Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


sunnudagur, júní 24, 2007




Mikið er nú gaman að fara í brúðkaup. Ég fór í eitt svoleiðis í gær. Ég klökkna mikið í brúðkaupum en græt sjaldnast því ég bít mig bara í innaverðar kinnarnar. Það heldur tárunum inni. Brúðkaupsveislan innihélt gífurlega góðan mat, Herbert Guðmundsson, Svaraðu kallinu, DJ Símon og mikinn dans við aðra fjölskyldumeðlimi. Já, og líka Baileys! Would you like some Baileys? Eftir brullaupið fór ég með Kára, Þóru frænku og Guðmundi frænda niður í bæ. Stemmningin var ágæt en mikið um slagsmál og glerbrot. Við enduðum kvöldið á Bæjarins bestu og röltum svo heim í góða veðrinu og nætursólinni.
Eftir viku held ég til Spánar, nánar tiltekið Calpe. Ég hlakka til að fara aftur í sólina og hitann og fríið. Uppi eru hugmyndir hjá okkur Kára að fara einn dag til Valencia sem væri gaman þar sem ég hef ekki úthald í að liggja í sólbaði alla daga. Ég tók kvótann minn út á Marmaris.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 22:20 |

=================

fimmtudagur, júní 21, 2007




Þá er unaðsleg Rómarferð að baki. Ég kom nokkrum flíkum, 9 bitum, reynslunni og frábærri upplifun ríkari heim. Við gengum mikið, skoðuðum mikið og svitnuðum mikið. Hitinn var um þrjátíu stig allan tímann og alltaf skínandi sólin. Það var nú notalegt. Róm er falleg borg. Það er merkilegt að labba um miðbæinn og nágrenni og gríðarstórar, merkilegar byggingar blasa við alls staðar. Sumir sáu Justin Timberlake í Vatikansafninu. Ekki ég, en ég gerði mitt besta. Beið hans fyrir utan safnið en hann lét ekkert sjá sig, helvítið á honum! Skemmtilegast fannst mér síðasta kvöldið. Við fórum í sætt hverfi handan Tíber, settumst á huggulegan skemmtistað og drukkum kokteila. Við urðum góðir vinir barþjónanna og endaði kvöldið á því að við fengum að stinga I-podnum hennar Arngunnar í græjur staðarins og svo dönsuðum við í gleðivímu, eða alla vega ég. Hreinn unaður.

Bitin mín níu voru skemmtileg og tóku ég og fleiri sérstöku ástfóstri við eitt þeirra. Það fékk viðurnefnið Sepinn eða Kýlið. En bara svo allir hafi það á hreinu sem voru farnir að hafa áhyggjur af sambúð okkar þá fór ég til læknis og hann sprengdi Sepa. Nú hef ég plástur í stað kýlis.

Ég er að vinna í því að setja myndir inn á netið. Á ekki mikið eftir.

Ciao, kæru vinir.
Kv. Kjeppz.


Edda eða Egill kl. 18:39 |

=================

sunnudagur, júní 10, 2007





Gærkvöldið var pakkað; vinna til ellefu og svo tvö afmæli. Þau voru bæði mjög skemmtileg. Dýrindisveigar og almenn gleði. Í veislunni hennar Hildar tókum við upp á því að kveða vísur. Hér er ein, fyrri part á Arngunnur og seinni part á Jón.

Ég er lítið ígulker,
og ég elska Eddu.
Ég get stundum verið sver,
oftast út af greddu.

Já, góð vísa. Ég mæli með vísugerð í partýjum.

Nú hef ég klárað Sunnudagsklúbb heimspekinganna og er byrjuð að lesa Veröld Soffíu. Hún byrjar líka vel. Það er svo ljómandi gott að lesa sér til ánægju.

Á þriðjudaginn hef ég svo hugsað mér að skella mér aðeins til Rómar. Mikið hlakka ég til að komast í hlýju og sól og fornar rústir. Og kannski nokkrar búðir líka.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 22:36 |

=================