Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


miðvikudagur, október 31, 2007




Soffa gladdi mig svo með færslum tvo daga í röð að ég ákvað að taka hana til fyrirmyndar og bara blogga. Á morgun held ég til Sverige í nokkra daga. Það verður aldeilis gaman. Ferðataskan liggur hér makindalega hliðina á mér, hálffull.
Í kvöld ætla ég á tónleika með Ólöfu og Ólafi Arnalds. Það verður gaman. Arngunnur ætlar með mér. Eða ætla ég með Arngunni? Tjah, við ætlum alla vega að fara saman. Meira að segja samferða. En ekki samfeðra.

Áðan pakkaði ég skókassa inn í jólapappír og fyllti hann af dóti. Ég ætla að senda hann til Úkraínu til lítillar stúlku á aldrinum 6-10. Þar með legg ég mitt af mörkum í átakið "Jól í skókassa" á vegum KFUM- og K. Í kassann setti ég ýmislegt góðgæti; teikniblokk og liti, blýanta og strokleður, gúmmikarla, púsluspil, blöðrur, húfu, regnslá, veski og örugglega það furðulegasta; svitaband. Ég vona að sú heppna sem fær þennan góða pakka verði ánægð með gjöfina.

Já, þá er um að gera að halda áfram með dagskrána. Skella sér í sturtu, klára að pakka og fara svo í ræktina. Góða ferð allir sem eru að fara til útlanda um helgina því ég veit að það eru ansi margir. Ég læt fylgja með mynd af töffaranum Joséphine Baker. Eðalkona þar á ferðinni.

kv. Edda


Edda eða Egill kl. 19:11 |

=================

miðvikudagur, október 24, 2007




Jiminn, hvað það er drungalegt úti. Ég sit inni í stofu og horfi út um gluggann og langar mest upp í rúm. Kannski af því að klukkan er bara níu og ég vaknaði klukkan sex til að fara í ræktina. Svo byrjar skólinn ekki fyrr en fjögur. Það var bara ansi hressandi að vakna í morgun og skella sér í Brjálaða brennslu með Olgu Sonju. Það var furðulega auðvelt að vakna svona snemma. Ekki það að ég gæti þetta á hverjum morgni. Kannski svona einu sinni í viku.

Eftir viku fer ég til Svíþjóðar og hef það náðugt í nokkra daga ásamt sjö strákum. Það verður hressandi, geri ég ráð fyrir, enda skemmtilegir strákar. Ég hlakka til að komast aðeins burt frá Íslandi og njóta þess að slappa af í sænskum búðum og kaffihúsum, og auðvitað sænskri náttúru.

Airwaves var skemmtilegt. Samt fegin að þetta er búið þar sem fjögurra daga skemmtanahald tekur dálítið á líkama minn og sál. Trentemöller og Chromeo finnst mér standa upp úr en aðrir tónleikar voru auðvitað líka mjög skemmtilegir. Ég er búin að setja inn myndir.

Svo á Soffa mín kæra afmæli í dag. Ég vona að hún eigi góðan afmælisdag í London, orðin tvítug, stúlkan!

Kveðja, Edda.


Edda eða Egill kl. 08:51 |

=================

fimmtudagur, október 18, 2007




Kaffitár er mitt helsta athvarf þessa dagana. Núna sit ég á Kaffitári í Bankastræti nýkomin af Kaffitári í Þjóðminjasafninu. Þetta er ekki heilbrigt, ég veit það, en ég hef bara ekkert annað að gera. Skólinn byrjar ekki strax og ég nenni ekki að vera heima. Það er byrjað aftur að selja Chai Latte hér. Einmitt þegar Soffa fer út fer Kaffitár aftur að selja Chai. Ég vona að þú fáir eitthvað chai þarna úti, Soffa mín :)
Þá er airwves byrjað og það bara ansi vel. Ég byrjaði á Grand Rokk með góðu fólki þar sem við horfðum á Grasrætur, <3 Svanhvít og Naflakusk. Það var bara ansi gaman og þá röltum við á Nasa, kíktum aðeins þangað inn en þar var of róleg stemmning fyrir okkar smekk svo við fórum í ghettóið á Gauknum. Þar sáum við 1985! sem var megaskemmtilegt og svo enduðu Rottweiler hundar kvöldið okkar sem var snilld. Vel heppnað byrjunarkvöld. Í kvöld er það svo Jenny Wilson og Grissly bear og eflaust eitthvað fleira skemmtilegt.

Ykkur til mikillar ánægju er ég svo búin að setja inn myndir frá afmæli Laufeyjar og Soffu. Tjékkið á því hér í link til hliðar.

Bless í bili, Edda.


Edda eða Egill kl. 12:03 |

=================

fimmtudagur, október 04, 2007




Þá er enn einn skóladagurinn búinn og ég hef sjaldan verið jafnbúin á því. Ég er komin upp í rúm með helstu nauðsynjar og stefni á að standa ekki upp í bráð. Tölvan, síminn, kassi af svissnesku maple súkkulaði, kokteilabækur og auðkennislykillinn. Ég gæti setið hér að eilífu.

Ég var í löngu gati í skólanum áðan og fór á Kaffitár. Það var ansi huggulegt og ég átti góða stund með sjálfri mér. Ég fékk þó örlítinn og skemmtilegan félagsskap þegar tveir fullorðnir karlmenn komu og spurðu hvort þeir mættu ekki tilla sér hjá mér því það væri ekkert borð laust. Jújú, auðvitað máttu þeir setjast. Ég hélt bara áfram að lesa Moggann og hugsa um hvað þetta væri skemmtilegt. Þeir sögðu ekki mikið og stoppuðu ekki lengi hjá mér því það losnaði borð fyrir þá en á þessum stutta tíma náðu þær að kæta mig mikið með þessu glensi: Annar maðurinn spurði "hvað sagði dauða konan við dauða manninn?" og hinn maður svaraði um hæl, "Við erum lík!" Já, svo fóru þeir.

Ég hlakka svo til þegar ég vinn í lottói. Ég finn það bara á mér. Ég ætla að kaupa mér lottómiða á laugardaginn. Aldrei að vita nema maður næli sér í nokkrar milljónir.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 15:54 |

=================