Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, ágúst 31, 2007




Enn og aftur tókum við Arngunnur föstudagskvöldið með menningarlegu trompi. Í þetta sinn fórum við í Hafnarhúsið á opnun sýningar Gjörningaklúbbsins. Þar þáðum við léttar veitingar og sýndum okkur og sáum aðra. Sýningin var skemmtileg en ég þakka Arngunni og öllu margmenninu aðallega fyrir það. Ég fæ mikið kikk út úr því að fylgjast með fólki. Ekkert pervertískt við það, mér finnst bara gaman að horfa á fólk. Eftir sýninguna litum við í boð til Sögu þar sem við þáðum einnig léttar veitingar og góðan félagsskap. Haldið var snemma heim á leið til að hafa umsjón með ungri systur sem er víst ekki svo ung lengur.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 23:55 |

=================

laugardagur, ágúst 25, 2007




Það hlýtur að vera leiðinlegt að vera óheppinn í andlitinu en með svaðalegan eðalrass.

Í gær gerðum við Arngunnur okkur glatt kvöld og fórum á Reyfi í glerskálanum við Norræna húsið. Við rétt misstum af Ólöfu Arnalds en á eftir henni spilaði færeysk perrahljómsveit að nafni Budam. Hún spilaði annað hvort væmin lög um ung börn sem deyja og fólk með krabbamein eða ógeðsleg perralög um vagínur og annað huggulegt. Við Arngunnur vorum fegnar þegar þau kláruðu og þá kom litli krullinn sem við vorum að bíða eftir. Jens sæti Lekman. Hann spilaði voðalega falleg lög og var sjálfur voðalega fallegur. Með honum spilaði Benni Hemm Hemm, þrollastelpa á bassa, hörkustelpa á trommur og afar fyndinn kall á píanó. Eftir tónleikana gaf Arngunnur sig á tal við Jens og tjáði honum hversu fallega hann syngur. Það er nauðsynlegt að láta fólk vita ef það stendur sig vel.

Í kvöld er það svo stuð í Garðabæ. Ég hlakka til.
Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 14:30 |

=================

fimmtudagur, ágúst 16, 2007




Sumum finnst róandi að tyggja pappír í litlar kúlur og kasta þeim um allt gólf. Mér finnst samt ekkert sérstaklega róandi að þrífa það upp á hverjum morgni. Í tilefni þess er síðasti vinnudagur minn á morgun. Vinnan mín er þó búin að vera rosa skemmtileg í allt sumar og það verður erfitt að hætta og þurfa að kveðja allt fólkið. Í næstu viku byrja ég svo í Iðnskólanum í Reykjavík þar sem ég hyggst hanna eitthvað smellið, eða alla vega læra aðferðirnar við hönnun.

Í sumar hef ég verið dugleg að taka myndir á trekkitrekk myndavélina mína og var að setja filmurnar á disk svo ég gæti sett þær á netið. Þannig að ef þið hafið áhuga þá er ég búin að setja nýjar myndir á myndasíðuna mína.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 16:34 |

=================

laugardagur, ágúst 11, 2007




Áðan gerði ég heiðarlega tilraun til að breyta viðhorfi mínu til hinna geysiþægilegu en allt of ljótu skóa Crocks með því að máta eitt stykki hjá samstarfsstúlku minni. Ekki gekk það vel. Aldrei hefur fótur minn verið jafnafmyndaður.
Í gær kláraði ég síðustu Harry Potter bókina. Svo að ég deyi ekki úr aðgerðarleysi í vinnunni fékk mér nýja bók strax í dag. Sú er íslensk og heitir Sumarljós og svo kemur nóttin. Hún var nú reyndar bara skyndiákvörðun en er ekki nema um 200 blaðsíður svo maður ætti nú alveg að geta komið sér í gegnum hana alla. Svo er hún víst mjög góð. Mér finnst samt íslenskar bækur margar svo skrýtnar.
Í gær skemmti ég mér aðeins með Laufeyju og Þóru og karlpeningi sem Þóra sá um að skaffa. Kvöldið var gott og leikurinn verður endurtekinn aftur í kvöld af enn meiri hörku. Ég kynntist yndislegum svörtum kettlingi sem heitir Bangsímon. Ég sagði Laufeyju að gefa mér kött í afmælisgjöf en hún neitaði. Hún vill halda vinskapnum við foreldra mína frekar en að gleðja mig með kisa.

Jæja, ég er farin að vinna eða bara lesa.
Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 16:21 |

=================