Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


miðvikudagur, maí 30, 2007





Ég gleymi alltaf hvað Kringlan er mikil orkusuga. Maður er bara dasaður og þarf að leggja sig þegar komið er þaðan út. En það er samt gott að geta nú farið í Kringluna með vinkonum sem ekki eru að læra fyrir próf og ekkert vofir yfir nema bara föstudagurinn með allri sinni dýrð. Einnig finnst mér frábært að geta nú lesið aðrar bókmenntir en skyldubækur skólans. Ég byrjaði á einni svoleiðis i dag og sat úti og las. Bókin heitir Sunnudagsklúbbur heimspekinganna eftir Alexander McCall Smith. Hún byrjar vel. Svo er gaman að horfa á Grey's anatomy. Ég datt inn í þann þátt í prófunum. Skemmtilegt að komast inn í nýjan þátt eftir ósí sköllið. Það endaði nú svei mér illa. Vonandi kemur sól á morgun. Þá ætla ég að ná mér í smá tan fyrir útskriftina. Alltaf gaman að hafa smá roða í fésinu.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 22:38 |

=================

föstudagur, maí 18, 2007




Mikið er gott til þess að hugsa að einungis tvö munnleg próf séu eftir þar til frelsið tekur við. Ég er ekki einu sinni komin með vinnu. Kannski verð ég bara ekki að gera neitt í sumar. Það hljómar ágætlega en ég þarf víst pening þar sem ég stefni á tvær utanlandsferðir og almenna neyslu í búðum á borð við Kron og Kron Kron. Er ekki málið að kaupa sér einn Vivienne Westwood kjól í sumar? Ég og Brynja erum eiginlega búnar að ákveða að það sé sko málið.
Með trega í hjarta sagði ég Auf Wiedersehen við Kristínu Kött og sagði þar með skilið við þýskunám síðustu fjögurra ára. En við tók skemmtilegt búðaráp og að því loknu sundferð með Arngunni, Soffu og Hildi Helgu. Svo sagði Arngunnur: "Eigum við að splæsa í eina pullu," og þá var ekki aftur snúið. Við fengum okkur pylsu og meira að segja franskar með, hoho.

Afar hressandi dagur sem er víst ekki búinn, kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 18:11 |

=================

þriðjudagur, maí 08, 2007




Þá er kjölfesta mín í lífinu farin. Stúdentspróf í latínu er búið. Engin áskorun lengur. Á reyndar átta próf eftir. Það er ágætisáskorun. Bara alveg ágætis. Þessi dagur var ljúfur eftir að munnlegu latínuprófi lauk. Sólin skein á fésið á mér og ég fór í sund með Brynju og Hildi Helgu. Það var ljúft. Mikið um Grænlendinga, mongólíta og konur í litlum sundskýlum. Eðalsundferð. Eftir að hafa skoðað myndir úr utanlandsferð Egils langar mig rosalega mikið að komast til útlanda eða í gott partý. Þegar prófin eru búin mun ég gera hvort tveggja. Þegar prófin eru búin... allt miðast við það. Þessar elskur.

Kveðja frá Eddu.


Edda eða Egill kl. 20:51 |

=================

miðvikudagur, maí 02, 2007




Hér kemur færsla þar sem ég gerist málpípa strætóbílstjórans sem keyrði mig í söguprófið í dag:

Þetta var nú meiri dagurinn. Gott að vera kominn heim til konunnar minnar. Hún er góð. Ég fór minn venjulega hring í tólfunni í dag. Ég hafði verið einn í vagninum um stund en á Suðurgötunni kom inn stúlka sem var í þessari einstaklega skemmtilegu kápu. Hún var dökkblá með regnhlífamynstri. Ég bara gat ekki setið á mér og sagði við hana: "Þú ert bara í svona regnhlífakápu!" Stúlkan svaraði að bragði: "Já, það er svona, þegar rignir!" Skemmtilegt samtal sem ég átti þarna við stúlkuna. Ég ók venjulega hringinn og stöðvaði fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík eftir að stúlkan hafði ýtt á takkann. Ég hleypti stúlkunni í regnhlífakápunni út úr vagninum og inn kom stúlka í nákvæmlega eins kápu. Þetta var nú meira... ég hef bara aldrei lent í öðru eins. Ég var feginn að síðari stúlkan hafi ekki komið inn fyrr því þá hefði myndast gífurlega vandræðaleg stemmning í vagninum mínum. Ekki viljum við það!

Já, svona held ég að bloggfærsla strætóbílstjórans myndi hljóma. Annars er Manchester United alveg í vindinum. Mér er nett sama. Rooney er svo ljótur.

Kveðja frá Eddu (og strætóbílstjóranum).


Edda eða Egill kl. 19:11 |

=================