Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


þriðjudagur, apríl 29, 2008



Að setja hreint utan um rúmið mitt og fara síðan upp í það og borða snakk er ekki það sniðugasta, en samt ágætt.

Í gær kom ég heim frá lovely London. Við mæðgur gistum hjá vinkonu mömmu sem býr í Kensington. Það er mjög fallegt hverfi og gaman að rölta þar um. Við ferðuðumst síðan um borgina með strætó og skoðuðum alla helstu staði. Á laugardagsmorgun fórum við á Portobello road og gengum í mannhafinu og skoðuðum markaðsbása og litlar sætar búðir í sól og hita. Sunnudagurinn var svo algjör túristadagur þar sem við skoðuðum Buckingham palace, London eye, Big ben, Trafalgar square, National gallery, Chintaown og sitthvað fleira. Eitthvað smotterí var verslað og allir sáttir við heimkomu.

Á morgun fer ég í tvö atvinnuviðtöl og ef ég skölla ekki hvort tveggja ætti ég að vera nokkuð tryggð með sumarvinnu eftir daginn. Maður veit samt aldrei. Ég verð bara að kveikja á persónutöfrunum og vera snyrtileg til fara.

Kv. Edda


Edda eða Egill kl. 23:42 |

=================

miðvikudagur, apríl 23, 2008



Þá er ég búin að klára flest sem klára þurfti fyrir skólalok en síðasti skóladagurinn minn er í dag. Það er góð tilhugsun og enn betri er sú tilhugsun að ég sé að fara að fljúga til London á morgun. Ég er í miðjum klíðum að skella einhverjum flíkum niður í ofvaxna tösku sem verður hálf á leiðinni út en vonandi eitthvað fyllri á leiðinni heim. Á mánudaginn sauð ég saman eina ritgerð um Rókókó tískuna í Frakklandi á átjándu öld. Það var stuð og þegar henni var lokið kláraði ég aðra ritgerð um afrísku keramikkonuna Magdalene Odundo. Einstaklega skemmtileg efni sem ég valdi mér. Þegar ritgerðasmíðin átti sér stað höfðu litlu dönsku rauðhærðu krakkarnir á efri hæðinni ákveðið að fara í stompkeppni eða jafnvel snú snú og lætin voru gífurleg. Ég var alveg að missa þolinmæðina svo ég ákvað að beita trixi sem ég hafði aldrei áður prófað. Ég náði í kúst og lamdi honum í loftið... og það virkaði. Þau hættu að hoppa.
Ég er búin að setja eitthvað af nýjum myndum á netið. Föstudagskvöldinu eyddi ég á Boston með Laufeyju og Herdísi og Hildi Helgu sem var ansi kósý og skemmtilegt.
Svo sendi ég samúðarkveðjur til vina minna í Liverpool sem áttu ekki alveg nógu skemmtilegan leik í gær.

En nú kveð ég. Edda.


Edda eða Egill kl. 12:03 |

=================

laugardagur, apríl 12, 2008



Heil helgi sem ég get eytt í að hugsa bara um sjálfa mig. Engin vinna. Það er gott. Ég og Laufey höngsuðum í bænum með kaffibolla og ítalska Vogue og vatnsglas ókunnugrar konu. Já, það var einhver kona á Kaffitári sem var að drekka vatn á meðan hún beið eftir kaffibollanum sínum og svo þegar hún var búin með vatnið lagði hún bara glasið pent á borðið okkar Laufeyjar. Alltaf sniðugt að fylgjast með því hvað fólki dettur í hug.
Í gær eldaði ég góðan mat og drakk vín í góðra vina hópi og spilaði Trivial Pursuit. Það var góð kvöldstund og þegar heim var komið toppuðum við Kári góðu kvöldstundina með því að horfa á Mean girls.
Síðustu helgi hitti ég gamla bekkjarfélaga úr sjöunda bekk og áttum við góða stund saman. Myndir frá þeim mannfögnuði eru komnar á netið fyrir áhugasama.
Annars eru bara tæpar tvær vikur eftir af skólanum núna og ég á eftir að skrifa tvær ritgerðir, klára tvær möppur og gera tvö lokaverkefni í ljósmyndun og photoshop svo það er nóg að gera. Eftir þetta maraþon get ég svo slakað á því daginn eftir flýg ég til London. Það verður unaður.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 18:10 |

=================

þriðjudagur, apríl 01, 2008



Hvað ertu að drekka? Léttkolsýrt bergvatn með Mexican-limebragði. Góður skítur.
Einstaklega skemmtilegur nýi liðurinn í Nýju lífi sem heitir Piparsveinn vikunnar. Alltaf kynntur nýr piparsveinn, kostir hans og gallar útlistaðir. Fyrirsögn þessarar viku er "Ekki holdsveikur- einhleypur." Hreinn unaður.

Helgin mín var skemmtileg. Á föstudaginn fór ég í afmæli til Kristjáns Hrannars og á laugardaginn fór ég í grímuafmæli til Brynju. Ég dressaði mig upp sem Senorita og tjúttaði með öðru uppáklæddu fólki. Myndir eru komnar á netið. Á sunnudaginn fór ég svo í flippaða fermingu hjá systur minni þar sem organistinn spilaði "þú ert sko vinur minn" á meðan fólk labbaði út úr kirkjunni. Heljarinnar viðeigandi, jájájá. Svo borðaði ég góðan mat, flutti ræðu og söng.

Ciao, Edda.


Edda eða Egill kl. 16:10 |

=================