Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


miðvikudagur, febrúar 27, 2008



Síðasta helgi var unaðslega skemmtileg. Engin vinna, bara partýstuð. Keramikdjamm á föstudaginn og dansað á Sólon þar sem ég komst inn með því að sýna dyraverðinum oversized spil sem ég hafði keypt í Úlfarsfelli fyrr um daginn. Þau virka betur en skilríki. Þau eru svo sniðug. Á laugardaginn var svo svaðalegt partý hjá Soffu. Klúbbastemmning í herberginu hennar og fyndin stemmning í eldhúsinu. Mateus og mikið stuð og svo bara Q-bar að dansa dansa dansa. Myndir eru komnar á netið. Loksins kláraði ég að setja inn allar myndirnar 120. Það tók sinn tíma.
Í dag eru öðruvísi dagar í Iðnskólanum þar sem kennsla fellur niður og í staðinn er boðið upp á fullt af glensi, námskeiðum og sýningum. Ég og Margrét skelltum okkur í skrautskrift, fórum á myndlistasýningu og hárgreiðslukeppni. Fínt að þurfa ekki að mæta í hefðbundna kennslu. Ég er komin með nett leið á Photoshop tímunum á miðvikudagsmorgnum. En ég verð þakklát seinna fyrir að kunna á photoshop. Það mun koma sér vel.

Ciao í bili.
Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 15:12 |

=================

miðvikudagur, febrúar 20, 2008




Þá er kominn miðvikudagur. Helgin að byrja. Já, upphitun fyrir helgina mína hefst alltaf á miðvikudögum. Í keramiki. Það er stuð í keramiki. Vasarnir og skálarnar koma manni alltaf í gott stuð. Nú var ég að koma af safnarölti. Fór með búningasöguhópnum á sögusafnið í Perlunni og svo fórum við á ljósmyndasýningu í Þjóðminjasafninu sem sýnir íslenska búninga í gegnum tíðina. Mjög skemmtileg sýning og flottar myndir. Svo er þarna líka sýning sem heitir Veggurinn en þar er einn veggur tileinkaður skemmtistaðnum Sirkus með nokkrum ljósmyndum. Dálítið spes. Sömu tvær manneskjurnar á öllum myndunum. Og hestur. Flottar myndir... en dálítið spes.

Síðasta helgi var góð helgi. Föstudagurinn var eðall. Ég og Arngunnur og Laufey byrjuðum í rólegu stuði og enduðum í roknadansi á Q bar þar sem Sigrún og Vala slóust í hópinn. Báðum um oldschool Destiny's child og Ace of base og dönsuðum við þessa eðalmúsík. Hittum síðan Bjögga í Dáðadrengjum. Gáfum honum pizzubita og vatn og ræddum um endalok Dáðadrengja og hugsanlegt kombakk. Gaman.

Mánudagurinn var sannkallaður lúxusdagur hjá okkur Laufeyju. Við sátum lengi á Te og kaffi og drukkum kók og kaffi. Fórum svo og eyddum fúlgu fjár í Tiger og svo var haldið í Kringluna. Þar lentum við á svaðalegu tilboði í Tophop. Keyptum okkur báðar skó og 1250 kjellinn. Og svo var það kvöldmatur í Ísbúðinni Hagamel. Við fengum okkur bragðaref saman og báðum um jarðaber, toblerone og þrist. Það eina sem við fengum var ótrúlega mikið af jarðaberjum og trompi. Athyglisvert en ágætt.

Myndir frá föstudeginum komnar á netið.
Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 16:44 |

=================

fimmtudagur, febrúar 14, 2008



Það rignir og rignir Ég hef aldrei verið mikill aðdáandi rigningarinnar en í dag er ég bara ánægð með hana. Hún er fersk og sér til þess að snjórinn hypji sig. Þá getur maður kannski hætt að ganga í bomsum og skellt sér í fína hæla einstaka sinnum.

Um þessar mundir er ég ansi upptekin kjella. Ég á mína rólegu daga en þar sem ég er í fimm vinnum gefur það eiginlega auga leið að það sé mikið að gera. Ég þríf hjá ömmu minni hálfs mánaðarlega, passa frænda minn einu sinni í viku, afgreiði í Úlfarsfelli einstaka sinnum og tek vaktir á Sjúkrahótelinu. Það nýjasta er býtibúr barnadeildar Landspítalans. Ég verð nú reyndar bara þar í nokkrar vikur á meðan mesta manneklan stendur yfir. En alla vega, fimm vinnur plús skólinn. Jesssör.

Síðasta föstudag var mikil matar- og kokteilastemmning hjá henni Þóru Elísabetu frænku. Við (eða Þóra sá nú reyndar um þetta allt) elduðum risarækjur í forrétt, salsasúpu í aðalrétt og borðuðum sorbet í eftirrétt. Mmm... það var ansi gott og svo tók við kokteilagerð og almenn gleði. Myndir frá þessu og fleiru í lífi mínu eru komnar á síðuna mína.

Ég vil lýsa yfir ánægju minni með glingurgellur sem hafa hætt við að hætta að blogga. Ferskar að vanda, stúlkurnar.
Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 19:43 |

=================

mánudagur, febrúar 04, 2008



Algjörlega tjúllandi stemmer í kuldanum. Maður rétt tekur af sér vettlingana og höndin er við það að detta af. Ég hefði ekkert á móti því að flatmaga í sólinni einhvers staðar. En þess í stað skelf ég úr kulda allan liðlangan daginn og ekkert nema brennheit sturta getur bjargað mér. Ég fíla samt hvað það er farið að birta mikið á morgnanna. Í byrjun vetrar var niðamyrkur alveg fram til hádegis en núna er orðið bjart bara um níuleytið. Það er mjög gott fyrir mitt litla sálartetur að fá smá birtu.

Á föstudaginn fór ég á bíó með Arngunni, Laufeyju og Bergþóru. Við sáum Atonement sem við vorum allar búnar að lesa. Myndin stóð alveg undir væntingum og var ekkert síðri en bókin, fannst mér. Góð bók og góð mynd. Svo er stefnan að fara á Sweeney Todd, Darjeeling Limited og fleiri vænlegar myndir bráðum. Svo náttúrulega Kite Runner þegar hún kemur. Fullt af góðum myndum í bíó.
Í nótt gerðist ég dálítið karla og horfði á Superbowl. Það var stuð. Assgoti spennandi leikur. Mitt lið vann. Þeir voru krúttlegir. Aumingja Brady, kærasti Gisele Bündchen, hann tapaði. En hann hefur þó Gisele. Það er meira en margir.

Í dag var gaman í skólanum. Við klessulituðum. Eða ef við viljum vera pro, þá teiknuðum við með olíukrít. Við skiptumst á að sitja fyrir og stilltum okkur upp í skemmtilegar stellingar. Alltaf gaman í skólanum. Á föstudaginn teiknuðum við svo rassinn á Páli. Nice one.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 18:32 |

=================