Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


sunnudagur, júní 22, 2008



Með kaldan bakstur á kinn, hlustandi á þátt um Brigit Bardot á Rás 1 og lesandi Eurowoman get ég í fyrsta sinn sagt að mér líði ágætlega eftir endajaxlatökuna sem ég fór í á föstudaginn. Mér leið ekki vel í aðgerðinni sjálfri, sérstaklega ekki þegar tannlæknirinn tilkynnti mér að þetta væri erfið aðgerð þar sem jaxlarnir væru ansi fyrirferðamiklir miðað við lítinn kjálka. Mér leið heldur ekki vel þegar ég var búin að taka of stóran skammt af Parkódíni og svaf með ógleði í 5 tíma. Það var heldur ekki gott að kasta loks upp. Jájájá, mikið hefur gengið á hér á heimilinu um helgina og mamma er dugleg að útbúa Build-up sjeika fyrir mig. Ég get ekki horft á eða heyrt neitt fyndið því það er mjög vont að brosa. Ég hlakka til þegar ástandið batnar og ég get farið að haga mér eins og venjuleg manneskja. Næsta helgi verður alla vega pottþétt betri en þessi. Þá ætla ég að klæða mig upp, vonandi laus við alla bólgu, og hitta gott fólk og fara á útitónleika.

Vonandi hafa allir það betra en ég.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 14:19 |

=================

þriðjudagur, júní 17, 2008



Sautjándi júní kominn enn á ný. Eins og allir aðrir dagar. Kemur alltaf aftur. En samt aldrei. Ég rölti í bæinn með Fríðu systur í morgun og við hlýddum á Geir Haarde og fjallkonuna og keyptum snuð og pylsu. Svo fórum við í Kolaportið og ég gerði stórgóð kaup. Keypti tvö skópör á 2500 og eina góða gæru á spottprís. Bíðið bara þangað til þið sjáið mig vappandi um bæinn í gæru og hnéháum reimuðum leðurstígvélum.

Nú er aðeins farið að róast í skólagörðunum og ekki eins mikið áreiti. Ég hlakka til þegar við getum farið að setja niður í starfsmannagarðana svo að í lok sumars geti ég komið heim með vellyktandi timian og gott grænmeti á borð við blaðlauk, radísur og rófur. Ein stelpan í skólagörðunum segist ætla að selja allt grænmetið sitt til að græða smá pening. Ég myndi nú ekki tíma því. En engu að síður góð viðskiptaleið.

Næsta föstudag fer ég í endajaxlatöku. Það verður ekki stuð, get ég ímyndað mér, nema kannski þegar ég fæ hláturgasið. Ég vona að ég geri eitthvað flippað. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær gott gleðilyf.

Jæja, munið að hjóla með hjálm og fara varlega.
Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 17:50 |

=================

laugardagur, júní 07, 2008



Sumarið er algjörlega tíminn. Þá er maður glaður, þarf ekkert að læra og það er bjart alla nóttina sem er snilld. Það er svo gaman að djamma á sumrin. Ég tók tvö sumardjömm síðustu helgi, rétt áður en ég lagðist í magakrampa og ógleði. Myndir eru komnar á netið, annars vegar frá útskriftarveislum Þóru og Thelmu og hins vegar frá sumargleði sem haldin var hjá Sveini. Enginn bær, bara gleði og partý.

Síðasta vinnuvika var ansi erfið og tók á taugarnar. Gróðursetning í skólagörðunum hófst. 70 börn á aldrinum 8-12 ára þurftu öll á hjálp að halda, allir þurftu að fá að heyra hvernig setja á niður kartöflur og kál og við leiðbeinendurnir vorum á hlaupum um garðana og gátum varla sest niður til að borða smá. Ein vika í viðbót af þessari sturlun og þegar gróðursetningu er lokið fer að róast hjá okkur. Þá get ég einbeitt mér meira að sólbaði og bókalestri.

EM byrjar á eftir og ég hlakka mega mikið til. Ég ætla að halda boltapartý. Ekki í dag, en einhvern tíma.

Kv. Edda


Edda eða Egill kl. 12:31 |

=================