Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, desember 28, 2007




Jólin eru gullin. Góður tími. Að vaka til fimm og sofa til tvö er ágæt iðja þó það væri nú fínt að vakna aðeins fyrr og koma einhverju í verk á daginn. Það er nú samt svo yndislegt að liggja í bólinu með bók og heitt súkkulaði í múmínbolla. Það er gullið. Ég er búin að lesa smotterí og horfa á Edward Scissorhands sem ég fékk í jólagjöf. Hún er gullin. Ótrúlega falleg mynd. Ég er rétt byrjuð að lesa Friðþægingu eða Atonement efir Ian McEwan sem ég fékk einmitt líka í jólagjöf. Ég er ekki komin nógu langt til að geta tjáð mig um hana en ég hlakka til að halda áfram.
Í gær var mikil spilagleði í fólkinu í kringum mig. Ég fór í tvö spilapartý en eyddi þorranum af kvöldinu í spilakátínunni hjá Arngunni. Það var gullið kvöld. Við spiluðum Cluedo og Pictionary og drukkum heitt súkkulaði og rauðvín. Ansi huggulegt. Ég og Arngunnur unnum Pictionary-ið og erum nú orðnar sérfræðingar í að teikna hamstur, marsvín, hvítmaur, stangveiðimann og stjórnklefa. Klukkan þrjú um nótt hélt ég svo í annað spilapartý og spilaði þar Trivial Pursuit til klukkan fimm.
Ég set bráðum inn mydir frá spilagleðinni.

Bless í bili, Edda.


Edda eða Egill kl. 17:55 |

=================

mánudagur, desember 17, 2007



Þá er ég búin að vera í jólafríi í ellefu daga og á ennþá rúmlega 3 vikur eftir. Þetta er dálítið næs, verð ég að segja. Ég er búin með vaktirnar mínar á Sjúkrahótelinu og á þá eftir að vinna í Úlfarsfelli tvo daga fyrir jól. Annars er ég bara í afslöppun. Helgin var góð. Á föstudaginn horfðum við Laufey á Sex and the city og borðuðum ýmsan mat. Skyrtertu, ís, sleikjó, Dumle og Sprite. Á laugardaginn fóru við Laufey á Laugaveginn að kaupa smá jólagjafir og svo var partýhald um kvöldið hjá Sigrúnu og Júlíu á Laugaveginum. Það var megaskemmtó, gaman að hitta allar ljúfu stúlkurnar og dansa við poppið góða. Þennan dag fór Laufey einnig í sína fyrstu en ekki síðustu ferð í Nexus. Hún varð nú ekki fyrir vonbrigðum, stúlkan, þar sem að einn afgreiðslumaðurinn hafði skellt sér í skotapils og mætt galvaskur í því í vinnuna. Það var sjón sem enginn ætti að missa af.

Nú sit ég á Kaffitári þar sem andinn til skrifa kemur ætíð yfir mig. Ég held ég geti bara hætt að mæla mér mót við einhvern á Kaffitári þvi ég hitti hvort eð er alltaf einhvern sem ég þekki. Í þetta sinn löbbuðu Soffa og Sigurjón inn mér til mikillar kátínu og settust hjá mér, krakkarnir góðu.

Annars er ég búin að setja myndir á netið síðan á laugardaginn.
Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 16:57 |

=================

laugardagur, desember 08, 2007




Nú sit ég hér í tölvustofunni í VR II eins og svo oft á laugardagskvöldum. Hér er mikið líf. Margir að læra og þykjast læra og þrír nördar með mér hér í tölvustofunni. Við höfum ekkert sagt, en ég hnerraði einu sinni.
Margt er ég búin að gera í dag. Skera út laufabrauð og borða hangikjet og tjatta við frænku mína góðu hana Röggu. Ég er nú ansi lúin, þó stemmningin hér í VR sé með þeim betri.
Í gær var mikið stuð. Ég og Soffa fórum á gamlingjaslagarann Ást í Borgarleikhúsinu. Uss... nú er einn félagi minn hér í tölvustofunni að tala í símann og hann talar geðveikt hátt. En alla vega, leikritið Ást var skemmtilegt, voða krúttlegt, fjallaði um Ást yfir höfuð. Ansi hugljúft. Síðar um kvöldið héldum við til Laufeyjar ástsamlegu þar sem við höfðum það gaman með öðru góðu fólki. Svo endaði ég á að fara niður í bæ með Laufeyju og við dönsuðum eins og við ættum lífið að leysa. Mikið gaman þetta kvöld.

Nú er ég að hugsa um að yfirgefa félaga mína hér í tölvustofunni. Ég á eftir að sakna þeirra en ég vonandi sé þá nú aftur seinna.
Bless í bili, Edda.


Edda eða Egill kl. 23:26 |

=================