Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


föstudagur, júlí 18, 2008




Ég held það sé kominn tími til að ég éti mín eigin orð. Í mars skrifaði ég hér færslu um það að ég myndi aldrei fara í viðskiptafræði því það hljómaði ógeðslega leiðinlega. Þessa dagana er viðskiptafræðin hins vegar efst í huga mér sem aukagrein við listfræðina í Háskólanum. Ég held það væri ansi sniðugt að mixa þessum fögum saman og ég vona að það gangi eftir. Þess vegna hef ég ráðið mér stærðfræðikennara sem ætlar að kenna mér að diffra og svoleiðis skemmtilegt.
Á eftir fer ég til Hjalteyrar að hafa það notalegt yfir helgina. Ég er að brenna geisladiska til að hlusta á á leiðinni. Sá fyrri heitir On the road og sá seinna heitir On the road again. Snilldardiskar enda verður maður að hafa góða músík þegar maður situr sex tíma í bíl.
Svo er diskur með nýjum myndum kominn í hendur mínar og ég ætla að reyna að henda honum á netið áður en ég fer.

Sjáumst síðar, Edda.


Edda eða Egill kl. 12:42 |

=================

þriðjudagur, júlí 08, 2008




Þá er kominn 8. júlí. Sumarið þýtur hjá án þess að maður taki eftir því. Það er eins gott að ég sé að fara að gera eitthvað skemmtilegt í vetur sem ég hlakka til að takast á við. Ég hlakka nefnilega mikið til að fara í Háskólann og læra listfræði. Það verður vonandi stuð. En nóg er þó eftir af sumrinu og eiginlega hver helgi er skipulögð hjá mér. Einhverjar helgar verð ég að vinna og svo fer ég á Snæfellsnes, til Hjalteyrar, kannski tvisvar og um miðjan ágúst fer ég til Berlínar. Ég og Kári vorum að panta okkur far og verðum í 5 daga að skoða Berlín og hafa það gott.
Ég skoðaði mörg hostel og það besta sem ég fann hét Green eggs and ham. Það verður fróðlegt en vonandi gott að eyða þar fimm nóttum.
Ég er búin að vera að vafra á netinu og fræðast um Berlín og hvað sé vert að skoða þar. Ég veit um alla þessa helstu staði sem maður er búinn að læra um í þýsku en ég hef verið að reyna að finna eitthvað öðruvísi og sniðugt. Það skrýtnasta sem ég fann er án efa alþjóðleg sandskúlptúrhátíð sem haldin er á aðallestarstöðinni á meðan við erum úti. Auðvitað tékkar maður á því.
Svo fann ég nú öllu áhugaverðari hluti eins og fullt af söfnum og Berlin shopping guide þar sem mælt er með búðinni Calypso sem selur bara vintage skó.
Jájá, maður kíkir á þetta allt saman. Svo væri hægt að fara á blindra veitingastaðinn þar sem allt er kolsvart og allir þjónarnir blindir eða veitingastaðinn þar sem maður situr á klósettum í staðinn fyrir stólum og drekkur úr þvagsýnamálum en ekki venjulegum glösum. Ég get ekki sagt að þessir veitingastaðir heilli mig mikið en það er ágætt að vita af þessu.

Annars hefur sumarkvefið sest að í líkama mínum og ég hef ekki mætt í vinnu í tvo daga. Það er skítfúlt en ég er vonandi að hressast.
Síðasta helgi var góð með smá dass af Mateusi, Bailey's, Mighty Boosh, partýum og vinnu. Ástæðan fyrir því ég er ekki búin að setja inn myndir á netið lengi er að ég lagði digital vélinni minni um stund og er með filmuvélina gömlu góðu í gangi núna. Um leið og filman klárast framkalla ég hana, set á disk og skelli á netið.

Tschüssi, Edda.


Edda eða Egill kl. 13:09 |

=================