Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


fimmtudagur, apríl 26, 2007




Gærdagurinn var unaður í öllu sínu veldi. Dimissiodagurinn mikli. Við kvöddum MR, kennarana og krakkana í fyndnum búningum og þeystum burt í bláum gámum. Kvöldið var ótrúlega skemmtilegt með góðri bekkjarstund, vatnspípu og dansi á Hverfisbarnum. Og allt þetta í arabadressi, með túrban og skegg. Ég fílaða. Ég er búin að setja inn myndir.

Í prófalestri mæli ég með því að skella sér í sund, synda nokkra metra og hressa sig við og fá sér jafnvel eina pulsu eftir á. Ég og Arngunnur fórum í sund áðan og syntum af okkur slenið sem var mjög gott.

Kv. Edda


Edda eða Egill kl. 21:03 |

=================

þriðjudagur, apríl 24, 2007




Alveg knullandi krulludagur í dag. Síðasti skóladagurinn minn í MR. Allir í sínu fínasta pússi og almenn hamingja ríkjandi. Við fengum sleikjó í leikfimi og fórum í Fram fram fylking og í þýsku fengum við súkkulaði mit Haselnüssen. Svo dönsuðum við inni í stofu við ljúfa tóna Shakiru. Súkkulaðiþörfin varð mér að falli eftir skóla og varð þess valdandi að ég missti tvisvar af strætó. Ég var bara svo upptekin í súkkulaðinu. Ég er að vinna í því að setja myndir á netið frá þessum merka degi. Kíkið á þær.
Á morgun er loks dimissio þar sem við munum sprella á túninu og skemmta okkur voðalega vel.

Kveðja frá Eddu.


Edda eða Egill kl. 20:10 |

=================

laugardagur, apríl 21, 2007




Mikið er hann Frederik myndarlegur. Og bara búinn að eignast stúlku. Hann er duglegur. Merkileg stúlka hér á ferðinni þar sem hún er fyrsta stúlkan til að fæðast inn í dönsku konungsfjölskylduna í rúmlega 60 ár. Duglegur Frederik.

Í gær horfði ég á Delicatessen. Hún var mjög skemmtileg. Minnti mig á Amélie. Konurnar voru í fallegum kjólum og ennþá fallegri skóm.

Í dag fór ég í skemmtilega Bónusferð. Þegar ég steig út úr bílnum á planinu bárust til eyrna minna huggulegir harmonikkutónar. Mér leið eins og ég væri komin til Parísar þar sem ég stóð þarna á bílastæði Bónus á Seltjarnarnesi. Rómó. Þegar ég kom svo inn í búðina var mér boðið upp á kaffi. Ansi huggulegt þarna í Bónus. Og svo á bara að fara að rífa það.

Kveðja frá Eddu.


Edda eða Egill kl. 19:37 |

=================

laugardagur, apríl 14, 2007




Nú þegar ég hef eytt nokkrum dögum erlendis langar mig bara ekkert að vera hér heima. Mig langar að ferðast meira, skoða nýja staði og njóta lífsins í útlöndum. Ég hlakka svo til að fara til Rómar og Spánar í sumar. Það verður gott að vera í sólinni í fallegum kjólum með ís og góðum vinum. Talandi um góða vini þá var ég að setja inn myndir sem ég fékk úr framköllun um daginn. Myndirnar eru frá afmæli Ingibjargar, afmæli Brynju og svo bara daglegu lífi.

Njótið nú lífsins og ekki hafa áhyggjur af því sem koma skal, takið bara einn dag í einu. Það ætla ég alla vega að gera.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 11:38 |

=================

sunnudagur, apríl 08, 2007




Þá er ég orðin ögn veraldarvanari eftir að hafa heimsótt Boston í nokkra daga. Boston var skemmtileg borg og ferðin í heild mjög skemmtileg. Það er fyndið hvað Ameríka er alveg eins og í bíómyndunum. Allt er rosa stórt, fólk er feitt og púkalegt (fast í árinu 1999), veitingastaðirnir eru góðir og skammtarnir eru fáránlega stórir. Ég lærði líka að það ER fab að hlaupa um í rigningu í stórborg á háum hælum. Það er ekki bara fab í Sex and the City. Búðirnar eru góðar og verðlagið gott. Sérstaklega ódýrt að taka leigubíl og það er frí áfylling með öllu gosi, alls staðar. Þetta er alla vega mín reynsla af Bandaríkjunum, mjög góð. Ég er búin að setja þær myndir sem Egill tók inn á nýju myndasíðuna mína fyrir áhugsama.

Þrátt fyrir próflestur gaf ég mér tíma til að kíkja til Thelmu áðan þar sem við gæddum okkur á heitu súkkulaði og frönskum súkkulaðibúðingi við kertaljós og ljúfa músik. Einstaklega góð stund.

Bless bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 23:12 |

=================

sunnudagur, apríl 01, 2007




Ég hef átt mér þann draum um hríð að vera í partýi og blasta Rusla og Snyrta lagið. Í gær rættist draumurinn. Það var þvílíkt stuð. Á föstudaginn var gaman í afmæli Ingibjargar og í gær var gaman í afmæli Brynju. Á morgun verður svo líka gaman þegar ég fer til Boston. Ég hlakka til.

Edda


Edda eða Egill kl. 17:44 |

=================