Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


sunnudagur, mars 25, 2007




Nú er bara ein skólavika eftir fyrir páska. Páskafríið verður skemmtilegt. Þá fer ég til Boston. Námsbækurnar verða með í för og svo tekur bara við maraþonlestur þegar ég kem heim fyrir fyrsta stúdentsprófið mitt. Það verður gott að fá smá frí í útlöndum.
Ég veit ekkert hvað ég á að gera á næsta ári. Kannski fara í lögfræði? Mér finnst það samt dálítið döll. Kannski ætti ég að vinna og gerast milli. Kaupa mér íbúð. Já, margt í stöðunni. Millinn kemur sterklega til greina.

Grímuball í næstu viku, ætti maður að fara? Sem Silas? Eða amish?

Sjáum til...

Kveðja frá Eddu.


Edda eða Egill kl. 14:43 |

=================

laugardagur, mars 17, 2007




Þetta er svo fyndin mynd. Bolurinn hennar Soffu töff, asnalegur hæðarmunur og ég svaka trukkur með tattúið. Svona var maður töff á Tyrklandi. Það var svo gaman og alltaf gaman að skoða þaðan myndir.

Mér finnst eitthvað mjög hallærislegt við að fara til útlanda, taka myndir af útlensku fólk og töff fötunum þeirra og birta síðan myndirnar á reykjaviklooks.blogspot.com sem er síða sem sýnir fatastíl Íslendinga. Það er eins og aðstandendur síðunnar séu að reyna að láta líta út fyrir að fólk á Íslandi sé meira töff en það er. Mér finnst þá alla vega að það ætti að standa að þessar myndir séu ekki teknar á Íslandi. Það alla vega sést langar leiðir að þetta fólk er ekki íslenskt og veðrið á Íslandi er ekki svona gott um þessar mundir.

Takk fyrir mig, Edda.


Edda eða Egill kl. 19:04 |

=================

föstudagur, mars 09, 2007




Upp hafa komið hugmyndir um að ræna latínuprófunum frá því í morgun og brenna þau öll. Einnig væri ágætt ef kennarinn týndi þeim eða jafnvel brenndi þau bara sjálf óvart. Það væri bara alveg ágætt.

Ég er að verða veik, finn hamstrafýlu út um allt og er með ímyndaðan hamstur í veskinu mínu. Arngunnur tók nokkur dansspor með honum. Það var falleg stund. Eftir hvern tíma í dag sögðum við "Ættum við að skrópa?" og í hverjum tíma sögðum við "Við hefðum átt að skrópa!" Ég spurði sögukennarann hvort hann hefði séð Shrek og íslenskukennarann hvort hann hefði aldrei neina samúð með nemendum. Svo sagði ég honum að hann væri góður maður.

Gettu Betur í kvöld, áfram Hilmar.

Ég kveð að sinni, Edda.

Á mynd: Marie Stuart, fyrrum drottning Skota


Edda eða Egill kl. 17:59 |

=================

laugardagur, mars 03, 2007




Það er svo geggjað að vera ein heima á laugardagskvöldi með magakveisu að horfa á Maid in Manhattan. Ég elska það! Til að bæta upp einsemdina hefur mér einhvern veginn tekist að fylla rúmið mitt af alls kyns dóti svo mér líði ekki eins einni. Þrír koddar, tvær sængur, tvö teppi, bók, skóhorn, dúkka, sími, húfa, nærföt, tvær peysur, þrír bolir, tvennar buxur. Já, ég held að þetta sé allt. J-Lo er svo flamin' í bleika kjólnum sínum með stóra bossann sinn.

Já, ég held ég láti þetta nægja. Kveðja frá Eddu.


Edda eða Egill kl. 21:57 |

=================





Að hafa ótrúlega mikið að gera er alveg hreint frábært. Lesa Crazy á þýsku og skrifa um hana ritgerð. Að gera fyrirlestur um Snæfríði Íslandssól. Yfirvofandi latínupróf. Að fá síðan gubbupest ofan í það allt er líka geggjað. Ég mæli með'enni, gubbupestinni. Og svo bara unnu helvítis Manchester United. Þeir eru svo asnalegir. Sérstaklega Wayne Rooney, hann er svo ljótur.
En ég er búin að stofna nýja myndasíðu, http://picasaweb.google.com/eddahalldo, og er að klára að setja inn myndir frá Fiðluballinu, sem var einmitt rosa skemmtilegt ball.

Kveðja, Edda.

Á mynd: Audrey Hepburn


Edda eða Egill kl. 15:36 |

=================