Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


þriðjudagur, júlí 31, 2007




Dagar mínir einkennast af vinnu, lestri og almennri skemmtun. Ég kláraði Veröld Soffíu og er nú byrjuð að lesa Harry litla Potter. Merkilegt hvað hann kallinn hefur tröllriðið heiminum síðustu ár. Skemmtilegir svona galdrasnáðar. Laufey kom til mín í dag og við bökuðum pönnukökur. Aldeilis heppnaðist það vel hjá okkur. Hvorug okkar hafði gert það áður og þetta leit ekki vel út í fyrstu en svo komumst við í æfingu með pönnuna og útkoman varð ansi góð. Svo röltum við niður í bæ og flippuðum dálítið.

Blákaldur sannleikurinn rann svo upp fyrir mér í dag. Ef þú ert ekki með myspace þá situr þú úti í kuldanum.

Bless í bili. Edda.


Edda eða Egill kl. 22:07 |

=================

miðvikudagur, júlí 25, 2007




Unaðslegt var að fá tvær stúlkur að nafni Thelma og Palma í heimsókn í dag. Ég gaf þeim espressó, beyglur með rjómaosti og ólívur. Léttan samtíning. Þeir eru góðir, samtíningarnir. Við spjölluðum um heima og geima á enskri tungu og eftir góða samverustund hélt ég til vinnu. Gangandi. Þannig er nefnilega í pottinn búið að mér tókst að rústa tveimur hjólum á einum degi. Fyrst var það gamla hjólið hennar mömmu sem bara datt í nokkra parta. Ekki gat ég notað það svo ég fékk nýja Trek hjólið hans Egils lánað bara svona í eitt skipti til vinnu. Þegar ég ætla svo að hjóla heim klukkan ellefu um kvöldið var annað dekkið sprungið. Punkterað. Ég þurfti því að panta leigubíl sem gæti rúmað hjól og kom mér þannig heim. Ég fékk sem betur fer afslátt í leigubílnum. Það kemur sér vel að þekkja leigubílstjórana.

Síðasta föstudagskvöld var aldeilis skemmtilegt. Góður hópur fólks safnaðist saman hjá Kára og svo fór þessi góði hópur niður í bæ. Ég og Soffa dönsuðum heil ósköp á Hressó og ég held það hafi bara verið toppurinn. Það er langt síðan ég hef dansað almennilega og flippað á dansgólfinu enda sagði einn maður að við ættum að passa að rota engann!

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 00:07 |

=================

fimmtudagur, júlí 19, 2007




Vinnan mín er svo hugguleg að ég er byrjuð að drekka te. Ég hef einnig uppgötvað unaðinn við soðið vatn og hunang. Einnig hef ég klárað eina bók og er hálfnuð með aðra. En ekki vantar þó stuðið:
"Fórstu á skrall í gær, Palli minn?"
"-Já, ég fór til augnlæknis."

Síðustu helgi eyddi ég í fagurri náttúru Snæfellsness og góðum félagsskap. Snæfellsnesið er næstupáhaldsstaðurinn minn á Íslandi. Á eftir Hjalteyri, auðvitað. Næstu helgi mun ég svo eyða í Skorradal sem er vissulega fallegur líka. Ísland er bara mjög fallegt land svona þegar á heildina er litið.
Allt í einu er ég orðin gífurlegur dýravinur. Ég var að kaupa með ísbjarnareyrnalokka, íkornalampa og var að setja bókaorminn minn upp á vegg. Ég vissi ekki að ég hefði þetta í mér. En lítill dýravinur leynist eflaust í öllum.

Bless í bili. Edda.


Edda eða Egill kl. 18:34 |

=================

sunnudagur, júlí 08, 2007




Þá er ég komin heim frá Spáni og mætt strax í vinnuna. Calpe er lítill sætur bær með risakletti. Maður eltir bara klettinn ef maður villist. Ég lá aðallega í sólbaði, borðaði grillmat og rölti um aðalgötu Calpe. Þar var frábær ísbúð með ekta ítölskum ís þangað sem við Kári mættum oft og prófuðum nýjar bragðtegundir. Einnig fundum við krúttlega evrópska bókabúð með fallegum og skemmtilegum bókum á hinum ýmsu tungumálum. Þangað mættum við líka oft og skoðuðum bækur og spjölluðum við afgreiðslumanninn. Það er fínt að vera komin heim þó að það sé leiðinlegt að hafa enga utanlandsferð framundan. Nú er allt flandur á mér búið í bili. Maður veit þó aldrei hvað gerist þar sem samgöngur nútímans eru orðnar svo þægilegar og auðvelt að skjótast á milli landa. Kannski maður skelli sér á Spice Girls tónleika í Köln um jólin. Það væri fyndið.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 22:28 |

=================