakka ég sjálfri mér fyrir að hafa velst um á borðinu mínu í skólanum og þulið upp kínverskt þykjustunöfn. Það veitti mér kátínu. Systir mín fær þökk fyrir að hafa sett lagið Sexy love með Ne-yo inn á
I-tunes tölvunnar minnar. Klárlega frábært lag. Ég gæti horft á Breakfast at Tiffany's sem amma lánaði mér eða The O.C. síðan í gær sem ég missti af en ég held að það væri líka gott að lesa fáeinar línur í Hinu ljósa mani.

Mbl.is er upphafssíðan mín á internetinu því mér dettur ekkert sniðugra í hug en nú held ég að ég neyðist til að skipta. Það er alltaf einhver viðbjóðsleg auglýsing blikkandi framan í mig með fótsveppum og ógeðslegum kartnöglum. Ég skil ekki. Hvað græðir þetta fyrirtæki á að hafa svona viðbjóðslegar myndir í auglýsingum sínum? Fólk nýtir sér þjónustu þessa fyrirtækis til að losna við þetta ógeð. Það er ekki ætlast til þess að verið sé að flagga þessum sveppum og viðbjóði bara um allan veraldarvefinn. Mér allavega finnst þetta ömurleg auglýsing.

Vonandi heldur þessi dagur áfram að vera svona skemmtilega súr.
Lifi Kína. Og Mateus.
Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 15:30 |

=================

föstudagur, febrúar 16, 2007




Þá er síðustu árshátíð minni í MR lokið og skemmti ég mér rosa vel. Langt síðan að mér hefur fundist gaman á balli eða yfir höfuð nennt að fara. Allt varðandi daginn var vel heppnað. Morgunpartýið, maturinn með kennurunum (þeim sem sáu sér fært að mæta!), partýið og svo ballið sjálft. Ég hlakka til að sjá myndir hjá þeim sem tóku, ég hvet alla til að setja þær inn á netið. Það væri gaman að sjá.

Um daginn fóru ég og Laufey á Perfume í bíó. Mér fannst hún góð. Hún var spúkí og spennandi og mjög flott. Kannski einum of löng, en samt ekkert þannig að hún varð leiðinleg. Svo horfði ég líka á De grönne slægtere í vikunni í annað sinn. Hún er frábær. Ég hvet alla til að horfa á hana.

Hafið það nú gott um helgina, Edda.


Edda eða Egill kl. 18:35 |

=================

þriðjudagur, febrúar 13, 2007




Ég þrái eitthvað skemmtilegt og spennandi. Mig langar í gott partý eða góða stund með vinum mínum. Ég fæ sittlítið af hvoru á fimmtudaginn þegar ég fer á mína síðustu árshátíð í MR. Eftir það mun ég væntanlega bara fara á einhverjar nördalegar árshátíðir í Háskólum. Einu sinni fannst mér fólk í háskóla vera nördalegasta fólk sem ég vissi um. Það var enginn sætur þar, bara nördar með bakpoka. Bráðum mun ég kannski tilheyra þessu fólki. En mér finnst þau ekkert lengur vera nördar, bara sumir, útvaldir.

Mig langar líka dálítið að eignast mína eigin íbúð. Aðallega svo ég geti innréttað hana og gert voða fína. Og líka til að ég geti haldið danskvöld einu sinni í viku þar sem ég verð búin að ýta öllu í stofunni til og svo set ég á góða tónlist og vinir mínir koma og dansa og hoppa og sprella.

Ég hlakka svo til fyrsta júní!

Bless bless, vinir mínir og óvinir, Edda.

Myndin er eftir belgíska listamanninn Réné Magritte.


Edda eða Egill kl. 12:32 |

=================