Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


laugardagur, september 29, 2007




Þá er maður víst orðinn 20 ára. Ekkert merkilegt við það, svo sem. Mér finnst eins og ég sé búin að vera 20 ára alveg heillengi. Maður lifir svo hratt í dag. Á afmælisdaginn var ég græjuð upp og fékk bæði myndavél og síma og ýmislegt annað fallegt. Þá verður maður bara að njóta þess að vera 20 því það er miklu meira kúl heldur en að vera 21.

Svo lét ég verða af því um daginn áður en september kláraðist og keypti mér miða á Airwaves. Nú fer hver að verða síðastur að næla sér í ódýrari miðann. Mikið verður það nú gaman að lyfta sér aðeins upp í októberkuldanum með því að skella sér á ýmsa góða tónleika.

Ég er alveg orðin húkt á Sex and the city þessa dagana. Ég er með allar seríurnar sex heima hjá mér, byrjaði á byrjuninni og stefni að því að rúlla þessu öllu í gegn. Maður hefur nú séð þorrann af þessu áður en það er samt alltaf gaman að horfa á þetta.

Í gær var mér boðið á sinfóníutónleika. Góðir tónleikar. Skemmtileg verk á dagskrá og fallegur einleikur eftir hlé. Þakið ætlaði að rifna af húsinu og maður fyrir aftan mig gólaði upp í eyrað á mér af hamingju. Svo hafði konsertmeistarinn tekið sig til og litað hárið á sér bleikt. Eftir tónleikana áttum við Laufey góða stund með pizzu, bjór, Sex and the city og fleira glensi. Mikið er gott að það sé komin helgi.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 10:54 |

=================

miðvikudagur, september 12, 2007



Nú sötra ég fyrsta espressó dagsins og bíð eftir því að fara á æfingu með Selkórnum og Sinfoníuhljómsveit Íslands. Við erum að fara að syngja saman Völuspá á morgun. Mjög fallegt og skemmtilegt verk. Svo er partý eftir á. Léttar veitingar. Ég hata ekki léttu veitingarnar.
Síðasta helgi var afar skemmtileg en einnig viðurstyggileg. Ég er ekkert að fíla þessar löggur spásserandi um miðbæinn á nóttunni. Mér leið eins og ég væri komin á Litla hraun og föngunum hefði verið leyft að halda partý. En bla bla, auðvitað gera þær eitthvað gott bla bla þessar blessuðu löggur, já já. Ég er bara bitur. Á föstudaginn byrjaði lítil samkoma hér að skemmta sér og þorri hennar fór svo á Háskóladjammið í glerskálanum. Þvílíkt djamm. Skálinn bara fullur og geggjað mikið stuð. Djóóók. Við Arngunnur vorum síðan svo uppgefnar eftir þetta megaglerskáladjamm að við röltum heim til hennar og borðuðum epli og vatn.

Á laugardaginn fór ég í skemmtilegustu leigubílaferð ever. Þökk sé Laufeyju sem gaf mér upp vitlaust heimilisfang á húsinu hennar Olgu Sonju og sendi mig í gamla húsið hennar Þóru. Ég komst þó til Olgu á endanum og borðaði þar unaðslegan mat og ræddi við mínar fögru vinkonur á meðan ég horfði á landsleikinn á mute.

Ég læt fylgja með mynd af frábærri gjöf sem ég fékk frá foreldrum mínum um daginn. Tveggja bolla.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 10:00 |

=================

sunnudagur, september 09, 2007


Ég samgleðst öllum þeim sem ákváðu að fara ekki niður í bæ í kvöld. Djöfuls helvíti á jörðu.

Kv. Edda


Edda eða Egill kl. 04:34 |

=================