Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


fimmtudagur, nóvember 29, 2007




Í gær var taka tvö í Pennanum. Í þetta sinn labbaði ég með Laufeyju og við mættum vel fyrir tíu. Fengum okkur kaffi og flettum blöðum. Það var hyggeligt og svo röltum við til Laufeyjar og horfðum á tíufréttir og How to look good naked. Eðalblanda af viti og bulli. Svo skiptumst við á að standa upp og berja í sjónvarpið. Ég ætlaði reyndar að plata Laufeyju á Enska barinn til að horfa á Liverpool leikinn, en það var svo ekkert búið að opna staðinn. Helvíti er ég ánægð með félaga mína í Liverpool. Þeir ættu að breyta nafninu í Loverpool... æjjæj, fyndið,ha!

Miðbærinn er afar góður staður til að rekast á vini. Á leiðinni á Kaffitár hitti ég Laufeyju, á Kaffitári hitti ég Arngunni og Höllu og síðar kom Þóra. Allt saman mjög óplanað. Í síðasta hönnunarsögutíma vetrarins á eftir förum við á Hótel Borg að skoða húsið og endum svo á kakóbolla. Það verður huggulegt. Alllt er svo asskoti huggulegt þessa dagana. Frost og kuldi og jólaskreytingar og aðventan alveg að koma. Á laugardaginn ætla ég á Killer Joe í Borgarleikhúsinu með Arngunni. Og hvað verður það ? Jú, einmitt huggulegt. Held að þetta leikrit sé reyndar ekkert huggulegt, en það verður samt huggulegt að eyða kvöldstund með Össunni. Við erum svo huggulegar saman.

Allamalla...


Edda eða Egill kl. 11:59 |

=================

miðvikudagur, nóvember 28, 2007




Þá er síðasta skólavikan að verða búin, þrjú próf í næstu viku og svo bara jólafrí. Ég er búin í prófum sjötta des og byrja aftur í skólanum níunda janúar. Ansi langt frí sem ég fæ. Ég vinn reyndar einhverjar nokkrar vaktir en annars verð ég bara að finna mér eitthvað að gera. Ég held ég verði nú ekkert í vandræðum með það. Það er búið að vera svo mikið að gera að það verður gott að fá frí og geta slappað af. Ég þarf að kaupa jólagjafir og pakka þeim inn, taka til, baka, fara í ræktina, skera laufabrauð, hitta Soffu, hitta hina vini mína og margt fleira. Mér ætti ekki að leiðast. Nei nei nei...

Ég er búin að setja inn myndir frá afmælinu hennar Arngunnar. Það er reyndar dálítið síðan ég gerði það, en þeir sem ekki hafa áttað sig á því kíkja endilega.
Í gær fórum við Olga Sonja í hressandi kvöldgöngu. Það var kalt og hált en okkur tókst þó að koma okkur niður í Penna. Við náðum okkur í blöð til að skoða og keyptum okkur Mozart kúlur. Þegar við vorum nýsestar og sáum fram á huggulega stund í leit að áramótakjólum kom kona og tilkynnti okkur að klukkan væri orðin tíu og það væri verið að fara að loka. Ansi stutt gaman í Pennanum, en það var þó gaman. Svo gengum við bara aftur heim. Ég mæli með svona kvöldgöngum í kuldanum. Það er mjög hressandi.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 11:52 |

