Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


miðvikudagur, mars 26, 2008



Ef einhvern langar að hlæja ótrúlega mikið mæli ég með greininni "Minning um vin" í Velvakanda Moggans í dag. Ég alla vega táraðist af hlátri.

NóaKropp og kaffi... klikkar ekki. Síðustu tvo daga hef ég farið tvisvar í bíó. Á mánudaginn fór ég með Arngunni á Fjalaköttinn í Tjarnarbíói. Við sáum frönsku myndina Jules et Jim frá 1962. Svart hvít. Mjög skemmtileg en mér tókst samt að sofna í fyrsta skipti í bíó. Ég var virkilega þreytt og svo var stemmningin þarna bara svo kósý. Boðið var upp á fríian bjór og Arngunnur keypti popp svo við höfðum það kósý yfir Jules og Jim með bjór og popp. Gerist ekki betra. Ég alla vega sofnaði, gaf frá mér baul svo Arngunnur vakti mig og ég gat haldið áfram að horfa á myndina. Gærdagurinn var allur bara voða góður. Síðasti dagur páskafrísins og ég naut hans til fullnustu. Hitti Soffu í hádeginu og við fengum okkur að borða á Vegamótum. Svo bara tjill, ræktin og um kvöldið fórum við Kári á Juno. Hún var mjög skemmtileg.
Svo byrjaði skólinn bara í dag með allri sinni gleði en nú er bara mánuður eftir. Þá fer ég til London og svo má guð vita hvar ég ætla að vinna í sumar. Það kemur allt saman í ljós.

kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 12:32 |

=================

sunnudagur, mars 23, 2008




Tyra Banks alltaf unaðsleg í ANTM. Finnur alltaf upp á einhverju sniðugu og ég fæ aulahroll á no time.
Páskadagur kominn og ég byrjuð að borða eggið mitt. Aumingja félagar mínir í Liverpool áttu ekki góðan páskadag.
En kona sem án gríns er unaðsleg er Kylie Minogue á Brit verðlaununum. Hún var í svo flottum kjól. Mig langar í svoleiðis. Kannski maður geti fundið eitthvað svipað í London en þangað er ég einmitt að fara eftir einn mánuð. Ég og mamma og Fríða systir förum saman og eyðum langri helgi í London. Það verður fyrsta skipti mitt þangað svo ég hlakka mikið til.
Á föstudaginn langa var gaman og er ég búin að setja myndir frá því gamni inn á síðuna mína. Myndirnar segja allt sem segja þarf.

Ciao, Edda.


Edda eða Egill kl. 17:20 |

=================

mánudagur, mars 17, 2008




Sumum, eða eiginlega allflestum, sem komnir eru yfir vissan aldur finnst ekkert vit í því að ég sé í Iðnskólanum að læra hönnun. Amma mín telur að ég sé nú bara að leika mér og þegar ég segi henni að mig langi í listfræði í Háskólanum telur hún að þá væri ég nú enn þá bara að leika mér en ekki að læra eitthvað sem gæti hugsanlega nýst mér í framtíðinni. Sumir segja að ég eigi að læra eitthvað "gagnlegt" fyrst og síðan geti ég lært allt hitt skemmtilega sem ég hef áhuga á seinna. Sem sagt, ég á að finna eitthvað nógu leiðinlegt og gagnlegt og þegar því námi er lokið verð ég orðin fræðingur á svakalega leiðinlegu sviði. Svo verð ég handverkskelling með síða fléttu og feit læri í gammosíum í frístundum. Ég ákvað að vera opin gagnvart skoðunum þessa fólks og fór á hi.is og kannaði hvað eitthvað svakalega ganglegt eins og viðskiptafræðin hefði upp á að bjóða. Rekstrarhagfræði I, stærðfræði A, inngangur að fjárhagsbókhaldi.... allamalla! Mér finnst rekstrarhagfræði ekki hljóma spennandi og þá ætla ég ekki að læra rekstrarhagfræði. Það er ástæða fyrir því að ég skipti af náttúrufræðibraut og fór yfir á hina unaðslegu málabraut. Mér finnst það einfaldlega miklu skemmtilegra. Þannig er ég nú bara.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 16:33 |

=================

þriðjudagur, mars 11, 2008




Einu sinni var ég með fordóma fyrir Háskólanum því ég hélt að þar væru bara nördar með bakpoka. Nú hins vegar sé Háskólann í hyllingum og reyni að finna mér einhverja skemmtilega grein til að stúdera. Ef ég færi í háskóla gæti ég farið í vísindaferðir og árshátíðir og svoleiðis stuð. Og auðvitað lært eitthvað brilljant eins og hina geysivinsælu listfræði. Það er það heitasta í huga mér þessa dagana en til greina koma einnig bókmenntafræði og svo auðvitað efnafræðin. Eftir áramótin næstu langar mig svo að stinga af frá þessu landi. Læra tungumál og finna mig í einhverri stórborg Evrópu. Berlín er heit hjá mér og svo mjög mörgum öðrum. Við gætum búið til Íslendinganýlendu í Berlín á næsta ári, held ég. Ef það er þá ekki til nú þegar.

Í dag er ég hvorki í skólanum né vinnu sem er unaður og er ég búin að njóta dagsins í samræmi við það. Vaknaði snemma og fór í klippingu. Leit svo aðeins við á Tárinu með tölvuna mína. Hádegisverður á Vegamótum með systrunum sætu Soffu og Fríðu Siggu. Heim að kúra. Kaupa ís með Fríðu systur minni. Penninn og kaffi með Agli bróður mínum. Og svo hitta vinkonur tvær í kvöld. Og svo er veðrið svo yndislegt að maður getur ekki annað en verið sáttur með lífið.

Síðustu helgi fór ég á Kommúnuna í Borgarleikhúsinu. Þetta var frábær sýning og ég mæli með að áhugafólk um skemmtilegar kvöldstundir næli sér í miða áður en allt verður uppselt.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 18:02 |

=================

miðvikudagur, mars 05, 2008




Holy christ, hvað maginn verður útbelgdur eftir kjúkling og franskar úr Nóatúni. Keramikið, sko. Maður er kominn með nett leið á Subway í kvöldmatinn á miðvikudögum svo í þetta sinn ákváðum við að brjóta þetta aðeins upp og fórum í Nóatún og náðum okkur í kjúlla og vænan skammt af frönskum. Ágætur skítur.
Í dag samdi ég minn fyrsta söngtexta. Hann var góður. Ef einhvern vantar texta við lagið sitt, þá endilega hafið samband við mig og ég get soðið eitthvað saman þegar mér leiðist í búningasögu á miðvikudögum. Ótrúlegt samt hvernig hægt er að leiðast í tíma sem heitir Búningasaga. Það hljómar svo svakalega vel, finnst mér, og það er nú ansi skemmtilegt, en eins og með allt annað í lífinu fær maður leið af og til. Sérstaklega þegar tíminn tekur 3 klukkustundir.
Kvebbinn er kominn í mig og hálsbólgan líka. Ekki gott. En ég dúndra bara í mig lýsi og vítamínum og vona að það sé ekki um seinan. Ég vil ekki verða veik. Um helgina ætla ég að sjá Kommúnuna og þarf að vera eldhress fyrir bera bossa og annað því um líkt.
Á morgun fæ ég að sofa út sem verður unaðslegt og því ætla ég að vaka lengi í kvöld og horfa á Tintin et moi!

Good night, sleep in tights. Ég gerði það reyndar um daginn... svaf í sokkabuxum eftir eitthvað djamm. Það var ekkert sérstakt.
Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 22:29 |

=================