Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, maí 23, 2008



Um daginn horfði ég á El laberinto del Fauno (Pan's labyrinth) í annað sinn. Ég fór á hana í bíó á sínum tíma en keypti mér hana svo á dvd úti í London. Mér finnst hún góð en dálítið grótesk. Í London keypti ég mér nokkrar dvd myndir. Þegar ég var að borga fyrir þær horfði afgreiðslumaðurinn stíft framan í mig eftir hverja mynd sem hann stimplaði inn í kassann. Loks spurði hann mig hvað ég væri gömul. Ég var búin að gleyma hvað ég er gömul, sem gerist stundum, og hika en segi svo "twenty". Hann virðist efins og ég býðst til að sýna honum skilríki en hann segir það vera óþarfa. "You look a bit young" var innlegg hans í samræðurnar. Þegar ég kom út sá ég svo að myndirnar sem ég keypti voru mest bannaðar innan 15 ára.

Ég lendi ósjaldan í svona atvikum. Til dæmis þegar ég hitti gamla konu úti á götu þegar ég var á fyrsta ári í MR og hún spurði mig hvort ég væri í Melaskóla. Elstu börnin þar eru 12 ára.

Á mánudaginn byrja ég að vinna í skólagörðunum í Skerjafirði. Þar verð ég að rækta grænmeti og reyta arfa með litlum börnum. Ég hlakka mikið til. Það verður gott að fá að vera úti og ekki í vaktavinnu, bara frá 8 til 16. Þessi vika er sem sagt mín síðasta afslöppunarvika og er ég búin að njóta hennar í botn. Ég sef til hádegis, rölti í bænum, kaupi skó, borða sushi og drekk bjór með Laufeyju, klára snilldarinternetleikinn Acno's Energizer með Kára, fer á tónleika, fer í IKEA með Soffu, baka og elda. Helgin verður svo vonandi gleðigefandi. Euro og sjötugsafmæli á morgun og almenn gleði.

Ciao, Edda.


Edda eða Egill kl. 13:20 |

=================

laugardagur, maí 10, 2008



Börnin fá líka að finna fyrir verðbólgunni. Pokemon spilin hafa hækkað og ísinn líka. Þau skilja ekki af hverju en finnst það voðalega leiðinlegt. Mér finnst líka mjög leiðinlegt að ísinn hafi hækkað. Nú kostar bragðarefur 520 krónur og miðstærð af sjeik 450. Það er ekki kúl. Ég hef fundið mikið fyrir þessu síðustu daga því ég hef verið tíður gestur í ísbúð Hagamels. En gæðin leyna sér ekki og ég er alltaf sátt með ísinn í mallanum.
Í kvöld ætla ég að tjútta með Mateus og keramikgellunum. Það verður stuð þrátt fyrir örlítinn skít í hálsinum. Það jafnast ekkert á við hása Mateusarrödd síðla kvölds. Í gær hitti ég vinkonur mínar nokkrar heima hjá Thelmu. Það var gaman að hitta þær skvísur og spjalla og horfa á ýmsa snilldina á Youtube. Mér finnst ég þó ekki nógu mikill Youtube nördi. Ég þarf að fara að prófa mig meira áfram á þeim miðli.

Í gær fór ég til tannlæknis og hann skoðaði góminn minn til að vita á hverju hann ætti nú von þegar ég kem aftur til hans í endajaxlatöku í júní. Það verður ekki kúl. Ég hræðist þann skít. Að láta einhvern kall draga úr mér tennur á meðan ég sit deyfð á gleðilyfi í stólnum hans. Hann gaf mér lyfseðil og ég spurði hann oftar en einu sinni hvort hann væri nokkuð að gefa mér of stóran skammt. Ég vil ekki enda í yfirliði með fésið í gólfinu og kyngja fullt af blóði og æla svo og láta saumana rifna upp. Ó nei!

Ciao! Edda.


Edda eða Egill kl. 14:32 |

=================

þriðjudagur, maí 06, 2008



Líf mitt einkennist af mikilli leti þessa dagana. Ég er ekki í skóla og ekki með vinnu. Sem er bara dálítið næs. Sumarvinnumál eru í þróun. Mér hafa boðist þrjú störf, tvö full störf og eitt helgarstarf. Ég held að ég láti helgarstarfið, á Árbæjarsafninu, fjúka því mig vantar ekki helgarstarf. Fullu störfin eru hjá Borgarbókasafninu og svo var kona frá Skólagörðunum að hringja í mig rétt í þessu. Mér finnst líklegt að skólagarðarnir verði fyrir valinu. Það er ekki vaktavinna, ekki unnið um helgar og er útistarf. Gæti orðið ansi skemmtilegt.
Í gær fór ég í 40 mínútna strætóferð upp í Árbæjarsafn, talaði við manninn, sem var ekki einu sinni að bjóða mér fullt starf, í svona fimm mínútur og fór svo aftur í 40 mínútna strætóferð. Það var ekki skemmtilegt.
Síðasta helgi var frekar róleg vinnuhelgi hjá mér en ég náði nú samt að lyfta mér aðeins upp á föstudaginn. Soffa, Laufey og Hildur Helga komu til mín áður en við kíktum svo í partý hjá Ingibjörgu og Hilmi. Það var gaman og myndir eru komnar á síðuna mína.
Á laugardaginn vann ég svo kvöldvakt og á sunnudaginn morgunvakt svo það var lítið annað gert þessa helgi.

Úti í London keypti ég mér þriðju seríu af Mighty Boosh og er ég upptekin þessa dagana við að horfa á þessa snilld. Ég elska þessar elskur.

Ciao!


Edda eða Egill kl. 12:13 |

=================