=================

mánudagur, nóvember 12, 2007




Þá er maður mættur enn einu sinni á Kaffitár að bíða eftir því að tíminn líði. Þarf að mæta á fund klukkan sex og nenni ekki heim. Það er mun betra að fara bara á Kaffitár með mína nýju bestu vinkonu í eyrunum, Rihanna. Klikkar ekki, gellan sú. Sammála, Laufey?
Áðan í skólanum fórum við á Ásmundarsafn að skissa. Mjög fallegt og skemmtilegt safn og gott andrúmsloft. Allt voða kósý og þægilegt. Mæli með því að kíkja þangað.
Svo var ég að setja myndir á netið. Ég er óstöðvandi í þessu. Í þetta sinn setti ég myndir frá föstudagskvöldinu þar sem ég átti góða stund heima hjá Laufeyju. Við tókum margar flasslausar artímyndir, sem var skemmtilegt, sko.
En aftur að henni Rihönnu og hennar félögum; ég hef verið að uppfæra i-podinn minn af poppi. Ég uppgötvaði um daginn að ég á ekki nógu mikið af poppi svo nú er póðinn orðinn fullur af Rihanna, Pussycat dolls, Justin, Timbaland og og Ashlee Simpson með sinn frábæra smell L.O.V.E. Jájá, svona er nú poppið margslungið. Frank Sinatra fékk þó að fylgja með svo nú get ég líka dansað cheek to cheek í bland við allt harða poppið.
En nú er ég að hugsa um að snúa mér að heimildaöflun fyrir ritgerðina mína sem ber titilinn Art Deco-með áherslu á Mokkakönnur. Það verður snilld.

Helvíti er þetta sýrt.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 16:38 |

=================

laugardagur, nóvember 10, 2007




Enn ein helgin komin. Það er fínt. Móðir mín átti afmæli í gær svo ég fékk mikið af góðum kræsingum. Ég kíkti líka á opinn dag í Listaháskólanum. Fór túr um hönnunar- og arkitektúrdeildina, sem var fínt. Gaman að sjá hvað fólkið er að gera þarna, þó mig langi nú ekki mikið í þennan skóla. Langar mun meira til útlanda. Í gærkvöldi hélt ég svo til Laufeyjar þar sem við tjilluðum á gammosíum fram eftir kvöldi en klæddum okkur þó áður en Hildur Helga og Kári komu. Svo kom Arngunnur. Skemmtilegt kvöld. Svo þarf ég nú eiginega að fara að drífa mig í vinnuna núna. Sinna sjúka fólkinu fram eftir kvöldi. Það verður gaman, eins og venjulega. Ég er búin að setja inn tvö ný myndaalbúm á síðuna mína og svo koma myndir frá gærkvöldinu bráðum.

Bless bless, Edda.


Edda eða Egill kl. 14:27 |

=================

mánudagur, nóvember 05, 2007




Jájá, þá er ég barasta komin heim frá Svíþjóð. Síðasta utanlandsferð ársins, geri ég fastlega ráð fyrir, nema einhver ætli að bjóða mér eitthvert áður en árið klárast. Búin að fara til Boston í apríl, Rómar í júní, Spánar í júlí og svo núna Svíþjóðar í nóvember. Ferðin var vel heppnuð og ansi skemmtileg. Ég er mjög hrifin af þessu litla sem ég náði að sjá af Svíþjóð og gæti vel hugsað mér að eyða meiri tíma þar einhvern tíma. Við byrjuðum fyrsta daginn í Stokkhólmi þar sem við gengum of mikið og urðum of þreytt. Þar verslaði ég eitthvað oggupons og fékk mér kaffi og möffins á stað sem heitir The Muffin Bakery. Það var huggó. Hinum tveim dögunum eyddum við í Uppsölum þar sem Svenni og Jommi eiga heima. Uppsalir er líka ansi skemmtileg borg með skemmtilegum miðbæ þar sem ég verslaði einnig eitthvað oggupons, drakk kaffi á Wayne's coffee og rölti um í snjónum. Ég fór einnig með strákunum á pöbbinn O'Learey's og horfði á fótboltaleik og svo djömmuðum við og dönsuðum og borðuðum hamborgara á Max. Sem sagt, ansi skemmtileg ferð.

Nú hefur hversdagsleikinn tekið við og ég mætti í skólann í dag og teiknaði gang. Ganginn í skólanum, til að æfa fjarvíddina. Hún er skemmtileg, fjarvíddin. Svo kom ég heim og málaði. Notaði andstæðu litina fjólubláan og grænan sem kom skemmtilega út. Já, svona hefur maður nú lært eitthvað í vetur. Sem betur fer.

Hafið það nú gott...kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 19:36 |

=================