Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


fimmtudagur, janúar 24, 2008



Björn Ingi hættir með stæl og leggur til að reistur verði minnisvarði um Bobby Fischer. Ég skil ekki þetta Bobby Fischer æði.

Í dag er dagur rebelsins. Ég sting af úr miðjum tíma til að fara á mótmæli í Ráðhúsinu. Rebel. Það var margmenni í Ráðhúsinu og allir að púa á Villa og þennan Ólaf sem er víst orðinn borgarstjóri núna. Þessir kallar. Alveg dæmalausir. En nú er ég komin úr mótmælunum, búin að fara á Prikið með Arngunni og er farin upp í rúm að skoða kokkabækur, horfa á handboltann og njóta ilmsins af góða L'occitane vanillukertinu mínu. Já, svona eiga kaldir fimmtudagar að vera. Rebel og kósýheit.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 15:15 |

=================

fimmtudagur, janúar 17, 2008


Ég vona að fleiri en ég glími við letivandamál. Það er ekki gott að vera einn með vandamál sín. Ég þjáist af leti, sérstaklega á morgnanna, og á gífurlega erfitt með að draga mig á lappir. Ég veit ekki hvort þetta sé tímabundið eða hvort ég sé bara fallin á lífinu.
Skólinn er byrjaður og er bara skemmtilegur. Ég er í módelteikningu þar sem ég kem til með að teikna hinn nakta Pál. Hann er víst fínn kall, hann Páll nektarmódel. Sögur segja samt að hann hafi fitnað. Svo læri ég á fótósjopp, tek myndir, fræðist um efni og framleiðslutækni, læri að búa til ferilmöppu, læri búningasögu og vinn úr keramiki. Í gærkvöldi fór ég í minn fyrsta keramiktíma. Þar lærðum við að vinna út úr kúlu, held ég það heiti, og enduðum með fína krús eða krukku. Það var skemmtilegt.

Fyrir þá sem ekki hafa áttað sig á því sjálfir er ég búin að setja inn einhverjar myndir. Nýjasta albúmið er úr afmælinu hennar Thelmu sem hún hélt síðasta laugardag. Það var ansi skemmtilegt og vel heppnað teiti. Svo byrjar bara EM í handboltanum í dag! Það verður stuð.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 11:53 |

=================

laugardagur, janúar 05, 2008




Þá fer mínu mánaðarlanga jólafríi að ljúka, en þó ekki alveg strax. Ég fæ stundatöflu á mánudaginn og byrja svo í skólanum á miðvikudaginn. Það verður gaman að byrja í skólanum og fara í fatasaum, módelteikningu, keramik og fleira skemmtilegt. Svo verður gaman að hafa Soffu í sama skóla aftur. Mikið fjör í Iðnskólanum.
Eftir að hafa drattast á lappir klukkan eitt um hádegi í marga daga kveið ég mikið fyrir því að vakna klukkan sjö í morgun og mæta í vinnuna á Sjúkrahótelinu góða. En það gekk bara ljómandi vel og ég mætti fersk klukkan átta til að hlúa að þeim fáu hræðum sem dvelja þar þessa dagana. Leikurinn verður svo endurtekinn á morgun.
Ég held áfram að lesa Friðþægingu sem er bara hin fínasta bók og ég held líka áfram að horfa á myndir. Ég er búin að horfa á The Dreamers og Me and You and Everyone We know og svo fór ég á Gyllta áttavitann í bíó. Gyllti áttavitinn er flott mynd en engan veginn jafngóð og bókin. Það vill nú oft verða þannig þegar bækur eru gerðar að kvikmyndum. Mér finnst bara svo skrýtið að þurfa endilega að breyta söguþræðinum og sleppa mikilvægum atriðum. Svo er Friðþæging að koma í bíó og bráðum Flugdrekahlauparinn líka. Fullt af góðum bókum á leið á hvíta tjaldið. Það verður fróðlegt að sjá þær.

Ég er að setja myndir á netið frá áramótunum og smá tjilli á nýju ári.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 17:31 |

=================