Edda og Egill.blogspot.com                          

Um Eddu:

1987

Kaffi
Huggulegheit
Fornmál
Grafík

Um Egil:

1985
Hagaborg
Skeggi
Kaffi
Börn
Hamborgari

Bloggarar:

Arngunnur
Soffía Dóra og Þóra
Gnúsilíus
Guðrún Sóley
Gugga
Svári
Jón Emil
Halla Oddný
Edda Mac
Jón Kristján
Þóra Elísabet
Auður
Saga
Aldís
Ragnhildur
Þorsteinn

Vinsældir:

hafa skoðað síðan 11. Janúar 2005.

Ýmislegt:

Eddu Myndir
Guggu Myndir
Litrí­kir Postular

Gamalt og gott:

2003/10 - 2003/11
2003/11 - 2003/12
2003/12 - 2004/01
2004/01 - 2004/02
2004/02 - 2004/03
2004/03 - 2004/04
2004/04 - 2004/05
2004/05 - 2004/06
2004/06 - 2004/07
2004/07 - 2004/08
2004/08 - 2004/09
2004/09 - 2004/10
2004/10 - 2004/11
2004/11 - 2004/12
2004/12 - 2005/01
2005/01 - 2005/02
2005/02 - 2005/03
2005/03 - 2005/04
2005/04 - 2005/05
2005/05 - 2005/06
2005/06 - 2005/07
2005/07 - 2005/08
2005/08 - 2005/09
2005/09 - 2005/10
2005/10 - 2005/11
2005/11 - 2005/12
2005/12 - 2006/01
2006/01 - 2006/02
2006/02 - 2006/03
2006/03 - 2006/04
2006/04 - 2006/05
2006/05 - 2006/06
2006/06 - 2006/07
2006/07 - 2006/08
2006/08 - 2006/09
2006/09 - 2006/10
2006/10 - 2006/11
2006/11 - 2006/12
2006/12 - 2007/01
2007/01 - 2007/02
2007/02 - 2007/03
2007/03 - 2007/04
2007/04 - 2007/05
2007/05 - 2007/06
2007/06 - 2007/07
2007/07 - 2007/08
2007/08 - 2007/09
2007/09 - 2007/10
2007/10 - 2007/11
2007/11 - 2007/12
2007/12 - 2008/01
2008/01 - 2008/02
2008/02 - 2008/03
2008/03 - 2008/04
2008/04 - 2008/05
2008/05 - 2008/06
2008/06 - 2008/07
2008/07 - 2008/08
2008/08 - 2008/09
2008/12 - 2009/01
2009/01 - 2009/02

Hönnun:

Andleg hönnunar- ráðgjöf og uppsetning frá Lilju Hrönn.
eMail
Vefsíða

Hönnun frá I.Designs.
Vefsíða


laugardagur, janúar 24, 2009



Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Í gær hitti ég leigubílstjóra sem var uppfullur fróðleiks og sá fróðleikur var sko ekki af verri endanum. Ónei. Ég og tveir ferðafélagar mínir hoppuðum upp í stóran leigubíl á leið heim af djemmi og þá spruttu upp þær umræður hvort að stór leigubíll væri dýrari heldur en lítill. Við sáum sko ekki eftir því að hafa bryddað upp á þessum umræðum því í ljós kom af hann væri sko ekki dýrari nema hann væri pantaður sérstaklega sem stór leigubíll. Það ætti sér stað um það bil tvisvar á ári og þá eingöngu þegar um fótbrotnar manneskjur væri að ræða og þá helst þær sem væru með gifs upp í nára og þyrftu mikið pláss fyrir fótinn. Þá var það komið á hreint og við gátum haldið áfram með líf okkar.
Talandi um lífið þá gengur mitt bara ágætlega þessa dagana. Nóg er að gera í skólanum og eftir tvær vikur verð ég stungin af til Ítalíu að takast á við barnabrekkur Alpanna af miklum móð.

Þangað til næst, Edda.


Edda eða Egill kl. 16:38 |

=================

miðvikudagur, janúar 07, 2009



Enn er ég í jólafríi og hef það náðugt. Ég horfi á bíómyndir, hitti fólk, sef of lengi, fer í ræktina og útbý mauk. Um daginn bjó ég til tvenns konar mauk og bauð vinkonum mínum að borða þau. Annars vegar kjúklingabauna- og fetamauk og hins vegar túnfisks- og mangochutneymauk. Þau brögðuðust bæði vel, maukin, svo ég geri ráð fyrir að maukgerð verði vinsæl árið 2009.

Nýtt ár er gengið í garð og ég hef hitt útlandavini mína, sagt við þá hæ, en einnig bæ, því nú eru flestir á útleið aftur. En þó ekki allir. Ég fæ að halda í nokkra gullmola sem er vel þegið. Ég hef svo verið dugleg í videoglápi í fríi mínu og hef horft á nokkrar góðar myndir. Ég fór á Yes Man í bíó sem var hin besta skemmtun. Svo er ég búin að horfa á About a boy, Love actually, To kill a Mockingbird, Lars and the real girl og er nú hálfnuð með Matilda. Allt saman hinar fínustu myndir.

Ég mæli með maukgerð, Kea skyrdrykk, einum Nóa Síríus konfektmola eftir mat og Tony and Guy sjampói.

Kv. Edda.


Edda eða Egill kl. 22:43 |

=================